Skinfaxi - 01.08.1986, Page 6
Svipmyndir frá Islandsþingi
Jón L. Árnason
honum með laglegum hnykk en
Margeir var fljótur að jafna sig.
En þó svo Margeir hefði orðið efstur og
teflt best voru aðrir sem stálu senunni:
Hannes Hlífar og Bæring. Hannes náði
stórgóðum árangri, ef tekið er mið af
því að hann er aðeins 14 ára gamall.
Einhvern tíma var sagt unr svona pilta
að þeir væru "efni í efnilegt efni". Ef
Hannes nær að beisla hæfileika sína
hefur hann alla burði til þess að ná
langt.
Og Bæring Cecilsson er sérstakur
kapituli út af fyrir sig. Hann var eins
og grár köttur í grunnskóla Eyrarsveit-
ar, þar sem teflt var, með mynda-
vélarnar á maganum. Og hann sló
þrætugjörnum skákmönnnum við, sem
hafa óbeit á truflandi myndavélahljóði
er þeir eru að reyna að einbeita sér að
taflinu. Bæring hafði með sér forláta
neðansjávarmyndavél, sem var nánast
hljóðlaus, 'enda ekki til þess gerð að
fæla fiskana í sjónum. Þannig náði
hann myndum af skákmönnum í hita
leiksins, án þess að þeir yrðu mynda-
vélarinnar varir.
En hugum að taflmennskunni á
íslandsþinginu. Hér koma fimm
stöðumyndir, þar sem hvítur (svartur í
einu tilviki) lumar á snjallri fléttu, sem
gerir út um taflið. Lesandinn er hvattur
til þess að reyna sjálfur að koma auga á
fléttuna, áður en hann lítur á lausnirnar
sem eru á öðrum stað í blaðinu.
Margir voru vantrúaðir er þeir heyrðu
að keppni í landsliðsflokki á Skákþingi
íslands skyldi fara fram í Grundarfirði. í
þau 72 ár sem mótið hefur verið haldið,
hefur það aðeins einu sinni farið fram
utan höfuðborgarsvæðisins. Það var á
Akureyri árið 1957. En nú skyldi teflt í
Grundarfirði og þar var ekki einu sinni
hótel!
Skákmenn bjuggu í heimahúsum í þær
tvær vikur af septembermánuði sem
teflt var. Móttökur heimamanna voru
allssstaðar höfðinglegar. Það var eins
og allur bærinn legðist á eitt um að
gera skákmönnum dvölina sem
ánægjulegasta. í kjallaranum, þar sem
Sævar og Dan bjuggu, var meira að
segja búið að innrétta félagsheimili. Þar
sátu skákmenn milli umferða og sumir
horfðu á myndbönd, sem þeir máttu fá
að vild, endurgjaldslaust. Aðrir skemm-
tu sér við að spila, nema þeir gerðu
hvort tveggja í senn. í olíusjoppunni
fengu skákmenn frítt gotterí ef svo bar
undir. Það kom sér vel fyrir yngstu
meistarana, sem gátu mátað svo til
hvern sem er við skákborðið þótt þeir
væru enn á kók og prins aldrinum.
Þeir sem komnir voru til vits og ára
fengu hollt og gott fæði í hraðfrysti-
húsinu í hádeginu og kvenfélagið sá um
góðgætið á kvöldin í ómældu magni.
Þetta var keppni stórmeistara og
alþjóðlegrameistara við yngri spámenn.
Kannski var þama brúað ákveðið
kynslóða- og styrkleikabil. Það kom í
ljós á mótinu að stórmeistarastallurinn
var ekki eins traustur og þeir sem uppi
voru höfðu haldið. Hvað eftir annað
hrikti í stoðum eftir óvæntar skærur
þeirra yngri. Þannig gekk þetta frarn
eftir móti en er líða tók á, náðu
titilhafar að rétta hlut sinn og á
endanum röðuðu þeir sér í efstu sætin.
Lokastaðan varð þessi:
1. Margeir Pétursson 8 v. afll
2. -.3. Guðm. Sigurjónss. og Jóhann
Hjartarss. 7 v.
4.-6. Jón L. Árnason, Karl Þorsteins og
Þröstur Þórhallss. 6 1/2 v.
7. Hannes Hlífar Þorsteinsson 6 v.
8. Davíð Ólafsson 5 v.
9. Dan Hansson 4 1/2 v.
10. -11. Björgvin Jónsson og Sævar
Bjarnason 4 v.
12. Þröstur Árnason 1 v.
Margeir náði því sem sagt loksins að
verða Skákmeistari íslands. Það hefur
honum ekki tekist fyrr og þótti
mörguin tími til kominn. Margeir tefldi
af mesta örygginu og var búinn að
tryggja sér sigurinn er ein umferð var
til loka. Þó slapp hann ekki taplaus frá
mótinu fremur en aðrir, sem sýnir
hversu hart var barist. Davíð skellti
Góða skemmtun!
6
Skinfaxi