Skinfaxi - 01.12.1993, Page 10
starfi og því teljum við sameiningu
ekki koma til greina. Hins vegar vænt-
um við þess að eiga gott samstarf við
ÍSÍ í framtíðinni.“
Ferðalög og fundasetur
- Nú þegar þú lítur til baka eftir 14
ára formennsku, hefur þetta ekki verið
erilssamur tími hjá þér, - mikið um
ferðalög og fundasetur?
„Vissulega og býsna margar helgar
hafa farið í þetta, sérstaklega yfir vetr-
Til að vekja athygli á verkefni UMFÍ, „Eflum íslenskt,“ hjóluðu ungmennafélagar
hringinn í kringum landið. Myndin var tekin þegar lagt var afstaðfrá Lœkjartorgi.
- Nú hefur þjóðfélagið tekið miklum
breytingum á þeim árum sem þú hefur
gengt formennsku í UMFI. Voru þeir
tímar þegar ungmennafélagshreyfmgin
þótti úr takti við tímann eða hefur hún
alltaf náð að aðlaga sig?
„Ég held hún hafi verið farin að
dragast svolítið aftur úr. Það er aftur á
móti engin spurning að hún hefur verið
á uppleið sfðustu 25 árin eða svo. Mér
þykir mjög skemmtilegt að það sem
þótti kannski svolítið hallærislegt - að
gera hlutina í ungmennafélagsandanum
- þykir nú vera hrósyrði og af hinu
góða. Aður hafði hreyfingin verið að
vinna að góðum málum en það skorti
kannski að starfið væri kynnt nægilega
vel fyrir fólki og athygli yrði vakin á
því sem verið var að gera. Það þurfti
einnig að ná til fleiri. Með tilkomu
þjónustumiðstöðvarinnar varð okkur
kleift að sinna þessum þáttum betur en
áður um leið og unnt var að efla starfið
út um allt land og aðstoða héraðs-
samböndin og félögin. Með því að
vinna að fjölmörgum málum og reyna
að gera það vel hefur hugarfarið
breyst. Við höfum komið víða við og
náð að starfa í góðri samvinnu við aðra
aðila.“
- ISl hefur lýst vilja til að ganga í
eina sœng með svo sterkri og öflugri
hreyfingu sem UMFÍ er, hvað finnst
þér um slíka málaleitan?
„Hafa ber í huga að UMFÍ leggur
áherslur á aðrar grunnhugmyndir í sínu
artímann. Frá janúarlokum til vors hef
ég verið á þing- og fundaferðum lang-
flestar helgar. Ég hef alltaf litið á þetta
sem sjálfsagðan og eðlilega hlut. Ég
hef jafnan haft afskaplega gaman af að
fara í þessar ferðir og sé ekki eftir
þeim tíma sem í þær hefur farið.“
- Hefurðu tölur yfir fundi á þessum
tíma ?
„Ég veit hve marga framkvæmda-
stjórnarfundi ég hef setið, þeir eru 615
og stjórnarfundir 65. Hve marga aðra
fundi ég hef sótt get ég ekki fullyrt um
en þeir eru áreiðanlega ekki undir
1000.“
- Þú hlýtur að hafa kynnst fjölda
fólks á ferðum þínum um landið?
„Já, já, ég hef kynnst ógrynni af
fólki út um allt Iand og líklega er það
skemmtilegasti þáttur þessa starfs. Það
er alls staðar tekið vel á móti inanni og
mér finnst ég eiga vini alls staðar þar
sem ég hef komið í nafni hreyfingar-
innar. Og þrátt fyrir erilinn sem þessu
starfi fylgir hefur það verið alveg
geysilega gefandi. Ég hef alltaf notið
skilnings bæði heima fyrir og hjá
vinnuveitendum mínum, fyrst í Sam-
vinnubankanum og síðar í Landsbank-
anum. Auðvitað hefur eitthvað klipist
af vinnutíma manns í þetta þó ég hafi
alla tíð reynt að láta formannsstarfið
koma sem minnst niður á starfinu í
bankanum. Þegar það kom til tals að
ég tæki að mér starf formanns UMFI
þá ráðfærði ég mig við vinnuveitendur
mína sem hvöttu mig fremur en löttu.“
Þegar Pálmi varð fimmtugur efndi lumn til mikillar veislu í garðinum heima hjá sér. Ein
afmœlisgjöfin sem honum barst var sýning stúlkna úr Gerplu.
10
Skinfaxi