Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1991, Blaðsíða 16

Skinfaxi - 01.05.1991, Blaðsíða 16
MATARÆÐI KEPPNISFOLKS Hvað borða börn og unglingar í keppnisferðum? Pegar börn og unglingar fara í keppnisferðir taka þau sum hver með sér óheyrilegar fjárhæðir sem ey tt er í sætindi, gos og aðra óholla fæðu. Mismunandi fjárhagur krakkanna gerir það einnig að verkum að einingin innan hópsins minnkar, það skapast rígur og félagsleg samstaða verður minni. Þjálfarar þekkja þetta vandamál vel og segja að ef ólga er í 1 iðinu þá stafi það að hluta til af því að sumir krakkanna fái mjög mikið af vasapeningum að heiman, á meðan aðrir fái minna. Krakkarnir segja að allir hinir kaupi sælgæti og gos og þau vilji ekki vera öðruvísi en þeir. Það er sem betur fer orðið algengara að þjálfarar setji ákveðnarreglurí samráði við börnin sjálf og foreldra. Margir þjálfarar tala við börnin um fæðuvalið og sameiginlega er ákveðið að koma með smurt brauð, mjólk eða ávaxtasafa í keppnisferðir. Síðan er ákveðið að allir komi með ákveðna upphæð í vasapening, t.d. 200 krónur. Þau dæmi þekkjast að þessi regla hafi verið brotin og þá geymdi þjálfarinn þá peninga sem voru umfram, þangað til ferðin var á enda. í einum skammti af kokteilsósu er jafn mikið af hitaeiningum og í einum hamborgara. Þau kvörtuðu um að þeim liði illa Einn þjálfari, sem fékk bömin til að gangast undir þetta, sagði að áður hafi ástandið verið þannig að krakkarnir kvörtuðu sífellt um að þeim liði illa og að þau hefðu verk í maganum. En eftir að þau ákváðu sjálf að breyta mataræðinu og minnka vasapeninginn þá væri allt annar andi í hópnum. Þeim leið mikið betur eftir að hafa borðað hollmeti sent þau meltu betur og orkan varð mun meiri. Og það sem meira var, krökkununt sjálfum fannst ekkert athugavert við það að koma með smurt brauð að heiman. Þú ert það sem þú borðar I sumunr rútum bíða krakkar eftir því að stoppað sé í hverri sjoppu, svo þau geti keypt sér hamborgara, franskar, pylsu, kók og fullt af sælgæti. En ef engin smurð brauðsneið með banana liggur í töskunni, hvort er þá betra að fá sér eina pylsu eða kaupa sér Prins Póló? Er slæmt að drekka gos og borða súkkulaði fyrirkeppni? Hvaðættu orkumikil börn og unglingar, sem hreyfa sig mikið í íþróttum, að borða? 5o gr af súkkulaöi veita jafn margar hitaeiningar og skál af popkorni, epli og brauösneiö. Skinfaxi leitaði svara hjá Ingu Þórsdóttir næringarfræðingi við Næringarráðgjöf Lands- spítala íslands. „Það er vitað mál að það sem maður setur ofan í sig hefur áhrif á það hvernig manni líður,bæði andlegaoglíkamlega. Börn og unglingar, sem eru að vaxa og eyða mikilli orku í íþróttum eiga, að borða allan hollan og venjulegan mat. Það er mjög brýnt að venja sig snemma á að vanda fæðuvalið, en taka það ekki upp á gamalsaldri. Æskilegast er að fæðan innihaldi mest af kolvetnum eða 50-60 %, ekki meira en 35% af fitu og að minnsta kosti 10% sé prótein. Kolvetni er í fæðu úr jurtaríkinu, s.s. kartöflum, brauði, hrísgrjónum, maís, baunum, grænmeti og ávöxtum. Sú fita sem Islendingar innbyrða of mikið af er í smjöri, smjörlíki, olíum, sælgæti, feitri mjólk og mjólkur- afurðum. Það kemurfram íkönnun Manneldisráðs á mataræði Islendinga að við borðum of mikið af fitu og of lítið að kolvetnum. Margir kynnu að halda að börn og unglingar borðuðu ekki mikla fitu en færri vita að það er mikil fita í sælgætinu sem þau neyta sum hver daglega. 16

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.