Skinfaxi - 01.08.1986, Blaðsíða 3
Ágætu ungmennafélagar!
Það er vissulega nokkrum vandkvæðum bundið að taka við starfiþví
sem Sigurður Geirdal hefur sinnt í rúmlega 16 ár. Hefur félögum
ungmennafélagshreyfingarinnar fjölgað á þessum tíma úr rúmum 9
þúsundum írúmlega 27 þúsund. Það eitt segir allnokkra sögu. Þó að
Sigurður hætti starfi, veit ég að hann mun styðja okkur í framtíð-
inni. Við hin verðum að halda göngunni áfram. Líta hátt, því að þó
að einum tindi sé náð, birtast fleiri hærri, til þess að glíma við.
Samfélagið breytist stöðugt, og ýmsar blikur eru á loftí. Við verðum að mæta nýjum aðstæðum,
með breyttum fjáröflunum, skipulagi og nýjum vinnuaðferðum. Ekki er stöðugt hægt að auka
þátttakenda fjöldann, en jafn mikilvægt er að virkja betur þá félaga sem nú eru í starfi.
Um miðjan október mun öll aðstaða gjörbreytast, við flytjum úr Mjölnisholtinu, að Öldugötu 14.
Með þessu stórbatnar öll aðstaða, bæði fyrir skrifstofu, svo og aðstaða fyrir gistíngu og fundarhalda.
Við verðum stöðugtað reyna að bæta og auka starfssemiþjónustumiðstöðvarinnar. Allar ábendingar
þar af lútandi eru vel þegnar. Munum að þjónustumiðstöðin er fyrir héraðssamböndin, félögin og
hinn almenna félaga.
Ég lít bjartsýnum augum fram á veginn og vonast eftír góðu samstarfi við alla ungmennafélaga.
íslandi allt
Siguður Þorsteinsson
I blaðinu er meðal annars:
"Gekk verst að passa
Einar Bollason "___
Bikarkeppni FRÍ
Temaseminar í Borgarfirði
Ungmennavika íNoregi
Ötgcfandi: Ungmcnnafélag íslands • Ritstjóri: Guðmundur Gíslason • Ábyrgðarmaður: Pálmi Gíslason • Sljóm UMFÍ: Pálmi
Gíslason form. Þóroddur Jóhannsson varaform. Þórir Jónsson gjaldkcri, Bergur Torfason ritari, meðstjómendur: Dóra Gunnarsdóttir, Diðrik
Uaraidsson, Guðmundur H. Sigurðsson • Afgrciðsla Skinfaxa: öldugata 14 Reykjavík sími: 91-14317 • Sctning og umbrot:
Skrifstofa UMFÍ • Filmu og plötugcrð: Prentþjónustan hf. • Prentun: Prcntsmiðjan Rún sf.
Allar grcinar cr birtast undir nafni cru á ábyrgð höfunda sjálfra og túlka ckki stcfnu né skoðanir blaðsins nó stjómar UMFÍ.