Skinfaxi

Årgang

Skinfaxi - 01.02.1989, Side 7

Skinfaxi - 01.02.1989, Side 7
Molar Einar átti athyglina óskipta. Einar í Grafarvogi Einar Vilhjálmsson er nú kominn til Bandaríkjanna á ný með titilinn /þróttamaður ársins í farteskinu, til framhaldsnáms og æfinga. Nokkrum dögum áður en hann fór gaf hann sér samt tíma til að heilsa upp á skólakrakka í Grunnskólanum í Grafarvogi. Einar sagði frá sínum högum og fyrirætlunum og hvað hann hefði nú aðhafst til að ná þangað sem hann er nú. Frjálsíþróttaáhugi er geysi mikill hjá Fjölni í Grafarvogi og æfa yfir 100 krakkar á vegum félagsins nú í vetur. Heimsókn Einars var því vel þegin. Hreinsunarátak UMFÍ Einar tók auðvitað góða stund í eiginhandar- áritanir. Teygja, teygja °g teygja. Fimleika- cefing hjá Sindra. Fimleikar á Hornafiröi Undanfarin þrjú ár hafa 4-12 ára stúlkur stundað fimleika hjá ungmennafélaginu Sindra á Hornafirði. Fimleikarhafaundanfarin ár fyrst og fremst verið stundaðir í Reykjavík að einhverju ráði en þetta breytisthratt. Þaðeru íþróttakennarar á Höfn, þær Agústína Halldórsdóttir og Jóhanna Stefánsdóttir senr hafa séð um þjálfun. Mikill tími hefur farið í fjáraflanir þar sem tekjur eru aðeins 50 krónur í æfingagjald og 15 þúsund krónur á ári úr lottósjóði Sindra Fimleikadeildin hefur nú fest kaup á jafnvægissláog tvísláfyrirsöfnunarfé og sjálfsagt verða hornfirskar fimleikastúlkur mættar í Mosfellsbæ á Landsmót eftir rúmt ár. Stjórnarfundur Ungmennafélags Islands var haldinn í Þjónustumiðstöð UMFÍ að Vesturgötul4 í Reykjavík um síðustu helgi (27. og 28. janúar). Þar var m.a. samþykkt að framkvæma sérstakt átak um hreins- un meðfram vegum landsins um allt land helgina 10. -11. júní í sumar. Ungmennafélag íslands mun skipuleggja þetta hreinsunarátak sem verður á vegum ungmennafélaganna. Hugmyndin er að hvert félag hreinsi meðfram vegum á sínu svæði. Hvert félag hreinsi a.m.k. 15 til 20 km. svæði. Markmiðið verði að hreinsa sem nemur 5.000 km vegalengd. Fyrirhugað er að setja á stofn sérstakarnefndirum þettamálíhverju héraði landsins. Leitað verður eftir samvinnu við bæjarstjórnir, sveitarstjórnir og Vegagerð ríkisins. UMFÍ mun á næstunni skipa landsnefnd um þettaátak og sérstakan starfsmann til verkefnisins. Skinfaxi 7

x

Skinfaxi

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.