Skinfaxi - 01.05.1991, Side 32
KNATTSPYRNA
er í uppsiglingu eftir tveggja ára hlé og
er á leið í Evrópukeppni. Unglinga-
landslið kvenna verður starfandi í ár
eins og í fyrra og tekur þátt í Norður-
landamótinu”.
Ætlum sjálfar aö gera
eitthvað í okkar málum
Hvers vegita vorn samtökin stofnuð og
hvað œtlið þið að gera?
Kristrún: „Samtökknattspyrnukvenna
voru stofnuð vegna þess að konur eiga
alveg eins mikinn rétt á því að stunda
knattspyrnu og karlar. Okkur finnst
almennt virðingarleysi og deyfð ríkja í
málefnum kvennaknattspyrnunnar. Við
viljum ráðast gegn þessu, við höfum
reynt lengi að fá karlana til að gera
eitthvað, en auðvitað stendur það okkur
næst að vinna að okkar málum. Það
vantar fleiri konur í stjórnunar- og
nefndarstörfhjáfélögunum,máliðer að
við höfum engin áhrif. Við viljum snúa
vörn í sókn og vinna að landsliðs-,
dómara-, þjálfara-, og fjölmiðlamálum.
Við stofnuðum samtök
knattspyrnukvenna af því að við ætlum
að gera eitthvað í okkar málum sjálfar”.
Og hvernig á að fara að því?
Kristrún: „Við ætlum að reyna að
höfða til þeirra kvenna sem hafa áhuga
á kvennaknattspyrnu og efla metnað og
áhuga þeirra á okkar málefnum. Við
viljum fá þær til að koma meira inn í
félagsstarfið og starfa með sínu félagi
og vinna þannig kvennaknattspyrnunni
fastan sess.
Margarstelpur, semhafaspilaðfótbolta
í 10 ár, hverfa alveg þegar þær hætta,
þær sjást ekki á leikjum og detta alveg
út. Þessu viljum við breyta, við viljum
reyna að fá þessar konur til að halda
áfram og láta gott af sér leiða í starfi
með sínu félagi. Við ætlum að vera
mjög vakandi yfir því að fá
knattspyrnukonurtilaðsækjanámskeið
í stjórnun og félagsstörfum.
Við ætlum að reyna að pressa á KSI á
allan þann hátt sem við getum og höfum
nú komið formanni Hagsmunasamtaka
knattspyrnukvenna í K vennanefnd KSÍ.
Þannig getum við fylgst mikið betur
með okkar málutn hjá KSI og getum
jafnframt haft mun meiri áhrif. Þessi
jákvæða framþróun hjá KSI, að þeir
skyldu bjóða okkur að eiga fulltrúa í
þessari nefnd, sýnir vonandi hvert
stefnir. Aðalatriðið er að við getum
skapað okkur fastan sess og að við
eigum það ekki á hættu að okkur verði
ýtt í burtu, því þá er allt
uppbyggingarstarf unnið fyrir gíg.
A-landslið forsenda
framtíðar
A-landsliðið verður að starfa vegna þess
að stelpurnar verða að geta stefnt hærra.
Það hefur verið stórt vandamál að 15-18
ára stelpur hafa hætt í knattspyrnunni
vegna þess að ekkert hefur tekið við.
Eitt af verkefnum samtaka
knattspyrnukvenna er að gera
kvennaknattspyrnuna spennandi fyrir
þessar stelpur, þannig að við getum
haldið í þær eins lengi og þær hafa
áhuga á að spila.
Hagsmunasamtök knattspyrnukvenna
eru landssamtök og við höfum haft
santband við öll félög úti á landi, sem
eru meðkvennaknattspyrnu. Við ætlum
að stefna að þvf að hafa eina konu úr
hverjufélagi sem nokkurskonartengilið
okkar”.
Viðgengst virðingarleysi gagnvart
knattspyrnu kvenna?
Kristrún: „Já, og það birtist í ýmsum
myndunt. Hjá stjórnum félaga er
kvennaknattspyrna alltaf sett í annað
sætið, svipað er upp á teningnum hjá
KSI og fjölmiðlum, nú svo mæta
dómararnir ekki á leiki.
Hvers vegna mœta þeir ekki á leiki?
Elísabet: „Þeir hreinlega leyfa sér að
mæta ekki af því að kvennaknattspyrna
er ekki eins hátt skrifuð og knattspyrna
karla. Stundum er sagt að mótshaldarar
hafi ekki boðað dómarana og maður
veit oft ekki hverju á að trúa, en það
virðist samt oft vera þannig að þeir
hreinlega leyfi sér þetta af því konur
eigi í hlut”.
Kvennaleik frestað
vegna karlaleiks
Hefur leikjum ekki líka verið frestað
vegna annarra orsaka?
Elísabet: „Jú, það er rétt, í fyrra þurfti
að endurraða öllum leikjum eftir að
mótabók kom út vegna þess að eitt félag
dró sig úr keppni með aðeins viku
fyrirvara. Þessvegna var ekki hægt að
styðjast við hana að neinu leyti. Svona
hlutir mega ekki gerast því að það leiðir
til þess að enn er kastað rýrð á
knattspyrnu kvenna. í þessu tilfelli var
sökin hjá þessu einstakafélagi sem olli
þessu írafári. Stjórnin hefði ekki leyft
sér að draga liðið úr keppni með svo
stuttum fyrirvara ef karlalið ætti í hlut.
KSI átti náttúrlega að sjá um að senda
leiðréttingar til tjölmiðla og annarra, en
gerði það ekki”.
Stundum hafa knattspyrnukonurnar
sjálfar ekki mœtt?
Kristrún: „Já, þvímiður og ástæðan er
sú að yfirleitt eru það
meistaraflokksstelpur, sem eru að þjálfa
yngri flokka, og þá ntega leikir
meistaraflokks og yngri flokka ekki
rekastá. Ef það gerist verðurað velja og
hafna, fresta og breyta. Það er oft erfitt
að fá þjálfara til að þjálfa í
kvennaknattspyrnunni. Þaðeruallsekki
allir karlmenn tilbúnir til að þjálfa
kvenfólk. Þegar raðað var niður fyrir
komandi sumar var reynt að gera það á
þann hátt að engir kvennaleikir færu
fram á sama tíma”.
Elísabet: „í fyrra átti að fara fram
leikur á Breiðabliksvelli milli Vals og
Breiðabliks í fyrstu deild kvenna.
Meistaraflokkur Blika í
karlaknattspyrnu komst áfram í
bikarkeppninni og dró heimaleik og þá
var kvennaleiknum frestað, þó svo að
það hafi verið búið að setja hann á fyrir
löngu. Kvennaleikurinn varlátinn víkja
fyrir bikarleiknum”.
32
Skinfaxi