Skinfaxi - 01.08.1986, Qupperneq 9
Hann er hávaxinn og frekar körfuknattleiks-
mannslega vaxinn enda er hann þekktastur sem
slíkur. Þó hefur hann stundað aðrar íþróttir
með góðum árangri og orðið m.a. íslands-
meistari í blaki. Hér er átt við Torfa Magnús-
son fyrrverandi fyrirliða íslenska landsliðsins í
körfuknattleik, en hann er hættur að gefa kost
á sér í landsliðið eftir að hafa leikið 120 leiki
með því. Ég náði að spjalla stuttlega við Torfa
um íþróttaferil hans og fleira, fyrir nokkru.
Ertu fæddur og uppalinn í Reykjavík?
Nei! Ég er fæddur á Flateyri við
Önundarfjörð og ólst þar upp fram að 8
ára aldri, en þá fluttum við til
Reykjavíkur.
Byrjaðirðu að stunda íþróttir fyrir
vestan?
- Nei það var nú ekki mikið um það
svo ég man, enda engin aðstaða fyrir
hendi, þó man ég aðeins eftir að þar
voru stundaðar frjálsar íþróttir. Eftir að
ég kom hingað suður til Reykjavíkur
lærði ég að synda og var í sundi næstu
tvö árin og æfði með Ægi í einn vetur.
En hvenær byrjarðu svo að iðka
körfubolta?
- Það byrjaði nú með því að sett var
upp karfa á róluvellinum þar sem ég
átti heima og ég byrjaði á því að kasta
fótbolta í hana. Síðan Ienti ég á æfingu
hjá Körfuknattleiksfélagi Reykjavíkur
og hef stundað körfuknattleik síðan,
þetta félag var síðan gert að deild í Val.
Hvenær kemstu svo í mfl. ?
Það voru reglur þegar ég var á
þessum aldri að það mátti ekki byrja að
spila í mfl. fyrr en á ákveðnum aldri þ.e
vera kominn í 2. fl. og mig minnir að
ég hafi ekki byrjað fyrr en 17 ára, en nú
er búið að breyta þessu þannig að
aldurinn skiptir ekki neinu máli heldur
getan til að spila.
Manstu eftir fyrsta mfl. leiknum
þínum?
- Já furðulegt nokk, þá man ég eftír
honum, það var á móti ÍR í
Reykjavíkurmóti, þá þjálfað Ólafur
Thorlacíus okkur, en hann þjálfaði hjá
Val fyrstu þrjú eða fjögur árin. Ég var
mjög heppinn þarna í byrjun því ég
náði að vinna mér fast sæti í liðinu og
hef haldið því síðan þ.e. í um 13 ár. Ég
hef nú ekki nákvæma tölu á skráðum
mfl. leikjum, en þeir eru eitthvað famir
að nálgast 400, og er þetta það hæsta
hjá Val. Jú það voru eitthvað færri
leikir þegar ég byrjaði í mfl. en þeim
hefur nú ekki fjölgað svo á síðustu
árum, við náum þetta mest um 30
leikjum á ári í dag.
Hverjir voru nú aðalmennimir í
körfunni er þú varst að byrja í mfl. ?
- Það var t.d. Þórir Magnússon sem
var bestí maðurinn hjá Val í mjög
mörg ár, Kári Marísson og Stefán
Bjarkason, en þeir fóru svo í UMFN og
Kári fluttí seinna norður í Skagafjörð
og hefur þjálfað og leikið með
Tindastól, Jens bróðir minn lék einnig
með liðinu og eins Jóhannes
Magnússon senr enn leikur með
Valsliðinu. Bestu liðin á þessum árum
Skinfaxi
9