Skinfaxi - 01.02.1989, Side 31
áhugavert. Ég vil sjákrakkakomainn
á æfingar 10 til 12 ára með mikinn
áhuga og vera þá ekki orðin leið á
sundi 18 ára. Þáhafa
þeir aðeins verið á
æfingum í 6 til 7 ár.
Það er nokkuð
mikið fyrir 18 ára
krakka. Sund-
íþróttin missir
mikið af 12, 13, og
14 ára krökkum.
Þau hafa þá fengið
nóg við núverandi
skipulag.
Þá er einnig
annað sem við
þurfumaðgera. Það
er breyta aldurs-
mörkum hjá sund-
fólki í keppni. Nú
taka allt niður í 10
ára börn þátt í
Islandsmóti og það er allt of lágur
alduraðmínumati. Ég tel að það eigi
að hækka þessi aldursmörk í 12 ára
aldur. Þannig losna ungir krakkar við
þann þrýsting sem keppni fylgir.
Keppni er af hinu góða en aðeins á
réttumaldri. Þaðerofmikiðálag á 10
ára barn að taka þátt í íslandsmóti.
Það hefur of oft neikvæðar afleið-
ingar fyrir 10 ára krakka að tapa og
tapa oft. Það er aðeins einn sem
vinnur í hvert sinn.
Cawley hefur ferðast nokkuð um
landið frá því hann tók við
landsliðsþjálfun. Hann er búinn að
fara til Vestfjarða, um Norðurland til
Mývatnssveitar og út í
Vestmannaeyjar.
Ein heimsókn í viku
„Ég á enn eftir að fara austur til
Neskaupsstaðar, þar æfa þeir f.f. á
sumrin. Svo á ég eftir að fara um
Suðurlandið og í nokkur félög í
Reykjavík og nágrenni. Ég á t.d. eftir
aðheimsækja Akumesinga. Égstefni
að því að fara í eina heimsókn í hverri
viku. En veðrið setur strik í þessar
áætlanir”, segir Cawley og bendir út í
hríðina utan við gluggann.
Cawley segist hafa byggt hugmyndir
sínar að nokkru leyti af þessum
ferðum. „Nú hef ég séð að miklu leyti
hvaða efnivið við Itöfum í dag og
hvaða aðstæður við höfum.
Sund
Fjarlægðirnar eru miklar, vegna
veðurs og samgöngukerfis. Bestu
aðstæðumar eru hér í Reykjavík og
því verður miðstöð sundskólans sem
ég nefndi áðan.” Cawley brosir
lítillega. „Það eru ekki allir ánægðir
með þetta en svona er þetta alls stðar.
í Bretlandi, Kanada, Bandaríkjunum
og víðar. En þetta þýðir ekki að ég fari
ekki út fyrir Reykjavík. A sumrin
stefni ég að því að fara með
þjálfunarbúðir út á land.”
Tvíþætt áætlun
Cawley er með tvenns konar áæt-
lanir í gangi eins og hann tæpti á fyrr
í viðtalinu. Fjögurra ára áætlun þar
sem hann notast við sundfólkið í
sundfélögunum í dag. „Þá erum við
að miða m.a. við Olympíuleikana
1992. Þarnaer jafnvel inni ímyndinni
ungt fólk á uppleið í sundinu en er
ekki enn komið inn í landslið. Við
getum tekið sem dæmi 14 ára stúlku
sem er góð og í framför. Hennar
þjálfari þarf að vinna þannig með henni
að hún verði orðin hæf fyrir
Ólympíuleika 1992. Þá verður
viðkomandi stúlka orðin 18ára. Svo
er einnig fólk eins og Ragnheiður
Runólfsdóttir sem var á síðustu
Ólympíuleikum. Mér þykir ekki
ólíklegt að hún verði einnig á næstu
leikum. En þetta sýnist e.t.v. nokkuð
einfalt hjá mér. En það er ekki svo. í
þessari 4 ára áætlun er ekki endilega
um ákveðinn aldurshóp að ræða. Það
gæti til dæmis verið þannig að einhvers
staðar á landinu sé 9 eða 10 ár krakki
sem er efnilegur og við vitum ekkert
um. Þessi krakki verður á 13 14 ára
aldri 1992. Þá
verður hún
kannski orðin
hæf til að fara á
Ólympíuleikana.
Svona nokkuð
hefur gerst áður.
Þannig að þetta
er ekki einfalt
mál. Við getum
sagt að það séu
margaropnardyr
ogýmislegt getur
gerst”
Cawley segir
að það mikil-
vægasta í þessu
sé að gefa eins
mörgum og hægt
er tækifæri til að
spreyta sig. Og til þess þarf gott
samstarf við alla þjálfara á landinu.”
Svo er hann með 8 ára áætlun sem
miðar við enn yngra fólk.
„Þar tökum við með í dæmið krakka
sem eru jafnvel ekki farin að æfa sund
enn. Þama þarf að huga vel að
grunnatriðum í sundinu. Ég er á því
að ungu krakkamir, sem eru undir 12
ára aldri fái ekki rétta meðhöndlun.
Þau eru látin synda fram og til baka,
án mikillar tilbreytingar Mikið til er
þetta vegna aðstæðna. Víðast hvar er
æft úti undir beru lofti. Inni-
sundlaugarnar vantar. Það er ekki
hægt að láta krakkana standa lengi
uppi á bakka. Og þá kemur inn í
dæmið þessi „sundskóli” sem ég
nefndi hér fyrr. í dag er þetta mikið
spurning um heppni hvort næst upp
gott sundfólk í félögunum. Við þurfum
alltaf að vera að vinna gegn þessari
heppnisspumingu.
Spurning um heppni
Númáekkimisskiljaorðmín. Það
er rnikið af góðum þjálfurum hér á
landi sent vinna við mjög erfiðar
aðstæður og of oft vinna þeir
vanþakklátt starf. En þessa spurningu
unt heppni er að finna alls staðar í
heiminum. Þar getur þú fundið félög
með tvo mjög góða sundmenn og
afgangurinn er viðunandi. Þú getur
spurt þjálfarana af hverju þessir tveir
Skinfaxi
31