Skinfaxi - 01.05.1991, Síða 30
KNATTSPYRNA
Sterkustu kvennaknattspyrnuliðin 1990
Akureyri er með KA í fimmta sæti og
Þór í ellefta, en kvennaknattspyrnan
hefur lengi staðið vel fyrir norðan. Eins
er með Vestmannaeyjar sem sendu tvö
lið í Islandsmótið, þarerTýr í 6. sæti. en
Þór lendir í því 17.
UMSK-liðin Afturelding og Stjaman
ná að vera í hópi 10 bestu. Stjarnan var
þó ekki með í meistaraflokki og öðrum
flokki, en með athyglisverða yngri
flokka.
A Austfjörðum náði Þróttur,
Neskaupstað að komast í 1. deild með
gott lið, en þeir eru aðeins með einn
flokk í Islandsmótinu. Hins vegar er
Sindri á Hornafirði með mjög
frambærilega yngri flokka og kæmi ekki
á óvart þó Sindri ætti eftir að verða
stórveldi í kvennaknattspyrnunni.
A Norðurlandi er kvennaknattspyrnan
mjög sterk á Dal vík, liðið náði öðru sæti
á síðasta Landsmóti UMFÍ.
Það má segja að frambærileg lið sé að
finna í öllum landshlutum. Dalamenn,
Strandamenn, bæði Austur- og
Vestur-Húnvetningar hafa frambæri-
legum liðum á að skipa, og á Suðurlandi
og Vesturlandi eru nokkur mjög
athyglisverð lið.
Stigagjöf félaga
Stigin eru þannig útreiknuð að sigurvegari í Islandsmóti fær 1 stig lið í öðru sæti 2 stig o.s.frv. Taki lið
ekki þátt í móti, eða er rekið úr keppni,fœr liðið 20 stig.
MFL 2 FL 3 FL 4 FL Samtals
1 UBK 1 1 1 2 5
2 IA 2 2 7 1 12
3 KR 4 5 2 3 14
4 Valur 3 5 6 5 19
5 KA 6 4 4 6 20
6 Týr Vestm. 8 6 7 4 25
7 Afturelding 10 7 8 6 31
8 Sindri 10 30 5 5 50
9 Haukar 30 6 12 5 53
10 Stjarnan 30 30 3 4 67
11 Þór Ak. 5 30 9 30 74
12 Selfoss 30 30 10 7 77
13 Dalvík 10 30 8 30 78
14 F H 30 9 9 30 78
15 Tindastóll 11 30 7 30 78
16 Reynir Sandg. 30 9 10 30 79
17 Þór Vestm. 30 8 11 30 79
18 IBK 30 3 30 30 93
19 Skallagrímur 30 30 30 4 94
20 Bl 30 7 30 30 97
21 Þróttur Nes. 7 30 30 30 97
22 Ægir 30 30 8 30 98
23 IR 30 8 30 30 98
24 KS 9 30 30 30 99
25 Stokkseyri 11 30 30 30 101
26 Súlan 11 30 30 30 101
27 Höttur 12 30 30 30 102
28 Vöslungur 12 30 30 30 102
29 Austri 13 30 30 30 103
30 Valur Rvk. 14 30 30 30 104
31 Enherji 15 30 30 30 105
Konur, komið til starfa
Mikið færri konur eru starfandi í
stjórnum félaga en karlar. Astæðan er
eflaust sú að þær hafa ekki eins mikinn
tíma og karlarnir vegna þess að þær eru
að sinna búi og börnum.
Nú er starfandi af fullum krafti nefnd,
sem ISÍ setti á laggirnar til að vinna að
aukinni þátttöku kvenna í íþróttastarfi.
I nefndinni eiga sæti: Unnur
Stefánsdóttir, formaður, Hreggviður
Jónsson, Vanda Sigurgeirsdóttir,
Svanfríður Þorsteinsdótttir og Lovísa
Einarsdóttir.
Verksvið nefndarinnar er m.a. að
aðstoða félög og deildir við að efla
íþróttir kvenna í félögunum, kynna
möguleika skólastúlkna á að stunda
íþróttir í sínu hverfi, vinna með
sérsamböndunum að afreksíþróttum
kvenna, aukinni menntun þjálfara í
kvennaíþróttum og stuðla að því að
fleiri konurtaki að sérþjálfun íþróttaog
að aukinni þátttöku kvenna í stjórnun
félaga.
Áæt lað er að halda innan tíðar námskeið
fyrir þjálfara íþróttakvenna og fyrir
konur í íþróttum og félagsstarfi.
Það er mjög æskilegt að konur taki þátt
í starfi félaga og geti þar með haft áhrif
á það hvernig íþrótta- og æskulýðsstarf
er byggt upp.
Konur eru hér með hvattar til að gefa
kost á sér í stjórnunarstörf innan
íþróttahreyfingarinnar.
30
Skinfaxi