Skinfaxi - 01.05.1991, Blaðsíða 24
í pólitík. Það varreyndartilviljun að ég
gekk í Landssamband framsóknar-
kvenna, það voru konur sem hvöttu mig
til að koma og ég fór svo að starfa þar af
fullum krafti og í gegnum það starf hef
ég getað tekið þátt í ýmiskonar
mótunarstarfi, sem tengist ferðamálum,
umhverfismálum og málefnum kvenna
á vinnumarkaðinum.
Mér fannst það koma fljótlega í ljós að
pólitíkin tekur oftast mikinn tíma. Eg
hafði eytt miklum tíma í íþróttirnar og
ákvað því að draga aðeins saman og
eyða meiri tíma í mótunarstarfið í
pólitíkinni”.
Of lítil umræöa um
mataræði fólks
Þú vinnur sem verkefnisstjóri í
heilbrigðisráðuneytinu, er heilbrigði
og lieilbrigt fœði ofarlega á dagskrá?
„Já, ég hef alla tíð haft mikinn áhuga á
því hvað maður lætur ofan í sig. Ég hef
lesið mér það mikið til að ég veit að það
skiptirmiklu máli fyrir íþróttamann, og
auðvitað fyrir alla, hvað þeir borða. Ég
hef lengi hugleitt að það væri örugglega
hægt að bæta mannlífið hér, t.d. draga
úr sjúkrahúsvist, með því að hafa áhrif
á það hvað fólk borðar. Mér finnst allt
of lítil umræða hafa verið um mataræði
fólks og lítið reynt að hafa áhrif á það
hvað fólk borðar.
I ráðuneytinu hef ég sinnt verkefnum
sem tengjast heilbrigðu mataræði og
hreyfingu og sett voru af stað að
frumkvæði fyrrverandi heilbrigðis-
ráðherra, Guðmundar Bjarnasonar.
Annað verkefnið tengdist samþykkt
þingsályktunartillögu um opinbera
manneldis- og neyslustefnu, þar sem
kveðið var á um að draga skyldi úr
neyslu á sykri, fitu og salti en auka
grófmetisneyslu. Sú stefnumörkun á
vonandi eftir að breyta miklu um þróun
í manneldi og neyslu á komandi árum.
Heilsudagar í skólum
Hitt verkefnið hefur verið unnið í
samvinnu við UMFÍ, ÍSÍ, BÍS, ÆRR,
landlækni. Meðal annars varsettafstað
svokallað tilraunaverkefni um
heilsudaga ískólum. Við fengum fimm
skóla í fjórum fræðsluumdæmum til að
V I Ð T A L
taka þátt í verkefninu og áhersla var
lögð á morgunmat, hreyfingu og
heilbrigði. Annað hvort vareinn bekkur
tekinn fyrir eða þá allur skólinn.
Starfshópurinn fékk Rannsóknarstofnun
uppeldis- og menntamála til að leggja
fyrir nemendur spurningar áður en
heilsudagur fór fram og einnig í lok
verkefnisins. Það var sem sagt kannað
hvort þessir heilbrigðisdagar, sem
haldnir voru í skólanum, hefðu áhrif á
börnin. Mikil áhersla var lögð á
morgunmat og aukin áhersla á
ýmiskonar hreyfingu. Við erum búin
að fá fyrstu niðurstöður úr þessu mati
og það kemur glöggt fram mikil
hugarfarsbreyting meðal nemenda.
Heilsudagarnir virtust hafa meiri áhrif á
stúlkuren drengi. Það kom líka fram að
mörg böm borða engan morgunmat áður
en þau fara í skólann. Nemendur voru
mjög ánægðir með þessa heilsudaga og
vildu margir alltaf hafa svona morgun-
mat í skólanum. Kennarar bentu á að
krökkunum hefði fundist gaman að
borða saman og það út af fyrir sig er
mjög athyglisvert”.
Foreldrar þurfa aö fá
fræðslu um uppeldismál
Er stefnan sú að skólarnir gefi
börnunum morgun- og hádegismat af
þvíforeldrarnir vannœra þau heima?
„Innan ráðuneytisins er nú verið að
vinna að því að kynna og framkvæma
manneldisstefnuna í skólunum. Þetta
verkefni gefur ák veðna vísbendingu um
að það sé mjög æskilegt að taka upp
morgunverð í skólum. Mér finnst það
orðið umhugsunarefni hvort það eigi
ekki að vera hlutverk skólana að sjá um
góða máltíð fyrir börnin fyrst
þjóðfélagið er orðið eins og það er.
Ég hef oft velt því fyrir mér hvort
unglingar og fólk um og yfir tvítugt fái
nægilegamiklafræðslu ínæringarfræði
og matargerð og fræðslu á sviði
uppeldismála. Mér finnst að bæði
foreldrar og kennarar þurfi að leggja
meiri áherslu áþessatvoþætti. Foreldrar
fá ekki nægilega mikla fræðslu um
uppeldismál, og eiga auðvitað sök á
þessu, oft vinna þeir báðir úti, hafa
lítinn tíma fyrir matargerð eða uppeldi
Unnur t.v. keppnisharkan leynir sér ekki.
barnanna og þess vegna er ekki hægt að
búast við miklu.
Húsmæðraskólarnir hafa verið lagðir
niður, en stelpur og strákar þurfa að
læra að búa til mat og vita hvaða efni
þau þurfa á að halda yfir daginn.
Framhaldsskólarnir ættu að leggja meiri
áherslu á kennslu á þessu sviði og hvert
sveitarfélag, í samvinnu við skólana,
ætti ef til vill að vera með námskeið í
uppeldis- og heimilisfræðum, nokkurs
konar heimilisskóla. Ég hef það á
tilfinningunni að fjölmiðlar, sjónvarp
og myndbönd séu að taka börnin að sér,
ætli við verðum ekki fjölmiðlaumingjar
með tímanum ef ekkert verður að gert”.
Hvert er markmið lífsins?
Aðalmarkmiðið er að vera hraustur og
eiga fjölskyldu sem manni þykir vænt
um. Væntumþykja er mjög mikilvæg,
það er gott að vera sáttur við sjálfan sig
og þá sem eru næstir manni, þá getur
maður gefið meira af sjálfum sér. Mér
finnst mikilvægt að fólk sé jákvætt og
horfi á björtu hliðarnarog hugsi ekki of
mikið um fortíðina. Við Iifum í nútíðinni
og eigum að horfa fram á veginn, en ef
maður upplifir það að vera með
neikvæðu fólki þá er best að reyna að
láta það ekki hafa áhrif á sig.
Láta alltaf jákvæðar hliðar lífsins
snúa upp. Þannig líður manni sjálfum
best og öllum í kring um mann.
24
Skinfaxi