Skinfaxi - 01.12.1993, Qupperneq 6
38. sambandsþing UMFÍ:
Líflegar umræður
- um hina ýmsu málaflokka
Á þinginu lét Pálini Gíslason afformannsstarfi UMFÍ og við tók Þórir Jónsson.
Líflegar umræður um hina ýmsu
málaflokka einkenndu 38. sambands-
þing Ungmennafélags Islands, sem
haldið var á Laugarvatni 23. og 24.
október síðastliðinn. Staða UMFÍ er
sterk um þessar mundir og voru þing-
fulltrúar á einu máli um að ungmenna-
félagshreyfingin væri á réttri leið undir
kjörorðinu: „Ræktun lýðs og iands.“
Aðalmál þingsins var 21. landsmót
UMFI, sem haldið verður að Laugar-
vatni næsta sumar. Skoðuðu þingfull-
trúar landsmótssvæðið, þar sem unnið
hefur verið af krafti við undirbúning í
haust, og landsmótsnefnd kynnti tillög-
ur sínar.
A þinginu urðu formannaskipti hjá
UMFI. Pálmi Gíslason lét af for-
mennsku og við tók Þórir Jónsson.
Öflugt starf
I skýslu formanns kom m.a. fram,
að þjónustumiðstöðin í Fellsmúla getur
nú hýst 60-70 manns í gistingu í senn.
Aðsókn er mjög mikil og Ijóst að ekki
var vanþörf á að stækka húsnæðið.
Vornámskeið var að þessu sinni
Kaupum
íslenskt
38. sambandsþing UMFÍ hvetur
alla íslendinga til að halda vöku
sinni hvað varðar kaup á íslenskri
framleiðslu. í því atvinnuástandi
sem nú er, getur það skipt sköpum
fyrir þúsundir Islendinga að ís-
lenskar vörur séu fremur keyptar en
innfluttar. Þingið fagnar því átaki
sem hefur verið í gangi hjá UMFI
og hvetur til áframhaldandi baráttu
fyrir kaupum á íslenskum vörum.
haldið að Laugum í Reykjadal og sóttu
það rúmlega 20 manns frá 12 sam-
bandsaðilum. Mikið kynningarstarf var
unnið bæði innan hreyfingarinnar og
utan. Má þar nefna kynningardaga í
þjónustumiðstöðinni, útbreiðsluferðir,
greinaskrif og útvarpsviðtöl af ýmsu
tilefni.
Framkvæmdum í Þrastarskógi hefur
verið haldið áfram. I sumar voru allir
göngustígar ruddir og borið ofan í
hluta þeirra. Nú er farið að huga að
uppbyggingu nýs veitingaskála, og
undirbúa markvissa plöntun og grisjun
í skóginum.
Starf félagsmálaskólans var með
hefðbundnu sniði, en sagt verður frá
starfsemi hans annars staðar í blaðinu.
Göngudagur fjölskyldunnar-Hjarta-
gangan fór fram 26. júní sl. Stefán
Jónsson ungmennafélagi og fyrrum
bóndi í Vorsabæ lagði land undir fót
og gekk rúma 500 kílómetra til að
minna á ár aldraðra. Sú ganga var farin
14. júlí-19. ágúst. Loks var Bindindis-
dagur fjölskyldunnar þann 26. nóvem-
ber sl.
Erlend samskipti eru fyrst og frernst
við hin Norðurlöndin. Má nefna ung-
mennavikur, þing NSU, sem haldið var
á Flúðum, ungmennaskipti og ung-
bændaráðstefnur. Fleira mætti nefna úr
starfi UMFI en hér verður látið staðar
numið að sinni.
Fósturbörnin
Á 38. sambandsþingi UMFÍ var
því fagnað hve vel umhverfis-
verkefnið „Fósturbörnin" tókst. Er
hvatt til þess að niðurstöður verði
kynntar sem víðast. Hvetur þingið
öll ungmennafélög til að halda
áfram því mikla starfi sem ung-
mennafélagshreyfingin hefur unnið
á sviði umhverfismála og gróður-
verndar.
6
Skinfaxi