Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1993, Blaðsíða 31

Skinfaxi - 01.12.1993, Blaðsíða 31
Það er upplagt að lita meðan mamma er í leikftminni. Boðið er upp á þrjá erfiðisflokka og æfir hver hópur tvisvar í viku. A laugardögum er síðan boðið upp á svokallaðan þrekhring, - púltíma fyrir þá allra hörðustu, bæði karla og konur. Áhuginn ræður ferðinni Af framangreindu er ekki annað að sjá en að full nauðsyn hafi verið á al- menningsdeildinni sem hefur nú fest sig rækilega í sessi. „Við setjum ekkert í gang, heldur byrjum við á því að auglýsa eftir fólki sem hefur áhuga,“ segir Sigurður. „Nú erum við meðal annars að þreifa fyrir okkur um áhuga á badminton, skák og brids, jafnvel Jeiklist, sem einnig myndi falla undir okkar deild. Starfs- íþróttirnar, sem keppt er í á ungmenna- félagsmótum, myndu líka falla vel undir almenningsdeildina okkar. Við höfum jafnvel verið að kíkja eftir vinnuvélaeigendum sem gætu keppt á dráttarvélum og trésmiðum sem gætu tekið þátt í naglaboðhlaupi eða ein- hverju hliðstæðu, svo dæmi séu nefnd. Þetta er að sjálfsögðu gert nteð þátt- töku í landsmóti í huga. Mér finnst starfsíþróttirnar gefa starfinu mikið gildi, - eins og línubeitingin, pönnu- kökubaksturinn og svo framvegis. Arný Helgadóttir sér um kvennaleikfimina og „puðið. “ Við erum opin fyrir öllum hug- myndum og bíðum eftir því að fólk komi til okkar. Við styðjum við bakið á þeim sem hafa áhuga á einhverju og vilja fóma tíma í að koma því af stað. I vetur munum við m.a. standa fyrir þrettándagleði, ef að líkum lætur. Deildin stóð fyrir þrettándagleði í fyrra. Raunar kom hugmyndin upp á með skömmum fyrirvara. Það var stúlka frá Vestmannaeyjum sem stakk upp á þessu og það var ákveðið að slá til. Við höfðum sáralítinn tíma til und- irbúnings, en gleðin tókst alveg glimr- andi vel og leikurinn verður væntan- lega endurtekinn í vetur. Það er einmitt á þessum nótum sem almenningsdeild Fjölnis starfar,“ segir Sigurður Sig- urðsson. Vísnaþáttur Djúpt er á ljóðavinum um þessar mundir. Vera má að fyrriparturinn hafi verið erfiður, en þó ætla ég að skýringin sé fyrst og fremst fram- taksleysi. Benda má fólki á að hafa samband við ritstjóra Skinfaxa eða umsjónarmann þáttarins símleiðis í stað þess að senda bréf. Ólfna Gísladóttir í Borgarnesi sendi eftirfarandi botn: Landsmótsár og lýðveldis og loks þú kostið getur. Við hefjum önd til almættis allt þá gengur betur. Næsti fyrripartur er í samræmi við veðrið á þessum árstíma. Allir ættu að geta gert botn við hann. Úti veðrið ólmast grátt ég inni sit og ljóða. Ég óska ykkur gæfu og gengis á nýju ári og hvet ykkur til að huga vel að hinum örsmáa vísnaþætti. sem mætti að ósekju vaxa fiskur um hrygg. Gleðileg jól. Inginiundur Skinfaxi 31

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.