Skinfaxi - 01.08.1986, Síða 4
Poppfaxi
Texti: Kristjdn Krístjánsson
í ágúst síðastliðnum ákvað "Poppfaxi"
að bregða undir sig betri fætinum og
fara út fyrir landsteinana. Ferðin var að
sjálfsögðu meiriháttar og urðu fimm
lönd fyrir valinu að skoða: Luxemburg,
Frakkland, Þýskaland, Belgía og
England. Minnisstæðast í ferðinni
voru tveir ólíkir tónlistarviðburðir sem
"Poppfaxi" hefur ákveðið að deilda með
ykkur lesendur góðir.
"MONSTERS OF
ROCK"
Á Donington Park í Englandi er haldin
einu sinni á ári stór rokkhátíð undir
yfirskriftinni "Monsters of rock". Þessi
hátíð er orðin einn stærsti og
vinsælasti tónleikaviðburður Englands.
Ekki hef ég neinar nákvæmar tölur yfir
fjöldann á þessum tónleikum að þessu
sinni en ég gæti trúað að það hafi
verið eitthvað yfir 100 þúsund
áhorfendur. Það hefur verið árviss
viðburður hjá undirrituðum og
nokkrum fleiri íslendingum að bregða
sér á þessa tónleika. 1984 fóru t.d. yfir
50 íslendingar á þessa tónleika. Að
þessu sinni voru aðeins 8 íslendingar
sem fóru en þeir héldu vel uppi nafni
íslands því að forlátur fáni var tekinn
með og vakti hann mikla athygli.
Þegar undirritaður fór í fyrsta skiptið á
þessa tónleika leist honum satt að
segja ekki á blikuna. Fannst honum
tónleikagestir skuggalegir í meira lagi.
En efdr smá stund komst hann að því
að rólegra fólk væri varla til. Það
koma greinilega flesdr til að skemmta
sér þó að vissulega séu svartir sauðir
innan um eins og á flestum stöðum.
Sem dæmi má nefna að undirritaður
gisd í Derby fyrir tónleikana að þessu
sinni (Derby er um 5. km frá
Donington Park). Þar vék ég mér að
einum manni sem greinilega var á
leiðinni á tónleikana og spurði eina
fáráðlegustu spurningu sem ég hef spurt
á æfinni.-
- Með hvaða liði heldur þú í fótbolta?
Hann leit á mig með undrunarsvip og
svaraði: Nú Derby auðvitað.
- Ferðu oft á völlinn? Spurði ég þá.
- Nei, ekki oft núorðið. Það er allt of
mikið af ofbeldi á fótboltaleikjum
núorðið. Svo mörg voru þau orð.
BYRJAÐÁ
FULLU
Hljómleikarnir byrjuðu um 12 á hádegi
og byrjaði með krafti. Hljómsveidn
"Warlock" frá Þýskalandi með
söngkonunni "Doro Pesch" í fararbroddi
heillaði hljómleikagesd hreint upp úr
skónum. Það get ég sagt að "Doro"
hefur ekki bara útlitið með sér, heldur
er hún einnig mögnuð söngkona.
Næsta "hljómsveit" (já ég setþað innan
gæsalappa) var hljómsveit sem kallar
sig "Bad news". Hún var vægast sagt
hörmuleg og ég held að nafnið sé
sannnefni. Reyndar átti þetta að vera
grínhljómsveit en "grínið" átti
greinilega ekki upp á pallborð hjá
áhorfendum. Efdr "Bad news" kom
hljómsveit sem heitir "Motorhead".
Hún stóð sig að flestra áliti ekki nógu
vel, en fór samt nokkuð stórslysalaust í
gegnum prógrammið.
STJARNA
TÓNLEIKANNA
Næst á svið kom hljómsveidn "Def
Leppard" og er óhætt að segja að þeir
komu, sáu og sigruðu.
Árið 1983 áttu þeir eina af söluhæstu
plötu Bandaríkjanna og Bretlands:
"Pyromania", og var óhætt að segja að
þeir stóðu á hátindi frægðarinnar. En
þá fór að síga á ógæfuhliðina hjá
þessum ungu piltum frá Sheffield.
Seint á árinu '83 byrjuðu þeir að
undirbúa upptökur á nýrri plötu en það
gekk illa að finna upptökumann sem
þeir vildu sætta sig við. "Gamli"
upptökumaðurinn þeirra "Mutt" Lange
var upptekinn í öðrum verkefnum.
Stæsta áfallið skeði þó á gamlárskvöld
sama ár. Trommuleikari hljómsveitar-
innar Rick Allen lenti í bílslysi og
missti hægri höndina frá öxl. Bjuggúst
þá flestir við að ferill hans sem
trommuleikara væri lokið. En þeir
voru ótrúlega samhentir, hinir með-
lirrúr Def Leppard. Þeir gáfu út þá
yfirlýsingu að Rick Allen mundi verða
áfram trommuleikari Def Leppards.
Þeim var alveg sama þótt þeir myndu
þurfa að fá sér aðstoðartrommuleikara..
Rick Allen yrði áfram í hljómsveidnni.
Á meðan Rick Allen var að jafna sig
hélt hljómsveidn áfram að leita að
upptökustjóra sem þeir gætu sætt sig
við. Þeir reyndu marga, þ.a.m. Jim
Steinman sem frægur er fyrir samvinnu
sína við m.a. Meatlow og Bonnie Tyler
o.fl. En þeir voru ekki ánægðir með
hann og létu hann fjúka. Loks fengu
þeir sinn gamla upptökumann "Mutt”
Lange. En þá var líka komið árið
1986. Þá höfðu þeir ekki haldið
tónleika síðan '83 og voru margir
spenntir að sjá hvernig þeir tækju sig
Skyldi hann komast í fimleikadeild Ármanns þessi?
4
Skinfaxi