Skinfaxi - 01.08.1986, Blaðsíða 15
Það er stundum sagt að þeir séu bestir
að spila úr spilunum, sem segja verst á
þau. Þetta er auðvitað ekki allskostar
rétt, en það leynist þó í því sannleiks-
korn. Því þeir sem vanir eru slæmum
samningum verða oft að leggja meira á
sig til að koma þeim heim. Slíkir
menn em meistarar í að teikna upp einu
leguna sem dugir til að sögnin vinnist
og spila svo í samræmi við það.
Lesandanum er nú boðið inn í teikni-
stofuna til að spreyta sig á tveimur
afspyrnu lélegum samningum.
Fyrst er það alslemma í spaða:
Norður
KGIO
97
K765
G743
Suður
ÁD6532
Á8
Á32
ÁK
Vestur Norður Austur Suður
- - - 2 spaða
Pass 3 spaðar Pass 7 spaðar?!
Pass Pass Pass
Stökk suðurs í 7 spaða ber vott um
mikla bjartsýni. Svar norðurs á þremur
spöðum sýndi að vísu sterkari spil en
stökk beint í fjóra spaða, en eigi að
síður var ástæðulaust að flýta sér svona
rosalega. Það hefði verið hægt að kanna
spilið nánar.
Enda er samningurinn ekki gæfulegur.
En þó ekki vonlaus. Hvernig þarf spilið
að liggja til að sagnhafi eigi
vinningsvon og hvemig á hann að
spila? Vestur spilar út hjartakóng.
Það eru 11 beinir tökuslagir. Það er
hugsanlegt að ná í tólfta slaginn á lauf
ef drottningin er blönk, önnur eða
þriðja. Þrettánda slaginn væri síðan
hægt að fría á tígul með því að kasta
tígli heima niður í laufagosann og
trompa svo tígul heim. Til þess þarf
liturinn auðvitað að skiptast 3-3. Og
trompið verður helst að vera 2-2, nema
Að melda illa
og spila vel
þríliturinn sé á þeirri hendi sem er
lengri í laufinu. Spilið þarf sem sagt að
liggja býsna vel - svo vel, að
fyrirframlíkur á að það vinnist+ eru
einungis í kringum 8%.
En það er þó þess virði að spila upp á
leguna.
Norður
KGIO
97
K765
G743
Vestur Austur
74 98
KD106 G5432
G109 D84
10965 D82
Suður
ÁD6532
Á8
Á32
ÁK
Hjartakóngur er drepinn með ás og ÁK
í laufi spilað. Síðan er farið inn í
blindan á tromp og lauf trompað.
Drottningin dettur og sagnhafi er enn
lifandi.
Næsta skrefið er að taka eitt tromp í
viðbót. Það fellur 2-2 og nú fer heldur
að vænkast hagur Strympu. Tígli er
næst kastað niður í laufagosann og
síðan er ás og kóngur tekinn og tígull
trompaður heima. Liturinn brotnar eins
og best verður á kosið og nú er ekki
annað eftir en að fara inn í blindan á
tromp, taka þrettánda tígulinn og henda
hjartataparanum heima og njóta
fýlusvipsins á andstæðingnum.
Stundum eru samningar svo slæmir að
það er ekki einu sinni hægt að teikna
upp neina legu sem dugir til vinnings.
Þá verður að grípa til kænskunnar, því
ekki dugir að gefast upp. Hér er
skemmtilegt dæmi. í aðalhlutverki er
frægur breskur spilari í eina tíð, Adam
Meredith, kallaður Plóman meðal vina.
Hann gerði klúbbspilamennsku að
ævistarfi sínu, og gat sér orð sem
frábær spilari, sem skorti þó aga í
sögnum. Hann lést árið 1976.
Norður
Á86
ÁKG3
ÁG84
G6
Vestur Austur
K742 D1093
D109 854
752 KDIO
Á84 1053
Suður
G5
762
Vcstur Norður Austur Suður
- - Pass Pass
Pass 1 hjarta Pass 1 grand
Pass 3 grönd Pass Pass
Pass
Plóman sat í suður og gerði svo sem
ekkert af sér í sögnum í þessu spili. En
samningurinn er vondur vegna
innkomuleysisins á suðurhöndina, og
ekki batnaði hann þegar vestur spilaði
út litlum spaða.
Meredith sá að spilið var vonlaust nema
hægt væri að tæla andstæðingana til að
drepa strax á laufaásinn. En hvemig í
ósköpunum átd að fara að því. Sérð þú
það?
Plóman fékk snjalla hugmynd. Fyrsti
slagurinn var drepinn á spaðaás og
laufgosa spilað og kóngnum stungið
upp heima!! Með þessu vildi Meredith
læða þeirri hugmynd inn í höfuð
andstæðinganna að spaðinn væri opinn
upp á Qóra tapslagi og hann væri að
reyna að stela sér níunda slagnum.
Brellan tókst fullkomlega. Vestur drap
strax á ásinn og spilaði spaða. Vömin
tók þrjá slagi og réðist svo á tígulinn.
Meredith drap ás, spilaði laufi og
svínaði níunni! Þannig fékk hann fjóra
slagi á lauf og þann níunda til að vinna
spilið með því að svína hjartagosanum.
Hreinasta snilld.
Skinfaxi
15