Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.06.1986, Side 38

Skinfaxi - 01.06.1986, Side 38
Hvaða fugl er þarna? Hugleiðing um fugla fyrír göngufólk Þorsteinn Einarsson Ránfuglar Menn hafa gefið þeim önnur nöfn, vargfuglar og gripfuglar, þar sem þeir eins og mennirnir drepa önnur dýr sér til matar en þó haft slíkt dálæti á þeim, að myndir þeirra skxeyta skjaldamerki þjóða t.d. bandaríkjanna og eigi langt síðan að fálkamynd var í íslenskum fánadúk og skjaldarmerki. Enn þekkist að sumar tegundir séu tamdar til veiða og eru því í boði fyrir þær háar upphæðir. Menn hafa gert sig að ræningjum, vegna fjárvona og reynt að verða sér úti um egg, unga og jafnvel fullorðna fugla, svo að í stað kon- unglegra fálkafangara eru að störfum fálkaeftirlitsmenn. Fleira válegt eyðir þessum fuglum en fálkaræningjar og náttúruöflin. Lagt er út eitur, beitt er skordýraeitrun við ýmsa ræktun. Hið fyrrnefnda deyðir marga meðan hið síðara safnast fyrir í líkömum fuglanna, veiklar þá eða gerir ófrjóa. Menn skjóta ránfugla sem meinvætti eða til uppstoppunar til skrauts innanhúss. Þeir eru engar meinvættir, sem ber að útrýma, heldur eðlilegir lífsþættir í náttúrunni. Sameiginleg einkenni þessa ættbálks fugla eru sterkir fætur með hvassar klær og goggur krókboginn. Kvenfuglar eru stærri. Haföm (öm, assa, lodda). Stórir fuglar; vænghaf 2 m. ; þyngd kvenfugls 4-7 kg. en karlfugls 3-5 kg. Hamur móbrúnn. Stél fleyglaga og stutt. Á flugi handflugfjaðrir aðskildar. Fullorðnir fuglar ljósari um höfuð og háls, -jafnvel gráir. Stél hvítt. Goggur og fætur gul. Ungfuglar dekkri og stél dökkt. Varp í skerjum og hólmum, klettadröngum í hraunum og á syllum í björgum. Frá þeim berst stundum ískrandi eða vælandi gá. Kynþroska á sjötta ári og stél þá orðið hvítt. Veiðir með að læsa klóm í bráðina. Var næstum aldauða vegna úrlagningar eiturs fyrir refi og um s.l. aldamót. 1939 álitið að stofninn væri 9 varppör og 22 geldfuglar en hefur fjölgað frá 1960. Stofninn nú talinn rúmlega 100 fuglar. Örn var á síðastliðnu vori oft séður í og við Reykjavík. Olli umferðartöfum. Síðustu daga hefur örn haldið sig í Heiðmörk. Fálki (valur, haukur) Fullorðnir fuglar gráir um bök, bringur Ijósari með dökkum dílum, rætur gogga og klær gular. Ungfuglar dekkri, rætur gogga og klær bláleit. Flækingar frá Grænlandi hvítir með dökkar handflugfjaðrir. Stofninn talinn vera nú um 200 fuglar. Er alfriðaður frá 1940. Verpir í hömrum og djúpum giljum. Oftast hljóðlátur en við ákveðnar laingumstæður heyrist frá honum hvellt væl. Slær bráðina á flugi með fótunum; beidr klóm. Smyrill Algengasti ísl. ránfuglinn og sá, sem er að hluta farfugl og því þeirra, sem mest verður fyrir áhrifum skordýraeiturs. Ástæðan fyrir fækkun þeirra hin seinni ár. Stofnstærð ókunn. Fullorðinn smyr- ill kvenkyns brúnn að ofan en ljósari um hliðar, bringu og kvið með dökkum Skinfaxi 3. tbl. 1986 38

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.