Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1991, Blaðsíða 23

Skinfaxi - 01.05.1991, Blaðsíða 23
V I Ð T A L Skemmtilegast að keppa á Landsmótum Hvað stendur upp úr á ferlinum? „Mér hefurþótt skemmtilegast að keppa á Landsmótunum. Þau hafa verið haldin á misjöfnum stöðum á landinu, það hefur alltaf verið margt fólk og mikil stemming. Mérhefurliðið vel og fundist ég vera að taka þátt í keppni og samveru sem fólk hefur verið ánægt með. Maðurinn minn og strákarnir hafafarið með mér á öll Landsmót frá 1981 og það má segja að þau séu fastur punktur í tilverunni. Þegar við fórunt í fyrsta skipti saman á Landsmótið á Akureyri 1981 þegar strákarnir voru 4 og 5 ára, þá heyri ég þegarég var í 800 m hlaupinu: „ Mamma keyra, mamma keyra”, þeir voru þánógulitlirtilaðveraekkifeimnir við að hafa sína skoðun og öskra á mömmu, en ég veit ekki hvað ungu stelpunum hefurfundistum þessi köll”, segir Unnur og ískrar af hlátri. Stundar fjölskyldan íþróttir saman? „Á Landsmótinu á Akureyri varð maðurinn minn fyrir uppljómun af því að vera á svona stóru móti og taka þátt í stemmingunni. Það leiddi til þess að hann fór að stunda íþróttir. Núna fer hann reglulega út að hlaupa og stundar æfingar í líkamsræktarstöð. Honum líður miklu betur, finnur ekki fyrir höfuðverk og þessari almennu vanlíðan sem innisetumenn finna oft fyrir. Strákarnir hafa, má segja, verið aldir upp við það að ég færi á völlinn að keppa og þeir hafa líka tekið þátt í starfi ungmennafélagsins heima í sveitinni. Nú förum viðhjóninogeldri strákurinn í líkamsræktarstöð. Sá yngri er mest hriftnn af boltaíþróttum og stundum förum við öll saman á skíði. Þegar við erum í þrekinu gefst okkur góður tími til að vera saman og spjalla milli átaka. Eg hleyp alltaf ein og ég nota þann tíma mikið til að hugsa. Þá sem ég jafnvel heilu ræðurnar meðan ég er á hlaupum og stundum tala ég upphátt, en ég hef samt ekki ennþá stoppað næsta mann og beðið hann um að hlusta á mig, en það gæti komið sér vel að hafa áheyranda”. Konur þurfa ekki að hætta í íþróttum um fertugt Finnst þér konur hœtta of snemma í íþróttum? „Þegar ég var unglingur þá hættu íþróttakonur um 18 ára aldur. Ein 18 ára frænka mín hætti allri þátttöku og það þótti ekkert tiltökumál, þó að hún væri mjög efnileg og líkleg afreks- manneskja. Áþessumtímafannst fólki það eðlilegt að konur hættu ungar, en á seinni árum finnst mér að þetta viðhorf hafi breyst. Það færist sem betur fer í vöxt að konur, bæði í frjálsum og öðrum íþróttum, taki sér frí til að eiga böm og byrji svo aftur á fullu. Það hafa t.d. Marta Ernstdóttir og Þórdís Gísladóttir gert, þannig að ég held að hugs- unarhátturinn sé að breytast og það þyki ekkert slæmt að vera yfir þrítugt í íþróttum. Stöllur mínar í frjálsum, sem eru að nálgast þrítugsaldurinn segja stundum: „Við þurfum ekkert að hætta strax, Unnur er orðin fertug og hún er ekki hætt”. Þannig vona ég að ég geti haft einhver áhrif á konur og þær sjái að þær þurfa ekki að hætta ef þær hafa áhuga, þó að árangurinn verði kannski ekki eins mikill”. Umfjöllun fjölmiðla ýtir undir ákveönar fyrirmyndir Geturmikil umfjöllun um karlaiþróttir liaft þau áhrif að fœrri koitur stundi íþróttir? „Já, mér finnst miklu meira bera á þátttöku karla í íþróttum en kvenna og ég er sannfærð um að það hefur áhrif. Ef við tökum blöðin og teljum í eina viku þær myndir sem birtast af kynjunum, þá verður hlutfallið 10 myndir af karlmönnum en ein af konum. Ef ég sé myndir af konu í blöðunum og umtjöllun um konur í íþróttum, þá les ég það allt. Mér finnst það efni áhugaverðara og það er svo lítið sem kemur um konur að ég gleypi það allt í mig. Ég dáist að mörgum konurn sem hafa lagt mikið á sig og staðið sig ntjög vel. Ég hef það á tilfinningunni að blaðamönnum finnist þær greinar áhugaverðastar sem karlarnir eru í. Ég tel að karlmenn hafi meiri áhuga fyrir keppnisíþróttum og spennu en konur og oftast eru myndir af körlum í keppni í blöðunum og svo eru það karlmenn sem skrifa greinarnar. Þeir segja reyndar að þetta sé efnið sem lesendur vilja sjá, en lesendum hefur ekki verið boðið upp á annað. Konur stunda fremur svokallaðar almenningsíþróttir þar sem ekki er nein keppni og þær íþróttir þykja ekki eins áhugaverðar og keppnisíþróttir karla. Ég lield að það sé ekki vafi á því að umfjöllunfjölmiðlahefuráhrifákrakka, strákar eiga að fara í fótbolta og handbolta, en stelpumar hafa ekki neinar fyrirmyndir til að styðjast við”. Enfegurðarsamkeppni,þœrgetatekið þátt í henni? „Jú, segir Unnur og hlær og af því þú minnist á fegurð þá held ég að karlmönnum finnist gaman að sjá karlmenn í íþróttum, en aftur á móti skemmtilegra að sjá konur fallegar, uppstrílaðar og helst léttklæddar “. Margar konur eiga skiliö að fá útnefningu Heldurþú að sérstakt valáiþróttakonu ársins geti lyft konum ofar og orðið þeim til örvunar? „Já, vafalaust og val á íþróttamanni ársins og íþróttakonu ársins ætti fyrir löngu að vera komið á. Við höfum konur sem æfa og leggja gífurlega mikið á sig og vinna mikið fyrir sitt félag. Þessar konur leggja mikið af mörkum til íþróttanna og eiga margar hverjar skiliðaðhljótaútnefningunaíþróttakona ársins. Iþróttamaður ársins skapar óneitanlega mikla fyrirmynd fyrir karlana, en ekki konurnareins og staðan er í dag”. Pegar þú fórst að draga saman seglin og minnka œfingar kringum 1987 þá fórst þú út ípólitík, hvers vegna? „Ég hef lengi haft gaman af félagsstarfi, enda alist upp við það. Ég áttaði mig á því að ef maður vill hafa einhver áhrif á |)jóðfélagið, þá er það með því að vinna Skinfaxi 23

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.