Skinfaxi - 01.08.1986, Blaðsíða 27
Félagsmálanámskeið í
Svarfaðardal
Dagana 4.-6. apríl s.l. efndi Umf.
Þorsteinn Svörfuður til félagsmála-
námskeiðs fyrir félagsmenn sína. Það
var Óskar Gunnarsson Dæli, formaður
félagsins sem hafði forgöngu um að
hressa uppá félagsandann og samstöðu-
na með smá upprifjun á námskeiði.
Kennari á námskeiðinu var Sigurður
Geirdal fyrrverandi framkvæmdastjóri
UMFÍ, en hann var einmitt kennari á
félagsmálanámskeiði á sama stað fyrir
10 árum síðan og raunar voru þarna
mættir þrír sem það námskeið sóttu.
Að vanda var þarna farið yfir ýmsa
undirstöðuþætti í stjórnun félaga og
almennum félagsstörfum, ræðu-
mennsku, fundarstjóm, stofnun og lög
félaga. Þama voru margar ræður fluttar
og góðar. í heild var námskeiðið líflegt
og skemmtilegt, enda sambland af
reyndum félagsmálamönnum og konum
og efnilegu ungu fólki. Alls voru
þátttakendur 23.
Umf. Þorsteinn Svörfuður er traust og
gróið félag með um 70 félaga sem iðka
m.a. sund, frjálsar íþróttir, borðtennis,
knattspyrnu auk vetraríþrótta og einnig
er hestamennska vinsæl hjá félags-
mönnum. íþróttaaðstaðan verður þó að
teljast slæm á félagssvæðinu, nema
etv. sundaðstaðan.
Skinfaxi átti að skila bestu kveðjum til
þátttakenda frá kennaranum sem lýsti
sig reiðubúinn til að endurtaka leikinn
við hentugt tækifæri.
Arsþing HSS
Vísa
Á þingi ÍSÍ varð eftirfarandi vísa
til vegna prentvillu í ársskýrslu
íslenskra getrauna, en í stað þess
að standa Efnahagsreikningur
stóð Efnagagnsreikningur.
Efnagagnið ekki dvin
og ekki vil ég letja
ÍSÍ stjóm - svona uppá grín
ársskýrslu að fletja.
Ársþing HSS var haldið að
Finnbogastöðum í Árneshreppi
laugardaginn 13. sept. s.l. Þingið
var frekar illa sótt miðað við
undanfarin ár, en nú mættu
aðeins 15 manns. í ljós kom að
nokkur deyfð hefur verið í starfi
sambandsins á liðnu ári, en
enginn framkvæmdastjóri var nú í
sumar. Þá féll sundmótið niður
nú í sumar en stefnt er að því að
halda það næsta sumar og gaf
UMFÍ bikar fyrir þetta mót.
Magnús Bragason sem verið
hefur formaður HSS undanfarin
ár gaf ekki kost á sér aftur og var
Rögnvaldur Gíslason kosinn
formaður. Frá UMFÍ mættu á
þingið Pálmi Gíslason form.
SigurðurÞorsteinssonframkvæm-
dastjóri og Guðmundur Gíslason
ritstjóri Skinfaxa.
Skinfaxi
27