Skinfaxi - 01.08.1986, Síða 13
Deildarkeppnin í skák
í 1. tbl. var fjallað lítillega um Deildarkeppni Skáksambandsins, sem þá
var hálfnuð. Hér er meiningin að slá botninn í það spjall.
Lokastaðan var sem hér segir:
2. deild
1. Taflfélag Seltjarnamess B sveit 28 vinn.
2. Taflfélag Kópavogs A sveit 28
3. Taflfélag Reykjavík:ur D sveit 25.5
4. Skáksamband Austurlands 21.5
5. U.M.S.E. 20
6. Taflfélag Reykjavíkur C sveit 19.5
7. Taflfélag Sauðárkróks 13.5
8. Skákfélag Akureyrar B sveit 12
3. deild
I. -2. Skákfél. Hafnarfj. B sv. - U.S.A.H. 3.5 - 2.5
3.-4. Taflfél. R.vík. E sv. - Taflf. Vestm. 4 -2
5.-6. Skákf. Akurey. Ungl.sv. - Umf. Geisli 3 -3
7.-8. Taflfél. Hreyfils - Taflfél. Húsav. 3.5 - 2.5
9.-10. A. Barðstr. og Dalam. - Taflfél. Kópav. 4-2
II. -12. Taflfél. Garðab. B sv. - Taflfél. Stokkseyr. 6 - 0
Engin sveit frá ungmennafélögum á sæti í 1. deild enn sem komið er og
því fyrst og fremst fjallað um 2. og 3. deild.
1 2. deild raða félög af Stór-Reykjavíkursvæðinu sér í 3 efstu sætin, en
UMSE og Austfirðingar sigla lignan sjó um miðbik deildarinnar.
I 3. deild varð USAH í 2. sæti eftir að hafa unnið a riðilinn en tapaði í
úrslitum fyrir Hafnfirðingum 2,5 v. gegn 3,5 v. Umf. Geisli varð í 3.
sæti í b riðli og lenti í 5. - 6. sæti ásamt unglingasveit frá Akureyri.
Ló aðeins 3 ungmennafélög hafi sent sveitir til keppninnar að þessu sinni
er ljóst að í fjölmörgum sveitum öðrum tefla margir ungmennafélagar og
allnokkur félög/sambönd gætu sent harðsnúið lið til keppninnar ef til
^ærni.
Árið 1987 er Landsmótsár, til keppni í skák munu vonandi mæta sveitir
ffá sem flestum héraðssamböndum. Það hlýtur því að efla allt skákstarf
til muna ef ungmennafélög/ungmennafélagar tækju sig til og sendu sveitir
1 Deildarkeppnina. Þar gæfist mönnum kostur á að afla sér dýrmætrar
reynslu og þekkingar og kæmu því mun betur undirbúnir til leiks á
Landsmóti en ella.
B.D.
Hann er
19. LANDSMOT UMFl
10.-12. JÚLÍ1987
Á kynningarfundinum vegna
landsmótsins þar sem víkingur-
inn var kynntur, fannst einum
fundai-manna víkingurinn vera
ótrúlega líkur Ólafi Stephensen.
Það er kannski engin furða, því
hann er búinn til á auglýsinga-
stofu Ólafs. Einn verulegur
munur er þó á þeim, Ólafur er
með skegg en víkingurinn ekki,
að minnsta kosti ekki ennþá.
Svanur hættir
Halldóra tekur við
Svanur Ingvarsson sem verið hefur
framkvæmdastjóri HSK síðan 1. okt.
1985 lét nú nýlega af því starfi. Við
starfi hans tók Halldóra Gunnarsdóttir
úr Umf. Baldri, en hún þekkir starfið
vel í gegnum árin, er nú gjaldkeri
Umf. Baldurs, hefur kennt einn vetur,
en hún er stúdent. Skinfaxi býður
Halldóru velkomna til starfa og
þakkar Svani fyrir samstarfið og óskar
honum alls hins besta í framtíðinni.
Skinfaxi
13