Skinfaxi - 01.08.1986, Page 20
Bikarkeppni FRÍ 1. deild
Texti: Einar Gunnarsson
Bikarkeppni FRÍ 1. deild fór fram
helgina 9. -10. ágúst á Fögruvöllum.
Þátttökuliðin voru KR, ÍR, Ármann,
FH, HSK og UMSK. UMSK og KR
er komu upp úr 2. deild '85 og tóku
sæti UÍA og UMSE.
Það er jafnan svo, að fyrir svonakeppni
gerast margir spámenn og eins vil það
oft fara þannig að spádómamir verði
jafn misjafnir að gæðum og upplagi
eins og höfundar þeirra. Menn voru þó
yfirleitt sammála um að ÍR yrði í
toppbaráttunni eins og jafnan síðan
1972 en töldu þó að meira yrði að þeim
vegið heldur en oft áður. Einnig var
ljóst að liðin í deildinni voru mun
jafnari en áður og því myndi baráttan
um að lenda ekki í fallsætunum
tveimur verða hörð og tvísýn.
Strax á fyrsta degi keppninnar tóku
línur strax að skýrast nokkuð. Ljóst
var að batáttan yrði mjög erfið fyrir
Ármenninga, því vegna meiðsla gátu
þeir ekki mætt með sitt sterkasta lið.
Fljótlega tók síðan lið UMSK að koma
sjálfum sér og öðrum á óvart, en þau
náðu forystu um miðjan fyrri dag. Þó
var talið að róðurinn mundi verða þeim
erfiðari seinni daginn. Á seinni degi
keppninnar skáru lið KR og ÍR sig
fljótlega nokkuð úr hópnum og virtist
stefna þar í hörkubaráttu um Bikar-
meistaratitilinn sem önnur lið gætu
ekki blandað sér í. Þó varð reyndin sú
að undir lok keppninnar var UMSK
komið fast að hæla KR og ÍR að
stigum. Fyrir seinustu grein voru KR-
ingar komnir með aðra hönd á bikar-
inn. Þeir voru þá með 2,5 stiga forystu
á ÍR. Seinasta grein var 1000 m.
boðhlaup kvenna. UMSK-sveitin náði
fljótt forystu í því hlaupi þannig að
ljóst var að KR-sveitinni ætti að nægja
4. sætið til að KR hreppti bikarinn.
En forlögin virtust ekki hafa ætlað sér
að láta ÍR tapa bikamum í hendur KR-
inga, því KR-sveitin gerði ógilt. Þar
með heimti ÍR bikarmeistatitilinn 15.
árið í röð. Með þessu óhappi KR-inga
gerðist það og að UMSK skaust upp í
2. sætið í deildinni. Að þessu sinni
féllu FH og Ármann. Þessi lið hafa
áður sýnt það að þau ætla sér ekki að
ílendast í 2. deild, og er
ég viss um að þar er engin breyting
orðin á. HSK liðið sigldi lygnan sjó
um miðbik deildarinnar. Þeirra styrkur
er geysileg liðsbreidd en þá vantar
tilfinnanlega fleiri "toppmanneskjur" í
hóp með Vésteini og Þórdísi. Ef þeirra
efnilegu unglingar leggja hart að sér við
æfingar í vetur, verður HSK örugglega
nær bikarmeistaratitli á næsta ári.
Að lokinni keppni má ýmislegt um
hana segja. Langt er síðan jafn spenn-
andi Bikarkeppni hefur farið fram og er
vonandi að þessi keppni eigi eftir að
batna á komandi árum. Ýmislegt má
þó gagnrýna og færa til betri vegar.
Við skulum ekki eyða hér miklu plássi
til að agnúast út í völlinn. Hann má
afgreiða með einu orði, "ónýtur".
Annað vandamál kom þama í ljós og
þarf að laga það hið fyrsta. Það er
dómgæslan. Ekki er nóg að FRÍ eigi
fróða menn í laganefnd heldur þarf líka
að mennta fleiri dómara og ekki síst að
endurmennta gamla dómara. Keppnis-
reglur taka sífelldum breytingum sem
oft getur verið erfitt að henda reiður á
og auk þess vitum við öll að ekki veitir
af að rifja öðru hvoru upp það sem áður
er lært. Nokkur leiðindaatvik komu upp
varðandi dómgæsluna á mótinu og setur
ljóta bletti á keppni sem þessa, ef þarf
að útkljá hana utan vallar. Sjaldnast er
þó vænlegt til árangurs að velta sér upp
úr gömlum atvikum, en heilladrýgra að
taka vel á þessum málum næsta ár.
Á næsta ári er Landsmót UMFÍ.
Yfirleitt kemur uppsveifla í fijálsar
íþrótdr úti á lands-byggðinni á
landsmótsárinu. Þessi uppsveifla hefur
komið ári fyrr núna og geta nú
ungmennafélagsmenn glaðst yfir því að
á næsta ári verða 4 af 6 þátttökuliðum í
Bikarkeppni FRÍ 1. deild úr
ungmennafélagshreyfinguni.
Einar Gunnarsson
Hér á næstu síðu eru úrslitin í
Bikarkeppni FRÍí 1. deild.
20
Skinfaxi