Skinfaxi - 01.08.1986, Qupperneq 16
m
KARATE
Grein: Stefán Alfreðsson
Með þessari grein fer af stað
greinaflokkur er saman stendur af
fjórum greinum. í þessari grein er farið
á hundavaði yfir sögu karate. Þá er
reynt að varpa ljósi á það hvað karate er
eða getur verið.
í næstu greinum eru svo tekin fyrir
afmarkaðari svið innan karate.
Rekja má sögu karate árþúsundir aftur í
tímann, frá Indlandi um Kína og
Okinawa til Japans. Saga nútíma karate
má þó segja að hefjist ekki fyrr en í
Japan um 1920. Þá var Okinawa-
búanum, Gishin Funakosi, boðið til
Tokyo til að sýna karate. Hann hlaut
góðar viðtökur og ílengdist þar til
æviloka. Hann átti síðan eftir að leggja
grunninn að shotokan stíltegundinni.
Fleiri meistarar áttu eftir að leggja leið
sína til Japans m.a. Chojun Miyaki,
en hann lagði grunninn að goju ryu.
Heimildir herma að það hafi verið
fyrsti kerfisbundni karatestíllinn.
Fleiri meistarar koma við sögu en
þessir em nefndir til vegna þess að
þessi afbrigði karate eru bæði stunduð
hér á landi.
Þeir sem lögðu stærstan skerf til
þróunar nútíma karate vom þó
nemendur þessara meistara. Gogen
Yamaguchi (goju) þróaði aðferð til að
berjast með höndum og fótum án þess
að skaða andstæðinginn (jiyu-kumite).
Masatoschi Nakayama (shotokan) lagði
til fyrstu keppnisreglur fyrir karate og
var fyrsta Japansmeistaramótið haldið
1957.
Af þessu má sjá að karate er tiltölulega
ung íþrótt. Síðan þetta mót var haldið
hefur mikið vatn runnið til sjávar.
Fyrsta Evrópumótið var haldið tíu árum
síðar (1966). Árið 1970 var "World
Union og Karatedo Organizations"
(WUKO) stofnað og jafnframt fyrsta
heimsmeistaramótið haldið. Haldin hafa
verið 7 HM og voru keppendur á því
síðasta um 1000 frá meira en 40
þjóðlöndum.
Frændur okkar í Skandinavíu eru mjög
framarlega í karateíþróttinni og blanda
sér í toppbaráttuna. Karate hefur nú
hlotið æðstu viðurkenningu sem hægt
er að fá í íþróttum, þ.e.a.s. Alþjóða
Ólympíunefndin hefur samþykkt að
karate verði ein af keppnisgreinum á
ÓL 1992.
Fyrstu sögur um iðkun karate á íslandi
eru frá 1970. Þrem árum síðar er
Karatefélag Reykjavíkur stofnað og
hafði karate íþróttin þar með skotið
rótum á íslandi. Á þessum tíma voru
vinsældir karate alveg gífurlegar.
Fljótlega spruttu upp fleiri félög. Þótt
uppgangurinn væri mikill þá var varla
hægt að tala um grósku mikið starf.
Félög voru stofnuð og síðan var bara
æft og æft. Þó voru haldin 2-3 mót til
ársins 1980. Þá hafði færst mikil deyfð
yfir alla starfsemina. En um sumarið
1980 fóm nokkrir kappar í ferð til
Japans, þar sem þeir voru allir prófaðir
til shodan (svart belti). Eftir það
hleypur gróska í starfsemi félaganna.
Erlendirþjálfarar urðu árviss viðburður,
regla fór að færast yfir mótshald og
fjölbreyttnin jókst.
Eitt stærsta framfara skrefið í
uppbyggingu kai'ate á íslandi var stigið
28. febrúar 1985. Þá var stofanað
Karatesamband íslands (KAÍ). Alls eru
nú um 900 karateiðkendur og fer
fjölgandi, innan meira en 10 félaga.
KAÍ stendur fyrir íslandsmóti árlega og
sýnir það sig að töluverð breidd er
meðal félaganna því verðlaunahafar eru
frá mögrum félögum. Auk þess eru
mót milli einstakra félaga, héraðsmót
o.fl. Keppendur frá íslandi hafa heiðrað
Norðurlandamótim með þátttöku sinni
frá 1982 með sæmilegum árangri. KAÍ
réðist í það stórvirki, strax á fyrsta
starfsári sínu, að halda NM í
Reykjavík. Gekk það vonum framar,
bæði hvað varðar framkvæmd og
árangur. Hlutu íslendingar 1 silfur og 3
brons. Þá hefur KAÍ tvisvar sent kepp-
endur á Evrópumótið með góðum
árangri. Þar hefur Árni Einarsson náð
þeim frábæra árangri að verða í 10.
sæti í kata. Achillesarhæll karate-
íþróttarinnar er dómaraskortur. Þar
ræður mestu að fyrsta kynslóðin í
karate er varla búin að slíta
barnskónum, þ.e. hún er enn virk sem
keppendur.
Á dagskrá KAÍ fram að áramótum eru
a.m.k. 5 mót sem hafa öðlast fastan
sess auk tveggja landskeppna.
Hvað er karate?
Hvað er karate? íþrótt, sjálfsvarnarlist,
heimspeki, lífstíll, hnefaleikar, líkams-
rækt, hugleiðslukerfi. Þannig mætti
lengi telja.
Karate er iðkað með ýmisleg markmið í
huga. Sumir æfa með keppni í huga,
margir til að læra að verja sig, aðrir
sem heimspeki og enn aðrir sem
líkamsrækt.
Karate þýðir "tóm hönd". Aftan við er
gjarnan bætt við do (karate do) sem
þýðirr vegur eða leið. Útkoman er því
leið tómu handarinnar. Funakosi
útskýrði "tómleikan" með þessum
orðum: "Eins og spegill speglar það
sem fyrir framan hann stendur og
hljóður dalur bergmálar jafnvel hið
minnsta hljóð, verður nemandi í karate
Fyrstu iðkendur karate á íslandi. Reynir Santos stjórnaði æfingunum. Á myndinni
má þekkja Hannes, Ásgeir Hannes, Andrés, Gulla og fl.
16
Skinfaxi