Skinfaxi

Ukioqatigiit

Skinfaxi - 01.02.1989, Qupperneq 9

Skinfaxi - 01.02.1989, Qupperneq 9
Knattspyrna „ Það finnast þess all mörg dæmi að þetta heyrist frá þjált'urum á varamannabekkjum og margir geta vitnað um það. Að þjálfarar leggi jafnvel að mönnum sínum með óbeinu orðalagi að ganga þannig frá andstæðingi sínum að hann verði að fara út af á sjúkrabörum! En hvemig er þetta til komið? Er keppnin orðin svona hörð að eitt af þeim ráðum sem reynast þjálfurum best sé þetta. Ekki nýtt vandamál Þeir sem Skinfaxi hefur rætt við um þetta mál em nú flestir á því að þetta sé ekki nýtt vandamál. En það er til staðar og hefur ekki minnkað í áranna rás. í gegnum tíðina hafa menn ekki velt því fyrir sér hvaða áhrif þetta hefur á upprennandi kynslóð fólks sem er að miklu leyti alið upp á íþróttaæfingum. Það gera menn hins vegar í dag. Og spyrja ágengari spuminga í þessa átt. Hvers vegna er ástandið svona? Eitt svarið í dag er það að nú liggur svo mikið við. Það er baráttan um að vinna titla, að komast upp í næstu deild, að falla ekki um deild. Inni í dæminu eru miklir fjárhagslegir hagsmunir. Þegar öllu er á botninn hvolft verður niður- staðan sú að í hita leiksins er oft öll- um brögðum beitt. Eittdæmierrakið hér á síðunni í viðtali við knatt- spymumann. Hann býr við það að vera í liði sem er í krappri stöðu. Fyrir einn leik segir þjálfarinn við varnarmanneitthvaðáþessaleið. Það er einn leikmaður hjá þeim sem er að ná sér í löppinni. Þú sérð um hann.! Þetta er öfgakennt dæmi og gerist kannski ekki á hverjum degi en það gerist samt sem áður og er staðreynd sem ekki verður litið fram hjá. Þaðer staðreynd að þjálfari leggur það að sínum mönnum að slasa mann sem er veikur fyrir vegna meiðsla. Aö komast upp með þaö Hver er ástæðan fyrir því að svona hugsunarháttur fyrirfinnst. Sumir segja kannski að menn séu misjafnir og erfitt sé að eiga við svona villimennsku í einstaka tilfellum. En aðrir segja að þessi tilhneiging komi Ég varð fyrir þeirri hroðalegu reynslu að láta hafa míg út í að negla mann niður að ósk þjálfara, „taka fyrir” ákveðinn sóknarmann hjá andstæðingunum vegnaþess aðhann væri veikurfyrir íökkla. Nú man ég ekki hvort umræddur leikmaður var nýkominn af spítala eða eitthvað í þá áttina en í það minnsta var hann veikur fyrir í ökkla og þá gaf þjálfarinn fyrirskipun um að hann skyldi „tekinn fyrir" Þetta er hlutur sem er óskaplega niðurdrepandi. Ég upplifði þetta síðar þannig að ég væri að standa sjálfan mig að verki við glæp. Sá sem talar er leikmaður með liði sem hefur verið í harðri 1. deildarkeppni, Hann vill ekkí láta nafns síns eða annarra getið til að valda ekki sárindum. „En ekki aðeins vegna mögulegra sárinda”, segir h;mn. „Líka vegna þess að þegar farið er að ræða svona alvarlegtmál ápersónulegum gmnni fer öll umræðaog von um að hlutimir batni út í veður og vind.” .Einn félaga minna fékk svipuð fyrirmæli frá þjálfaranum. Við vorum að leika á móti liði sem var með veikan framherja, hann var slæmur í löppinni. Þjálfarinn ýjaði að því að þessu án þess að segja það hreint út. En við vissum auðvitað hvað hann var að fara. Með því að tala ekki hreint út heldur ýja að einhverjum hlut þá setur hann náttúrulega sinn Jeikmanu undir miklapressu. „Hvaðþýðirþaðþegar þjálfari segir sínum manni að taka einn andstæðinginn „fyrir ’ vegna þess að hann er veikur í löppinni? Það þýðir auðvitað aðeins eitt. Það á að stöðva hann meðöllum tiltækum ráðum. Þessi þjálfari talaði líka um að við skyldum sko ekki vera að hugsa um nein prúðmennsku- verðlaun og ef við fengjum ekki að minnsta kosti tvö, þrjú gul spjöld í leiknum fengjum við að heyra það. Þetta dæmi um þjálfara erkannski svolítið öfgakennt. Eða hvað? í liðinu hjá mér var maður sem var alltaf að drepast í hnénu. Það var einfaldlega vegna þess að hann var alltaf á fá spörk í hnéð. Hann var hreinlega „negldur” eins og það er kallað. Það er eitt að verða harður eða að vera tuddi. Og það er allt of mikið afþessu grófatuddahugarfari. Þegar svona tuddahugarfar er fyrir hendi breytist ekkert fyrr en dómarinn segir stopp með rauðu spjaldi; „þú kemst ekki upp með svonaspilamennskugóði”, Þjálfarar eins og sá fyrrnefndi, segja sínum mönnum alltaf að ganga eins langt ogdómarinnleyfir. Ogefdómarinn segir ekki annað en gult spjald við „neglingu” (að sparka mann niður utan vítateigs) þá eru menn negldir. Svo þarf auðvitað meira en að dómarinn segi stopp. En það er kannski fyrsta skrefið í jákvæðri þróun. Ef dómarar sýna staðfestu í þessu verður það kannski til þess að þessir þjálfarar sem leggja meiri áherslu á tuddamennsku en að ieika knattspymu, þeir komast ekkert áfram oghættaeðataka breytingum, Og leikmennimir em neyddir til að endurskoða hugarfar sitt í þessum efnum. Dómaramir gera þetta ekki einir þó þeir séu mikilvægir. Svoer reyndar annað sem er einna alvarlegast í þessu máli. Ég hef orðið vitni að því að þjálfari í yngri flokki væri að hvetja sína menn til að sparka bara andstæðinginn niður. Þegar þetta er að byrja í 4. eða 5. fiokki þá er ástandið alvarlegt.. Þetta er kannski einhver vítahringur líka, ungir leikmenn læra þetta af þeim eldri. Það er spuming hvaða ábyrgð forráðamenn félaga bera sem ráða þessa þjálfara. Auðvitað er geta forráðamenn komiðívegfyrírsvonalagað. Þeirra er einnig ábyrgðin " 1H Skinfaxi 9

x

Skinfaxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.