Skinfaxi - 01.05.1991, Page 25
KNATTSPYRNUVELLIR
Grasvellir til knattspyrnuiðkunar
Helsta vandamálið við
grasvelli er viðkvæmt
yfirborð samfara mikilli
notkun
Grasvöllum til knattspyrnuiðkunar
Itefur fjölgað mjög á Islandi síðan á
áttunda áratugnum. Nærri lætur, að
fjöldi þeirra hafi þrefaldast hérlendis
fráárinu 1975. Aætlaðheildarflatarmál
grassvæða til knattspyrnuiðkunar
hérlendis nú er unt 400.000 fermetrar,
sem samsvarar rúmlega 50 knattspyrnu-
völlum ífullri stærð. Þessartölurmiðast
við velli, sem sérstaklega hafa verið
byggðir sem knattspyrnuvellir.
Því þarf ekki að koma á óvart, að áhugi
á uppbyggingu og umhirðu grasvalla er
mikill og vaxandi um allt land.
Verulegum fjármunum er varið til
þessara mála árhvert (þó enn megi gera
betur) og brýnt er að verja þeim á sem
hagkvæmastan hátt. Almenn fræðsla
og umræða á þessu sviði hefur hins
vegar verið afar lítil, og þarf að verða
breyting þar á.
Ráðstefna um grasvelli
Þann 19. apríl síðastliðinn stóð
Mannvirkjanefnd Knattspyrnusam-
bands íslands í samvinnu við Iþrótta-
og æskulýðsdeild menntamálaráðu-
neytisins fyrir ráðstefnu um grasvelli í
ráðstefnusal Hótels Loftleiða. Varþar
fjallað um gerð og umhirðu grasvalla
fyrir knattspyrnu og golf. Með þessari
ráðstefnu var ætlunin að koma til móts
við þann mikla áhuga sem ríkir hérlendis
unt þessi mál, og hefjaalmenna umræðu.
Ráðstefnan var ætluð ölluin þeim sem
sjá um gerð og umhirðu grasvalla;
hönnuðum, forsvarsmönnum knatt-
spyrnufélaga og golfklúbba, íþrótta-
fulltrúum, tæknimönnum, stjórnendum
sveitarfélagaogöðrum þeim, sem áhuga
höfðu á málefninu.
A ráðstefnunni fjallaði Hannes
Þorsteinsson golfvallahönnuður unt
þróun í gerð golfvalla hérlendis, og
undirritaður á sama hátt um
knattspyrnuvelli. Meginþungi ráð-
stefnunnar hvíldi þó á herðum Martin
Petersen frá Danmörku. Hann er
sérfræðingur í uppbyggingu og umhirðu
grasvalla, með áratuga reynslu á því
sviði víða um Evrópu. Við upphaf
almennrar umræðu um þessi mál
hérlendis var fengur að fá fyrirlesara,
sem hefur yfirsýn og heildarmynd af
málefninu. Á ráðstefnunni fjallaði
Martin Petersen um alla veigamestu
þættina í gerð og umhirðu grasvalla og
gaf góða hugmynd um umfang þessa
sviðs. Að baki vel heppnuðum
knattspyrnuvelli liggur gífurleg
þekking, reynsla og vinna.
Ráðstefnugestir voru hvattir til að taka
virkan þátt í umræðunum, og lögðu þeir
margt til málanna. Greinilegur áhugi
var á tækjakosti til unthirðu valla, en
Martin Petersenfór rækilega íþá sálma.
Ljóst er, að umsjónarmenn grasvalla
hérlendis eru almennt mjög vanbúnir
tækjum til umhirðu á völlum, enda um
dýr og sérhæfð tæki að ræða. Æskilegt
er, að nágrannabyggðir eða félög
sameinist um kaup á slíkum tækjum, og
samnýti á marga velli. Eins kom vel
fram mikilvægi þess að beita aðferðum
og reynslu erlendis frá með varúð
hérlendis og aldrei gagnrýnislaust. Við
getum gengið að miklum þekk-
ingarbrunni erlendis, en margt þarf að
rannsaka og heimfæra við íslenskar
aðstæður.
<3 <3 ö <3 ö <3 & <3 &
<3 cy <3 ö <3 ö <3 & <3 &
<3 & <3 ö <3 ö <3 & <3 &
Uppbygging
knattspyrnuvalla
I framhaldi af framangreindri ráðstefnu
ætla ég í þessum greinarstúf að ræða
nánar uppbyggingu á knattspyrnu-
völlum með grasi. Sérstaklega ætla ég
að fjalla um yfirborðslag knattspyrnu-
valla, en það hefur eins og gefur að
skilja afgerandi þýðingu um ástand og
eiginleika hvers vallar.
Við uppbyggingu grasvallar þarf
einkumaðhugaaðeftirfarandi atriðum:
Skapa þarf hagstœð gróðurskilyrði í
yfirborði
Skapa þarfslitþolið og stöðugtyfirborð
Tryggja þarf fullnœgjandi lekt í
yfirborði og undirlagi
Skapa þarf burðarþolið, frostöruggt
og stöðugt undirlag
Skapa þarf aðstœður svo þessir
eiginleikar haldi sér
Ljóst er þannig, að uppbygging
grasvallar er langt í frá einfalt mál.
Sérstaklega hefur reynst vandasamt
að uppfylla öll skilyrði í gróðurlagi
yfirborðsins.
15 cm Einskorna flnsandur, með
lltilli llfrinni Iblöndun.
20 cm Sandur og fln möl
Stöðug og frostörugg fylling,
hugsanlega framrist
Mynd 1 Dæmi um uppbyggingu grasvallar meö sendnu yfirboröi.
Skinfaxi
25