Skinfaxi - 01.05.1991, Síða 33
KNATTSPYRNA
Hugtakið jafnrétti ekki
til innan
knattspyrnunnar
Kristrún: „Meistaflokkur kvenna er
ekki ofarlega á blaði hjá KSI.
Kvennaflokkarhafavoðalegavíðaverið
settir undir sama hatt og yngri flokkamir,
það er meistaflokkur karla sem er n úmer
eitt hjá öllum félögum og
forráðamönnum knattspyrnumála. Hjá
einu félagi í Reykjavík er það t.d.
unglingaráð sem hefur umsjón með
meistaraflokki kvenna, ekkert
kvennaráð er til.
Við viljum koma meistaraflokki kvenna
á sama stall og meistaraflokkur karla.
Hugtakiðjafnrétti erekki til hvað þetta
varðar”.
Hvernig finnst ykkur umfjöllun
fjölmiðla um knattspyrnu kvenna?
Kristrún: „Umfjöllunin er auðvitað
ekki nærri nógu mikil. Fjölmiðlar hafa
mikil áhrif á fólk og þeir geta í raun
skapað áhuga fyrir einstökum
íþróttagreinum. Mat fjölmiðla á því
hvaða greinar á að taka til umfjöllunar
hefur verið ntjög íhaldssamt.
Elísabet: Umfjöllun fjölmiðla um
kvennaknattspyrnu endurspeglar í raun
þetta virðingarleysi sem ríkir hjá
stjórnum félaga, það eru ekki margir
menn í hverri knattspyrnustjórn sem
vilja virkilega gera eitthvað fyrir
knattspyrnu kvenna.
Það er örugglega ekki það
skemmtilegasta sem íþróttafréttamenn
gera að vera sendir á kvennaleik, sem
kannski er frestað af því að dómarinn
mætir ekki eða mótabók hefur verið
breytl og fréttamenn úr karlastétt hafa
örugglega meiri áhuga á knattspymu
karla, en kvenna”.
Nokkuð vel gert hjá
henni Jónu
Kristrún: „Það eru vissir fordómar
rfkjandi gagnvart knattspyrnu kvenna
og tengjast þessari neikvæðu ímynd
sem kvennaknattspyrnan hefur. Sú
ímynd fælir fjölmiðlafólkið frá.
Kvennaknattspyrnan er orðin mikið
betri nú, en þegar hún var að slíta
barnsskónum. Þegar fjallað er um
karlmenn ífótboltaertalað um glæsilega
sendingu eða glæsilegt mark hjá honum
Jóni Jónssyni. En, þegarog ef, fjallað er
um konur er talað um að þetta hafi nú
bara verið nokkuð vel gert hjá henni
Jónu eða að þetta hafi nú bara verið
nokkuð laglegt.
Við höfum nú samt fengið jákvæða
umsögn í blöðum, t.d. var sagt eftir
innanhússmótið að kvennaleikirnir hafi
verið skemmtilegri en karlaleikirnir!
En einhvernveginn fannst okkur samt
að hægt væri að lesa undrunaróp á milli
línanna.
Við höfum reynt að þrýsta á fjölmiðla
og fá þá ti 1 að opna augun fyrir málefnum
okkar. Við ætlum að kljúfa þennan
vítahring sem kvennaknattspyrnan er
komin í”.
Brot á jafnréttislögum
Kristrún: „Meira að segja hjá
Knattspymusambandi Islands viðgengst
ákveðið misrétti. Tveggja ára gamalt
reglugerðarákvæði í reglugerð KSÍ er
beinlínis brot á jafnréttislögum. Það
kveður á unt að félögum sé heimilt að
banna notkun grastakkaskóa fyrir alla
flokka netna meistaraflokk karla.
Meistaraflokkur kvenna má ekki nota
grastakkaskó og félögin hafa notað sér
það grimmt. Okkur finnst mjög sérstakt
að sérsamband skuli geta leyft sér að
mismuna konum svona. Við höfum
þegar sent bréf til allra þeirra 24
knattspyrnufélaga sem senda lið til
keppni á Islandsmeistaramót
meistaraflokks kvenna í knattspymu.
Við skorum á þau að beita þessu ákvæði
ekki og það er von okkar að
forsvarsmennfélagasjáiaðþaðerekkert
réttlæti í því að konur geti ekki spilað
við sömu aðstæður og karlar.
Það vannst því miður ekki tími til þess
fyrir síðasta KSI-þing að vinna að þessu
máli og koma fram með
breytingartillögur, en við höfum ekki
ennþá ákveðið hvort við leggjum fram
kæru.
Viðþurftum um tímaað berjastfyrirlífi
okkar í KR og það er alveg Ijóst að
konur í knattspyrnu þurfa að berjast
fyrir lífi sínu hvar sem þær eru. Við
vonum að þetta jákvæða hugarfar, sem
forráðamenn KSÍ hafa nú, haldist”.
Að lokum, á að velja íþróttakonu
ársins?
Elísabet: „Ég er mjög fylgjandi því að
kosin verði íþróttakona ársins og
íþróttakarl ársins, ég vil að þetta sé
aðskilið, alveg eins og í keppninni, þar
semkarlarogkonurkeppaekki saman”.
Kristrún: „Já, ég er sammála því, það
yrði mjögmikil hvatningfyrirkonuref
valin yrði íþróttakona ársins”.
Knattspyrnukonur vítt og breitt um
landið, fylgist með og hafið samband
við stjórnarmenn Hagsmunasamtaka
knattspyrnukvenna með því að senda
þeim bréf í pósthólf 1346, 121
Reykjavík.
Upprennandi knattspyrnustjörnur á Gull og silfur - mótinu I Kópavogi.
Skinfaxi
33