Skinfaxi - 01.08.1986, Page 10
voru KR og ÍR, en þau léku yfirleitt til
úrslita á íslands- og Reykjavíkur-
mótum. Jú það hefur mikið breyst í
körfunni á þessum tíma, hér áður fyrr
fengu einstaklingarnir að njóta sín
miklu meira en í dag, því nú er spilað
eftir ákveðnum leikkerfum þannig að
menn eru mikið bundnir við þau, og
varnarleikurinn betri þannig að
einstaklingurinn kemst ekki mikið
áfram án hjálpar.
Hvaða leikmann hefur veríð erfiðasta að
eiga við?
- Að þeim sem ég átti að passa hér
áður fyrr, gekk verst að eiga við Einar
Bollason, það var nær vonlaust. Þó
hann gæti ekkert hoppað né væri fljótur
þá hafði hann alltaf lag á að plata
mann, og hafði marga möguleika á að
skjóta. Seinustu árin hefur mér þótt
Valur Ingimundarson í UMFN
erfiðastur.
Þú byrjaðir snemma að taka þátt í
félags- og stjómunarstörfum í Val.
- Já! Ég var í fyrstu stjórn körfuknatt-
leiksdeildarinnar þá aðeins 14 ára eða
svo, og var í stjóm meira og minna
fram að því er ég fór á ÍKÍ 1978.
Hvernig fannst þér sú ákvörðun að fá
erlenda þjálfara og leikmenn í körfu-
knattieikinn hér eins og gert var fyrír
nokkrum árum?
- Mér leist bara vel á það, við höfðum
haft fram að þeim tíma frekar fáa góða
þjálfara og vonuðumst eftir að fá þá
með þessu móti. Og við hjá Val vorum
mjög heppnir þarna í byrjun, því við
fengum mjög góðan þjálfara og
leikmann líka, en það var Rick
Hockinos. Hann kenndi okkur margt
sem við kunnum ekki áður og var mjög
skemmtilegur leikmaður. Síðan fór að
fara minna fyrir þjálfarahæfileikum
þeirra er komu hingað en meira fyrir
getu á leikvellinum, þannig að þetta fór
stundum mjög illa með þjálfun hjá
ýmsum félögum. Þessir menn höfðu
t.d. alla þjálfun hjá félögunum bæði
yngri og eldri, en höfðu svo engann
áhuga né hæfileika til að þjálfa. Þetta
hafði þó þau áhrif á körfuknattleikinn
hérna að meira var fjallað um hann í
fjölmiðlum og miklu fleiri komu til að
horfa á leiki enn áður.
Hvenær leikurðu þinn fyrsta landsleik?
- Ég var fyrst valinn í landsliðið 1973,
en fyrsti leikurinn er ég spilaði var á
Norðurlandamótinu í Finnlandi 1974,
og var það aðeins ein mínúta er ég fékk
að vera með í þessum fyrsta landsleik
mínum og gerði því fátt markvert á
þessum tíma. Þess má til gamans geta
að þegar Pétur Guðmundsson lék sinn
fyrsta landsleik þá skoraði hann yfir 30
stig í leiknum. Ég hef aldrei spilað
með unglingalandsliðinu þar sem það
var ekki til þegar ég var á þeim aldri,
þannig að þeir landsleikir sem ég á eru
allir A-landsleikir og eru 120, jafn
margir og Jón Sigurðsson lék. Það var
alveg óvart að ég jafnaði við hann, því
ég var alveg ákveðinn í vor að hætta
að spila með landsliðinu, en þar sem
við komumst áfram í B riðilinn kláraði
ég þá keppni og hætti svo.
Kom aldrei til að þú færir tii
Bandaríkjanna í skóla, og gætir þá
stundað körfuboltann með?
- Nei! Það kom nú aldrei til á þessum
árum, ég hafði einhvem veginn ekki
tækifæri á því. En ég hef stundum
hugleitt að gaman hefði nú verið að
fara eitt ár út og kynnast þessu þegar
maður var á menntaskólaaldrinum, eins
og margir gera núna og hafa gott af því.
Hver er nú eftirminnilegasti þjálfarinn
sem þú hefur haft?
- Ég verð nú að segja það að það er
Einar Bollason, en hann er búinn að
vera með mér í nær öllum þessum 120
landsleikjum, bæði sem leikmaður og
þjálfari, þannig að hann hlýtur að koma
fyrstur upp í hugann. Sá sem kenndi
mér mest þegar ég var ungur var
Sigurður Helgason, en hann byrjaði að
kenna mér körfubolta,. Sigurður var
lengi formaður körfuknattleiksdeildar
Vals.
En hver er eftirminnilegasti leik-
maðurinn?
- Það er örugglega Þórir Magnússon,
hann er sá skemmtilegasti sem ég hef
leikið með því hann átti alltaf til ótal
brögð og ' gat jafnvel unnið heilu
leikina. Það var t.d. 1979 þegar við
áttum möguleika á að vinna íslands-
mótið var hann að ljúka sínum ferli
sem leikmaður. í síðasta leiknum sem
við urðum að vinna var hann ekki inná
í byrjun en var svo settur inn þegar leið
á leikinn, það skipti engum togum,
hann ætlaði sko örugglega að sjá til
þess að við ynnum leikinn og skoraði
36 stig, flest langt utanaf velli og við
urðum íslandsmeistarar. Þetta ár unnum
við þrefalt þ.e. Reykjavíkur-,
íslandsmótið og Bikarkeppnina svo
gerðum við þetta aftur 1982 og ég held
10
Skinfaxi