Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.02.1989, Síða 28

Skinfaxi - 01.02.1989, Síða 28
Karate SjilþaáS w I Rætt við nýjan landsliðsþjálfara f karate, Gerry Flemming „Það vantar svo til alla samkeppni fyrir landsliðsmenn í karate hér á landi, segir Flemming, nýrlandsliðsþjálfari í karate. Skinfaxi náði tali af honum eftir hádegisæfingu í húsnæði karate- félagsins Þórshamars í Skipholti í janúarmánuði. Flemming hefur nokkrum sinnum komið hingað til lands til þjálfunar og þekkir því orðið nokkuð til íslenskra karatemanna. Sem keppnismaður á Flemming góðan árangur að baki. Hann varð heimsmeistari með bresku sveitinni (Almennttalin súbestaíheimi) 1984, '86 og '88. Þá varð hann Evrópumeistari 1987 með skosku sveitinni. Þeir efnilegu hætta Flemming segir að sjálfsagt megi finna ýmsar ástæður fyrir þessari litlu samkeppni um landsliðssætin, „Fólksfæð til dæmis. Þrátt fyrir þetta hef ég alltaf séð nokkra framför í þau skipti sem ég hef komið hingað undanfarin ár. Og ég er í raun alltaf jafn hrifinn af þeim fjölda sem kemur á æfingar. En um leið er dálítið dapurlegt að sjá hversu margir efnilegir hætta. Þegar ég kom hér fyrst var ég mjög undrandi að sjá allan efniviðinn hér á landi. En.svo þegar ég kom næst hingað til lands voru kannskiyfir90% þessaefnilegakarate fólks hætt að æfa. Þetta gerist reyndar víðaren hérálandi. Egþekki þettafrá þjálfarastörfum mínum á Gerry Flemming. „Fhmgrið í sigur", segir hann afskaplega mikilvœgt. Bretlandseyjum. En í nóvember næstkomandi, fyrir Norðurlandamótið, vil ég gjarnan sjá nokkra unga og efnilega menn banka á dyr landsliðsins. Ef ég sé einhver merkiþessaðeinhverjiraðrirséufærir í landsliðsklassa, nota ég þá. Eg er ekki mikið fyrir að nota alltaf sömu mennina í landsliðið ef fleiri koma til greina í 5 manna hópinn Pressa á landsliðsmenn Það verður að vera einh ver pressa á landsliðsmönnum. Þeir mega aldrei taka sæti sitt sem sjálfsagðan hlut. Slíktmyndi þýðastöðnun. En þettaer undir karatemönnunum sjálfum komið. Menn verða að gera sér grein fyrir þessu. Ég tek engan sérstakan framyfiraðra. Þettaereinfalt. Efþeir standa sig vel, eru vel á sig komnir líkamlega og ekki síður andlega, eiga þeir möguleika á landsliðssæti. Svo vildi ég sjámun fleiri á æfingum héma. Eins og við sögðum áðan er fámenni hérmiðað viðmilljónaþjóðirnarenég vildi hafa svona 100 manns til að velja úr. Það er viðkunnanlegt vandamál. Sjálfstraustið í þessu sambandi er íslenskum karatemönnum hollt að líta til skoska landsliðsins. Þar eru ekki jafn margir iðkendur og hér. Við höfum ekki fengið neina aðstoð, við vorum ekkert styrktir. En við höfum orðið Evrópumeistarar þrisvar sinnum. Síðast var það í Glasgow, 1986. Þá unnum við Frakka í úrslitunum. Þeir höfðu verið í úrslitum á Heimsmeistaramótinu stuttu áður. Stóra-Bretland er besta liðið en í Evrópukeppninni klofnarþað. Skotar senda sér, Wales sér, N-Irland sér lið. Þeir hafa allt til alls, Frakkarnir. Sérstaka lækna, sjúkraþjálfara, nuddara. Allt sem til þarf. En við Skotarnir sem þurftum jafnvel stundum að skiptast á búningum, við unnum þá. Það sem ég er að reyna að segja er að við höfðum sjálfstraustið og metnaðinn. Hungrið í sigur. Og það sem mér finnst einkenna dálítið menn hér á landi. Það er borin of mikil virðing fyrir andstæðingnum, virðing sem verðuraðminnimáttarkennd. Það á auðvitað ekki að líta niður á andstæðinginn en það má heldur ekk i 28 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.