Skinfaxi - 01.08.1986, Qupperneq 5
út á þessum fyrstu hljómleikum í 3. ár.
Einnig voru menn spenntir að sjá
hvemig Rick Allen kæmi út. Bjuggust
flestir við að hann væri með
aðstoðartrommuleikara. En viti menn.
Rick Allen spilaði einn alla tónleikana
og stóð sig hreint frábærlega vel. Og
móttökurnar voru eftirminnilegar. Þeir
gerðu góðlátlegt grín af sjálfum sér,
hve lengi þeir hafa verið að taka upp
plötuna sína. Þeir kynntu svo Rick
Allen sérstaklega og það var greinilegt
að hann var stjarna tónleikanna.
Þá stigu á svið hljómsveitin
"Scorpions" sem voru sérstakir gestir
kvöldsins. Scorpions er þýsk hljóm-
sveit sem starfað hefur frá árinu 1971.
Þeir eru með einsdæmum skemmtileg
hljómsveit á sviði og greinilega mjög
sviðsvanir.
Þeir voru að slá nýtt hljómleikamet, en
þeir hafa verið stanslaust á tónleika-
ferðalagi í tæp tvö ár og hafa spilað
nær alls staðar í heiminum að íslandi
undanskildu auðvitað. Þeir héldu uppi
geysilegri stemmningu í tæpa tvo tíma
og urðu fáir fyrir vonbrigðum með
þessa sveina.
MED ALLT Á
HREINU
Þá var komið að aðalnúmeri tón-
leikanna; Ozzy Osboume. Þegar Ozzy
steig niður á sviðið innan í stórri styttu
sem opnaðist og lokaðist, ætlaði allt að
springa á svæðinu. Og sú stemming
hélst frá upphafi til enda. Það er
ótrúlegt hve góð tök Ozzy hefur á
áhorfendum. Ozzy Osborne hefur verið í
músíkbransanum í nær 20 ár og er að
nálgast fertugsaldurinn. Hann var lengst
af söngvari í hljómsveit sem hét "Black
Sabbath". Hann hætti í henni 1978 og
tók sér smá hvíld. Fór hann
svo á sólóferil og er gífurlega vinsæll
(og óvinsæll) sérstaklega í Banda-
ríkjunum. Hann átti m.a. lag inn á
vinsældarlista Rásar 2 í sumar. Það hét
"Shot in the dark". Ozzy hefur lengst af
verið aðalskotspónn þeirra sem eru á
móti rokki. Er það að mestu leyti
drykkju hans að kenna. Hann er
alkóhólisti og er sjálfur ötull baráttu-
maður á móti áfengi. Hann segir sjálfur
að mesti bölvaldur hans sé alkóhólið og
ræður öllum frá því að drekka. En
yfirleitt þegar talað er um Ozzy
Osbourne er litið framlijá því og reynt
að draga allt það neikvæðasta fram í
umfjöllunum um hann. Hann gerir sér
vel grein fyrir því og segir; Ég er sá
maður sem menn elska að hata. Ég veit
að ég hef gert margt sem ég hefði ekki
átt að gera og sé eftir mörgu af því, en
ég hef gaman að því að spila og sé ekki
eftir þeim árum og ég mun halda áfram
að spila svo lengi sem ég hef áhuga
fyrir því".
En hvað sem menn segja þá var það
greinilegt að flestir þeir 100 þúsund
áhorfendur á Donington Park elskuðu
hann og hafa hljómleikarnir fengið
mjög góða dóma í flestum fjölmiðlum.
Og við sem vorum á staðnum munu
hafa góðar minningar frá þessum
tónleikum lengi vel.
"TIME"
Hinn tónlistarviðburðiurinn sem verður
lítillega til umfjöllunar hér er töluvert
öðmvísi. Það er söngleikur sem er
nýbyrjað að sýna í London og heitir
"Time".
Þessi söngleikur þykir hafa brotið blað
Rick Allen
í leiklistarsögunni. Aldrei áður hafa
sést jafn frábærar tæknibrellur á sviði.
Sumir kalla "Time": "Star Wars" á
sviði. Og get ég vel tekið undir það.
Aldrei hefði ég trúað því óséð að það
væri hægt að framkalla svona góðar
tæknibrellur á sviði. Og ekki nóg með
það, söngleikurinn sjálfur var
meiriháttar góður. Það er söngvarinn
gamli Cliff Richard sem fer með
aðalhlutverkið og stóð hann sig bara
nokkuð vel. Það var skrítið að hugsa
til þess að hann er kominn yfir fertugt
því að hoppaði og skoppaði um allt
svið eins og tvítugur táningur. En sá
leikari sem þykir vekja mesta athygli í
þessum söngleik er leikarinn góðkunni
Laurence Olivier. Og þá kannski ekki
eingöngu góðan leik, heldur kannski af
því að hann er í raun ekki sjálfur á
sviðinu. Hann er búinn til úr
lasergeislum. Ég ætla ekki að reyna
að lýsa því hvemig það var gert en vil
hvetja sem flesta til að líta á þennan
söngleik ef þið eigið leið um London í
framtíðinni. Sjón er sögu ríkari.
Að lokun langar mig til að hvetja
ykkur lesendur góðir að senda
"Poppfaxa"" línu. Þessi síða er fyrir
ykkur lesendur góðir og ef þið viljið
láta álit ykkar í ljós um þessa síðu þá
endilega gerið það. Látið vita hvað þið
viljið sjá á þessum síðum. Er einhver
sérstakur listamaður sem þið viljið sjá
viðtal við? Hvað finnst ykkur að betur
megi fara og mun "Poppfaxi" reyna að
móta þessa síðu eftir ykkar óskum.
Lifið heil: Kristján
P.S. Heimilisfangið er það sama og
UMFÍ.
Skinfaxi
5