Skinfaxi - 01.06.1986, Qupperneq 31
400 m. hlaup konur
Sólveig Ása Árnad. HSÞ 66,0 sek.
Kristín H. Baldursd. USVH 72,3 sek.
Kringlukast karla
Helgi Þór Helgason USAH 48,50 m.
Guðm. Ragnarss. USAH 30,62 m.(dr)
Haukur Marínóss. UNÞ 25,80 m.(dr)
15oo m. hlaup konur
Lillý Viðarsdóttir UÍA 5:17,3 mín.
1000 m. boðhlaup karlar
Sveit UMFÍ (Hörður-Bjami-Agnar
Friðrik) 2:07,6 mín.
1000 m. boðhlaup konur
Sveit UMFÍ (Guðbjörg Guðbjartsd.-
Ólöf - Sólveig-Lillý) 2:45,9 mín.
Þrístökk karlar
Gunnar Sigurðsson UMSS 13,68 m.
Hörður Gunnarsson HSH 12,71 m.
Hafsteinn Þórisson USAH 12,48 m.
Þrístökk konur
Ólöf Haraldsdóttir UMFK 10,10 m.
Lillý Viðarsdóttir UÍA 10,01 m.
Ofan greindir árangrar eru_ þeir
helstu frá nokkrum mótum er
hópurinn setti upp og tók þátt í.
90 ára afmæli NU
Texti og myndir: Pálmi Gíslason
Noregs Ungdomslag (NU) hélt upp á 90
ára afmæli sitt 27/6 - 30/6 s.l. á
Fagranesi, 230 km. fyrir norðan Osló.
Samhliða var haldið landsmót og
ársþing. Undirritaður mætti á mótinu
sem fulltrúi frá UMFÍ og NSU. Ástæða
þess að UMFÍ sendi fulltrúa var að
upphaf íslensku ungmennafélaganna má
að mestu rekja til áhrifa frá norskum
ungmennafélögum. Áður fyrr voru all
nokkur samskipti milli N.U. og UMFÍ
eða allt fram til 1946 og 1947. Fyrra
árið mættu fulltrúar frá UMFÍ á 50 ára
afmælishóf en seinna árið fór stór
hópur í heimsókn til norsku ungmenna-
félaganna. Síðustu 40 árin hafa sam-
skiptin að mestu verið innan vébanda
NSU.
Jarðvegurinn var mjög svipaður í
báðum löndum. Báðar þjóðirnar höfðu í
margar aldir lotið yfirráðum erlendra
þjóða. í báðum löndum var hafin
barátta fyrir sjálfstæði. Norðmenn sóttu
styrk í þær fornu sögur sem hér höfðu
verið ritaðar. Þjóðernisvakning unga
fólksins í Noregi og þáttur NU varð
ungmennafélögum á íslandi fyrirmynd.
Norskir ungmennafélagar eru nú um 37
þúsund (14 ára og eldri) í 796 félögum
dreifðum um allt land. Þjóðernisbarátt-
an er enn ofarlega á baugi t.d. er barist
fyrir notkun nýnorsku og fyrir viðhaldi
byggðar í strjálbýlli héruðum. Þjóð-
dansar, leiklist, söngurog hljóðfæraleik-
ur eru stærstu þættir í starfsemi NU.
Á hátíðardagskrá fluttu fjölmargir gesúr
NU heillaóskir og aflientu gjafir. UMFÍ
hafði látið gera fallega klukku úr hrafn-
tinnu og vakti hún mikla athygli..
Stór hópur leikara sýndi þætti úr 90 ára
sögu NU. Var það mjög vel og skernm-
tilega unnið. Frá morgni til kvölds
voru sýndir þjóðdansar og leikhópar
sýndu m.a. gömul norsk leikverk utan
dyra í Byggðasafni Fagranes. Fyrir
yngri kynslóðina var ýmislegt á boð-
stólum s.s. götuleikhús þar sem slegið
var á léttari strengi t.a.m. með flutningi
á ævintýrum.
Eitt kvöldið fór fram lokaþáttur
spurningakeppni þar sem 3 lið kepptu
61 úrslita en undankeppni hafði farið
fram heima í héruðum fyrr á árinu. Það
var sérstætt að sjá stuðningsmenn
hvetja sín lið bæði með hvatningar-
hrópum og árituðum spjöldum.
Á mótinu var kynnt nýútkoniin bók
um félagsheimili ungmennafélaganna.
Ritstjóri bókarinnar var Jan Klövstad
sem mörgum íslendingum er að góðu
kunnur. Þar kom m.a. frani að
félagsheimili eru 283, þannig að 44%
félaganna í Noregi eiga sitt eigið hús.
Þeim hefur þó fækkað nokkuð, enda eru
flest komin nokkuð 61 ára sinna, en
rúmlega helmingur er frá því fyrir
1930. Það er óhætt að segja að allt hafi
þarna farið vel fram og rnikil þátttaka
var í öllum þáttum þessa rnikla móts.
Pálmi Gíslason
Skinfcixi 3. tbl. 1986
31