Skinfaxi - 01.05.1991, Page 10
U M HVERFISMAL
Öll villt dýr heyri undir
umhverfisráöuneytiö
Hvaiia árangri hefur fyrsía
umh verfisráðuiteytið náð?
„Það hafa verið mótaðar og lagðar fram
tillögur um almenna umhverfisvernd
og lagður grunnur að sérstakri
umhverfisverndarstofnun, sem hefði
það markmið að sinna unihverfisvemd
um allt iand og skipuleggja hana.
Starfsemi stofnunarinnar yrði skipt
niður í sérdeildir sem allar hefðu
afmarkað svið. Starfsemi Náttúru-
verndarráðs myndi t.d. verða ein deild,
öll dýravernd yrði innan sérstakrar
deildar.en landbúnaðarráðuneytiðhefur
nú með höndum útrýmingu refa, minnka
og vargfugls, en menntamálaráðuneytið
hefur eftirlit með hreindýrum og fuglum.
Unnið hefur verið frumvarp þar sem öll
villt landspendýr eiga að tilheyra
umhverfisráðuneytinu. í tengslum við
það höfum við kynnt okkur samning
Evrópuráðsins um verndun dýra og
plantna í Evrópu og höfum lagt drög að
því að hann verði staðfestur af Islands
hálfu, en Island er eina þjóðin í Evrópu
sem ekki hefur gert það. Gert er ráð
fyrir því að öll villt dýr njóti verndar og
veiðar á þeim eru þá undantekning, sem
háð verður ákveðnum reglum og undir
mjög ströngu eftirliti”.
Verndun húsdýra
„I ráðuneytinu eru verið að vinna
samskonarfrumvarp um fuglafriðun og
almenna dýravernd, þ.á.m. verndun
húsdýra. Löggjöf um verndun þeirraer
löngu úrelt og við höfum heyrt dæmi
þess að umgengni við húsdýr er víða
ábótavant. Framkvæmdavaldið hefur
ekki getað gripið í taumana vegna
úreltrar löggjafar, en með tilkomu þessa
frumvarpserverndunþessaradýrabetur
tryggð.
Eg geri ráð fyrir því að þessi mál haldi
öll áfram íþinginuogmeð þeimerhægt
að taka upp nýja siði við verndun villtra
dýra og húsdýra og er það til mikilla
bóta að mínum dómi”.
Miðhálendið veröi
sérstakur þjóðgarður
„Nú, önnur mikilvæg friðunarmálefni
eru verndun hálendisins. Hafinn var
undirbúningur að löggjöf um hálendið
og er sú verndun gífurlega mikilvæg.
Hugmyndin er að setja sérstaka löggjöf
um byggingar og skipulagsmál á
ntiðhálendinu og sérstök nefnd sjái um
þau mál. Það er mikilvægt að það sé
einn aðili sem fylgist með allri
mannvirkjagerð og framkvæmdum á
miðhálendinu, s.s. lagningu vega og
virkjunum. Nú er staðan sú að það er
ntjög óljóst hver eigi að sinna þessum
málum. Vonandi verður lokaniður-
staðan sú að miðhálendið verði gert að
sérstökum þjóðgarði sem háður verði
eftirliti og verndun”.
Lerkiskógur í Fljótsdal. Skógar gegna mikilvægu hlutverki í jarövegs- og gróðurvernd. Þeir binda jaröveginn, auðga hann af lífrænum efnum og veita öörum
tegundum skjól. Skyggnur Landverndar
10
Skinfaxi