Skinfaxi - 01.02.1989, Side 32
Sund
„Þó Laugardalslaugarnar séu ágætarfyrir hádegissunderþað 50 m innilaug
sem keppnisfólkið vantar og það mjögfljótt.." Cawley á leið í sprett.
eru svonagóðir. Efhannerheiðarlegur
mun hann svara því til að það sé að
miklu leyti heppni. Astæðan þarf
ekki endlega að vera sú að hann hafi
unnið svo gott starf. Eg held að það
megi segja að góður þjálfari nái við
þokkalegar aðstæður fram 2 til 3
góðum sundmönnum á hverju ári.
En það er ljóst að framtíð
sundíþróttarinnar er að mestu leyti
undir því komin hvort við fáum
innilaugar í náinni framtíð. Og við
verðum að fá að minnsta kosti eina 50
metra innilaug. íslenskur almenningur
hefur varla rétt á því að krefjast mikils
árangurs á meðan besta sundfólkið
æfir t.d. í 25 m útilaugum og keppir
síðan erlendis í 50 metra innilaugum.
Svo sýnist mér tilhneigingin vera sú
hérlendis að þegar by ggt er mannvirki
þá þarf það að vera svo stórkostlegt.
Það er hægt að byggja 50 m innilaug
fyrir mun minna fjármagn en áætlanir
hér sýna. Og mun hraðar, jafnvei á 6
mánuðum.
Æfa meö almenningi
Ég held að fáar íþróttagreinar hér á
landi búi við verri aðstæður en sundið.
Almenningi kemur þetta kannski á
óvart. En engin önnur íþróttagrein
þarf að deila æfingasvæðinu með
almenningi eins og gert er í sundinu.
Ef á að sleppa við þetta er aðeins um
að ræða æfingatíma snemma morguns
eða seint á kvöldin.”
En jákvæðu punktamir. Þeir eru
m.a. fámennið. Það gerir það mögulegt
fyrir alla sundþjálfara landsins að
koma saman á tiltölulega einfaldan
hátt til skoðanaskipta. Þetta er mjög
mikilvægt og þætti fáránleg
uppástunga í Englandi eða
Bandaríkjunum. Sjáðu til, mín
hugmynd um góðan þjálfara er maður
sem erlíkagóðurkennari,ekki maður
sem er góður með flautuna uppi á
laugarbakkanum. Þjálfun er erfið
vinna eins og ég sagði áðan.
Islendingargeta verið nokkuð ánægðir
með sína þjálfara og sérstaklega h versu
ósérhlífnir þeir eru. Þetta er oftast
vanþakklátt starf. Við fáum meira af
gagnrýni en hrósi,þettaermikil vinna
fyrir litla peninga. En þessir þjálfarar
eiga heimtingu á að fá iiámskeið
erlendis og fá erlenda þjálfara hingað
en þetta tekur allt sinn tíma. Ég stefni
að því að setja upp sérstaka
þjálfaraáætlun, áætlun sem þjálfarar
geta unnið eftir.
Fyrir sundíþróttina er mjög
nauðsynlegt að í dag séu fleiri
„landsleikir”, í það minnsta að hér
komi fleiri útlendingar til keppni. En
til þess þarf auðvitað 50 metra
innanhússlaug í Reykjavík og reyndar
fieiri 25 m innanhússlaugar út um
landið. Við þurfum einnig að hafa
reglulegri afrekaskrá sem er send út
um landið. Helst á 2 mánaða fresti,
þannig að fólk viti alltaf hvar það
stendur. Það eykur metnaðinn hjá
sundfólki.
Það þarfaðleggjameiri og öðruvísi
áherslu á þjálfun krakka í sundi. Það
þarf að leggja meiri áherslu á tæknina
á unga aldri en gert er í dag. Hvað
varðar þá yngstu er ég hiklaust á því
að það eigi að hækka aldurslágmarkið
í landskeppnunum hér á landi í 12 ár í
stað 10 ára eins og nú er.
Vísindaleg þekking
Einnig þarf að að bæta þátt vísindale-
garar þekkingar í þágu
sundíþróttarinnar. Tildæmisvarðandi
blóðpróf til þess að mæla árangur.
Við erum á eftir útlendingum í þessu
máli og erum að eltast við þá. Ég
spurði t.d. nokkra Olympíu-
þátttakendur hvort þau hefðu verið
Lactyd prófuð. Þrjú þeirrahöfðu aldrei
heyrt á þetta minnst. Mér fannst það
ótrúlegt.”
Lactyd prófun sú sem Cawley ræðir
um sérstakt blópróf sem tekið er með
þvíað fá blóðdropa úr eyrnasnepli.
Það er síðan. sett í ákveðið tæki sem
gefur ákveðnar tölulegar upplýsingar.
Ur þeim er hægt að sjá hvernig
sundmaðurinn er líkamlega staddur.
„Ut frá þessum niðurstöðum sér
þjálfarinn síðan hvemig best er að
standa að þjálfuninni. Þaðerhægtað
framkvæma alls kyns prófanir og
Lacttyd prófunin erein af þeim. Efnið
Lactyd er úrgangsefni úr blóðinu. I
A-Þýskalandi hafa þeir notast við
þessa mælingu í 10 ár. í Bretlandi
hefur hún verið notuð í 2 ár. Hverjir
eru með besta sundfólk í heimi? A-
Þjóðverjar!
Annað sem er mjög mikilvægt ef
takast á að koma sundíþróttinni áfram
er visst hugarfar sem fólk þar að
tileinka sér en er meira en að segja
það. Fólk þarf að tekja sér trú um að
hér sé gott sundfólk. Sundfólkið þarf
að segja. „Við erum góð ísundi og við
ætlum að verða enn betri.” Þetta er
mjög mikilvægt. Hafa trú á sjálfum
sér. Þetta finnst mér vanta nokkuð hér
álandi. Fólkermeðalltofmikiðafc/
orðum. „Ef við náum topp formi á
réttum tíma. Ef þessi og þessi atriði
ganga upp þá ætti okkur að ganga
vel.” Svona hugsunarhátt verður að
leggja niður í skúffu.
Það má sjá af þessari upptalningu
minni að margt þarf að breytast til að
hlutimirgangi upp. Enégerbjartsýnn,
það eru miklirmöguleikarhérá landi.
Spurningin er aðeins að taka á
málunum með skipulögðum hætti.
Og bjartsýni".
IH
32
Skínfaxi