Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.12.1993, Blaðsíða 9

Skinfaxi - 01.12.1993, Blaðsíða 9
loks fyrir hönd UMFÍ fyrir landsmótið 1975. Ég hafði unnið að fleiru fyrir hreyfinguna þegar hér var komið sögu, var formaður húskaupanefndar sem kom upp húsnæðinu að Mjölnisholti 14. Þar komum við okkur upp rúmlega 100 fermetra húsnæði og átti ég þátt í að koma því máli í höfn. Af framan- greindu má sjá að ég var ýmsum málurn kunnugur í hreyfingunni.“ - Hvað voru margir félagar í UMFI þegar þú tókst við formennsku ? „Það voru um 20.000 manns. Þá hafði mikið fjölgað, félagatalan hafði tvöfaldast á 10 árum. - Hafsteinn komst vel að orði á þinginu í haust þegar hann sagði að ekki hafi tekið hann nema 10 ár að tvöfalda félaga- fjöldann en mig 14 ár. Nú eru félagarnir um 45.800 talsins.“ - Hvernig tilfinnig var það var að taka við fjölmennri hreyfmgu og eiga að leiða starfhennar? „Það lagðist strax vel í mig. Þetta var í svo góðum farvegi og það var mikill kraftur í framkvæmdastjóranum Sigurði Geirdal. Við þekktumst vel og ég vissi að ég ætti eftir að eiga auðvelt með að starfa með honum. Ég var því ekkert kvíðinn. Þegar þetta var hafði hreyfingin verið að þróast talsvert. Áður en ég byrjaði hafði tíminn farið meira í að koma ýmsum hlutum af stað eins og að efla héraðssamböndin og félögin og koma á skipulegri út- breiðslu. Það má kannski segja að með mér hafi komið svolítið aðrar áherslur, Á íþróttamóti á Blöncluósi. Pálmi slasaðist fljótlega eftir þetta mót og varð að hœtta að stunda íþróttir. í gönguferð við Hrafntinnusker. meiri áhersla á umhverfismál, þó að þau hafi alltaf verið ofarlega á baugi. Ég lagði líka mikið kapp á að efla íslenskt og kaupa íslenskar vörur. Göngudagur fjölskyldunnar var verk- efni sem ég hafði mjög gaman af að koma af stað. Við höfum alltaf lagt mikla áherslu á góð samskipti við hér- aðssamböndin og félögin. Við höfunt heimsótt þau og mætt alls staðar þar sem við höfum komið því við, til dæmis á þing þeirra og þá viðburði sem hægt var að mæta á. Þetta hefur tryggt gott samband á milli þjónustu- miðstöðvarinnar og héraðssamband- anna - og styrkt í raun báða aðila mjög mikið.“ Hnippt í kaupmennina Þessi mynd er tekin í mars 1957, en þá tók Pálmi þátt í víðavangshlaupi í Reykholts- skóla. - Ef við tökum umhverfismálin, finnst þér áherslan á þau hafa skilað þeim árangri sem vœnst hafði verið? „Ég er nokkuð ánægður með árang- urinn, enda eru þessi mál ofarlega á baugi hjá mörgum félögum. Ég vildi þó gjarnan að ennþá meira hefði áunn- ist í þessum efnum en ég er sannfærður um að ungmennafélögin munu sinna umhverfismálum ntikið í framtíðinni. Þetta er sá þáttur sem allir þurfa að leggja eitthvað af mörkum í. Það fer vel á því að ungmennafélagar geri það.“ Pálmi er frægur fyrir baráttu sína fyrir því að efla íslenskt. Sjálfur kaupir hann aðeins íslenska framleiðslu svo fremi að hún sé fáanleg. Verslunar- eigendum segir hann gjarnan til synd- anna á lægri nótunum, ef þeir eru ein- ungis með erlendar vörur í hillum sín- um. Og hann hefur erindi sem erfiði, því þeir taka tillit til slíkra ábendinga. „Ég er ekkert feiminn við þetta þegar ég kem í verslanir. Ef ég get keypt íslenska vöru þá hefur hún alltaf forgang. Ég vona að baráttan á þessu sviði hafi skilað einhverjum árangri. Mér finnst þetta verðugt verkefni fyrir ungmennafélögin að berjast fyrir. Það er enginn meiri bölvaldur ungu fólki en atvinnuleysi. Hver og einn getur haft veruleg áhrif með þessu móti. Oft er hér hugsunarleysi kaupmanna um að kenna en ekki ásetningi þegar íslenska vöru vantar í hillurnar.“ Skinfaxi 9

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.