Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1991, Blaðsíða 18

Skinfaxi - 01.05.1991, Blaðsíða 18
MATARÆÐI KEPPNISFÓLKS Völsungar gæöa sér á mjólkurafuröum í húsi UMFÍ. verður rólegri og orkan helst lengur en ef viðkomandi hefur borðað súkkulaði og kók . Þessi holla fæða gefur líka nægilega mikið af vítamínum og steinefnum sem eru íþróttamanninum nauðsynleg til að viðhalda vöðvum líkamans. Ef íþróttamaðurinn velur sér kolvetnisríkar fæðutegundir leiðir það til þessaðhann taparekkiorkuímiðjum leik. En það er auðvitað aðalatriðið að venja sig á holla lifnaðarhætti og hollar neysluvenjur eins fljótt og hægt er. Ég hef stundum furðað mig á því að sumt íþróttafólk, sem hugsar vel um líkamann og hreyfir sig mikið gleymirað huga að þvíhvað það skiptirmiklu máli aðborða rétt fæði. Öðruvísi er ekki hægt að haldasérígóðuformþhvorkilíkamlega né andlega. Þjálfarinn er leiðbeinandi um margt Það er augljóst að þjálfarar geta haft mikil áhrif á fæðuval þeirra barna og unglinga sem þeir hafa umsjón með og auðvitað er íþróttafólk og þjálfarar fyrirmyndir þeirra yngri, bæði í íþróttum og einnig á annan hátt, t.d. í fæðuvali. Þjálfarar ættu að hafa forgöngu um að börnin séu ekki með of mikið af peningum á sér til að kaupa “draslfæði”. Eða þá að krakkarnir fari saman og kaupi mat sem þau geta útbúið sjálf og borðað saman. Hollt og næringarríkt fæði þarf alls ekki að vera vont og ólystugt. Það er t.d. hægt að búa til ýmis salöt með brauðinu með 10% sýrðum rjóma í stað þess að nota feitari sósu. Best að sleppa frönskum, sósunni og gosinu Þó að skynsamlegasta fæðið á keppnisferðalögum sé brauð með hollu áleggi, þá er betra að fá sér hamborgara og pylsu en sælgæti. Hamborgarar í brauði er ekki svo slæm fæða, kjötið á að vera úr úrvalshráefni, en kokteilsósan og frönsku kartöflurnar eru auðvitað afleitt og mjög fituríkt fæði. I staðinn fyrir franskar og sósu er hægt að borða hrátt salat og gróft brauð með hamborgaranum og hafa sósuna úr 10% sýrðum rjóma. Það er ótrúlegt en satt, að í einum skammti af kokteilsósu er jafn mikið af hitaeiningum og í einum hamborgara. Nýgerð manneldiskönnun sýnir að töluvert af sykurneyslu okkar kemur úr gosdrykkjum. Viðlslendingardrekkum einna mest af gosdrykkjum í heimi og eru börn og unglingar örugglega sá hópursem innbyrðirmestafþeim. Vatn, undanrenna og mysa eru þeir drykkir sem við ættum að venja okkur á að drekka sem oftast í stað gosdrykkjanna, sem við þömbum á milli mála. Saga Landsmóta UMFÍ Óskað eftir myndum og fróðleik Saga Landsmóta ungmennafélaganna verður gefin út á næsta ári. Útgefendur eru Sigurður Viðar Sigmundsson og Jóhann Sigurðsson og mun stjórn ÖMFI aðstoða þá. Vinna við ritun bókarinnar er hafin af fullum krafti og hafa höfundarnir Viðar Hreinsson og Jón Torfason bækistöð sína í þjónustumiðstöð UMFÍ. Þá mun Höskuldur Þráinsson skrifa fyrsta kafla bókarinnar og vera höfundum innan handar ef á þarf að halda. Höfundar og útgefendur auglýsa eftir myndum frá Landsmótum, einkum hinum fyrri. Ef einhver telur sig hafa undir höndum myndir sem gætu átt erindi í bókina eru þeir beðnir að senda þær til höfunda vandlega merktar ásamt upplýsingum um myndefnið. Aðilar ábyrgjast að öllum myndum verði haldið til haga og skilað. Þá eru sögur af íþróttakeppni, persónum og mannlífi, réfleiðis eða símleiðis vel þegnar. Heimilisfangið er: Öldugata 14, 101 Reykjavík, síini 91-12546 og 14317. 18 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.