Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1991, Blaðsíða 8

Skinfaxi - 01.05.1991, Blaðsíða 8
FÓSTURBÖRNIN njóla meðfram veginum í sveitinni, Umf. Bíldudals ætlar að breyta malargryfjum í fþrótta- og útivistarsvæði, Iþróttafélagið Leiftur á Olafsfirði ætlar að græða upp fjall shl íðarnar fy rir ofan bæ i n n og svo mætti lengi telja”. Varaf. UMFK Einar Haraldsson hreinsar rusl úr Rósaselsyatni. voru hreinsaðar, vegkantar og ýmis almenningssvæði. Skógrækt varmjög vinsælt verkefni, þar sem menn gróðursettu plöntur, grisjuðu, hlúðu að trjágróðri og lagfærðu girðingar unthverfis skógarreiti. Nokkur félög plöntuðu trjám innan girðinga Landgræðsluskóga í samvinnu við Skógræktarfélag Islands. Þá varð einnig landgræðsla fyrir valinu, þar sem sáð var í flög og rofabörð. Hjámörgum félögum varðfélagssvæðið fyrir valinu sem fósturbarn, enda ágætt að leitaekki langt yfir skammt. Börn og unglingarsækjaþessi svæði daglegaog ættu því að læra að virða fósturbarnið sitt. Mörg verkefnin eru vissulega mjög athyglisverðog frumleg, t.d. valdi Umf. Framtíðin í Eyjafirði sér að uppræta Frá gróöursetningu Umf. Vesturhlíðar í Þrastaskógi. Landgræðslan gaf myndband til allra félaga Nú eru umhverfismál málefni sem allir œttu að láta til sín taka, leituðuð þið til einh verra samstarfsaðila? „Já, fjölmörg félög og félagasamtökhafalagtmálinu lið. Það sem ber hæst er íramlag og stuðningur Land- græðslu ríkisins, þar sem Sveinn Runólfsson var í broddi fylk- ingar. Má íþvísambandi nefna að Landgræðslan lagði til áburð og grasfræ til allra þeirra félaga sem vildu sinna landgræðslu. Landgræðslumenn voru alliraf vilja gerðir og veittu aðstoð og fræðslu um landgræðslu, en Landgræðslan gaf öllum ungmennafélögunum, 245 að tölu, myndband um land- græðslu og skógrækt. Það má með sanni segja að þarna hafi verkin verið látin tala. Aðrir samstarfsaðilar voru Skógrækt rfkisins, sveitarfélög, Ferðamálaráð Islands, Náttúruverndarráð og umhverfisráðuneytið. Eg er einnig mjög ánægð með þann stuðning sem við fengum frá þeim fyrirtækjum sem við leituðum til og eigum við Toyota-umboðinu, P. Samúelssyni hf. mikið að þakka, en það fyrirtæki var aðal styrktaraðili Fósturbarnanna. Þá var Búnaðar- bankinneinnigstórstyrktaraðili. Önnur fyrirtæki sem styrktu okkur voru umhverfisráðuneytið.Sjóvá/Almennar, Utgerðarfélag Akureyringa, Möl og sandur Akureyri, Kaupfélaga Eyfirðing, Landsbanki Islands, Þýsk/Islenska og Trimmnefnd ÍSÍ”. Veitum fósturbörnunum varanlegt uppeldi Hvert verðurframhaldið? „Eg var ráðin t i I að sjá um þetta verkefni fyrsta sumarið, en því verður svo sannarlega að fylgja eftir. Ég sé það alveg fyrir mér að ungmennafélagar komi árlega saman og hlúi að fósturbaminu sínu eins og gert verður í ár. Við skulum hafa það í huga að uppeldi fósturbarnanna á að vera varanlegt”. Eittlivað að lokum? „Ég er mjög ánægð með þessa glæsilegu þátttöku, sem var um 90 % og vil þakka ungmennafélögum fyrir gott samstarf og þá sérstaklega tengiliðunum sem brugðust skjótt við og skiluðu sínu verki Alfreö Atlason form. knattspd. Víkverja og dóttir gróöursetja. með sóma. Gaman væri að fá sendar myndir svo við getum áttað okkur betur á og fylgst með vexti og þroska fósturbarnanna. Égóska ungmennafélögum til hamingju með fósturbörnin sín og megi þeim vegna vel í framtíðinni”. 8 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.