Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1989, Síða 10

Skinfaxi - 01.02.1989, Síða 10
Knattspyrna Guðmundur Steinsson hefur oft lent í því að vera sparkaður niður. Dœmigerð aðstaða fyrir sóknarmann. Ljósm. KGA. Morgunblaðið. upp vegna þess að það er hægt að komast upp með það. Vamarmaður getur forðað víti með því að sparka niður mann sem hann er búinn að missa inn fyrir sig, áðuren hann kemst inn í vítateig. Og þjálfari sér að menn hans geta komist upp með að sparka menn út af vellinum, fá gult. Anton Bjamason, lektor í íþróttafræðum og með margháttaða reynslu úr íslenskri knattspymum segir að það eina sem geti komið í veg fyrir að hlutir sem þessir gerist sé að taka hart á þessum málum. „Þegar leikmaður sparkar andstæðing niður og flautað er á það brot á einfaldlega að sýna rauða spjaldið”, segir Anton. „Brottrekstur. Dómarar verða að taka Hvað segir dómarinn um þetta mál. Skinfaxi ræddi við Stein Guðmundsson, margreyndan dómara sem hættur er að dæma en sítur í dómaranefnd KSÍ og hefur því mikið með þessi mál að gera „Sjáðu til, reglumar eru alveg ljósar hvað þessi ásetoingsbrot varðar”, segir Steinn. „Hvenær á að veita áminníngu, gult spjald eða rautt. Við emm að tala fyrst og fremst um þessí spörk aftan frá. Þegar varnarmaður rennir sér aftan að sóknarmanni sem er kominn inn fyrir vömina með boltann en ekki kominn ínn í teiginn og sparkar hann niður. Menn eru bornir út af jafnvel stórslasaðir en sá sem olli slysinu er enn inni á, með eitt gult spjald. Fölska eöa hugsunarleysi! Þegar svona nokkuð gerist getur það verið þrenns konar, svona í grófum dráttum. Annað hvort er þetta hugsunarleysi, hrein og bein fólska eða að vamarmaðurinn ætlar að reyna að ná boltanum en það er ijóst að hann á enga möguleika á því. Þegar sóknarmaðurinn er við sér Steinn Guðmundsson, fyrr- verandi dómari, nú í stjórn dómaramfndar KSÍ. felldur gróflega aftan fráer það hiklaus brottrekstur, Rauða spjaldíð, það er engin spurning. Þetta mál höfum við rætt marg oft á árlegum dómararáðstefnum í aprfl, áður en leiktímabilið hefst. Þá fá dómarar tilmæli um að taka hart á þessu, fara stíft eftir reglunum. Við komum þá alltaf að því sama, að stöðva grófan leik. Þetta mál verður alltaf fyrirferðarmestáokkarfundum. Síðan er það spurningin, þorir dómarinn að fara eftir þessum reglum? Er hann linur. Þvf miður verður allt of oft mísbrestur á þessu. Við erum bara ntannlegir. Ástæðan fyrirþví að ekkert breytist með þessi grófu brot sem oft orsaka meiðsli, er fyrst og síðast sú að dómarar taka ekki nógu hart á þessu. Ég sit í dóntaranefnd KSÍ og þar erutn við að ræða þetta mál og það verður tekiö á þessu með nýjum hætti í ár. Ég get auðvitað ekki farið að úttala mig um það hér og nú en það verður gert. Dómararáðstefnan verður í apríl eins og alltaf og það verður að taka almennilega á þessu. Þetla eru ekki erfiðustu brotin að dæma. Þetta er fyrst og fremst hjá dómaranum að lagfæra.” Eins og dómarinn leyfir Þegar Steinn er spurður að því hvort þjálfarar leggi það stundum upp að koma ákveðnum and- stæðingi útafsvararhann. „Þjálfar- inn segir oft við sína menn að þeir skuli gangaeins langt ogdómarinn leyfír. Þetta cr kannski ekki almennt en það gerist. Ég hef heyrt þetta og ég skal viðurkenna að ég hef sagt þetta sjálfur sem þjálfari. En að ætla sér að meiða andstæðinginnerannaðmál. Það er sitt hvað harka og harka, sjáðu lil. Það ereitt að berjast um knöttinn og annað að beíta fólskubrögðum. En ég er fullviss um að þegar dómarar sameinast um að reka menn alltaf út af fyrir þessi brot þá hverfur þessi ófögnuður úr knattspyrnunni.”, sagði Steinn að lokum. IH 10 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.