Skinfaxi - 01.12.1993, Side 13
sundiðkunnar. Á Blönduósi er lítil
sundlaug og einnig er laug við Húna-
vallaskóla. Sú er ekki lögleg heldur.“
Jákvætt viðhorf
„Sá þáttur sem mæðir mest á
stjórnarmönnum félaganna er að afla
fjármuna til að halda starfinu gang-
andi. En það hjálpar vissulega að flest
sveitarfélög hér á svæðinu hafa staðið
vel við bakið á okkur hvað varðar upp-
sumar var lagt gerviefni á Vorboða-
völlinn, á braut fyrir langstökk, stang-
arstökk og þrístökk. Það var ekki gefið
að leggja á þessa 60 metra, því það
kostaði um 900 þúsund krónur. Á bak
við þessa framkvæmd stendur 90
manna ungmennafélag og tvö fámenn
sveitarfélög, þannig að þarna var ekki
um lítið átak að ræða.
Á svæðinu eru einnig tveir 9 holu
golfvellir, annar við Blönduós og hinn
á Skagaströnd. Aðstaða til hestaíþrótta
er á tveim stöðum, í Húnaveri og rétt
hjá Blönduósi. Hestaíþróttadeild er í
ungmennasambandinu og talsvert starf
er í kringum hana. Þá má nefna skot-
félag sem starfar innan sambandsins.
Það hefur komið sér upp mjög góðum
velli og hélt fyrsta landsmótið síðast-
liðið sumar.
„Það má segja að starfsemin hafi
verið mjög góð á þessu ári sem nú er
að líða,“ sagði Valdimar. „Körfubolt-
inn hefur farið sem eldur í sinu eftir að
nýja íþróttahúsið kom til sögunnar.
Við fórum þá út í að standa fyrir æf-
ingum og erum með þjálfara á okkar
snærum. Það hefur verið giskað á það
væru um 100 krakkar, sem stunduðu
körfubollaæfingar innan okkar sam-
bands núna.
Á Skagaströnd er ekkert íþróttahús,
en notast er við félagsheimilið. Þar eru
menn farnir að huga að byggingu
íþróttahúss. Hið eina sem nú skortir
verulega á svæðinu er góð aðstaða til
Hópur sjálfboðaliða frá Umf. Hvöt við að þekja fótboltavöllinn á Blönduósi.
Gen’iefni lagt á atrennubraut íþróttavallar Umf. Vorboðans.
byggingu á íþróttamannvirkjum. Al-
mennt er viðhorf fólks hér á svæð-
inu til ungmennafélagshreyfingarinnar
mjög jákvætt og það hefur allt að
segja.“
Margir afreksmenn og -konur hafa
stigið sín fyrstu spor á íþróttavellinum
undir merkjum USAH. Sunna Gests-
dóttir er gott dæmi um það. Guðbjörg
Gylfadóttir kúluvarpari sem keppir nú
með ÍR, kemur frá USAH. Sama máli
gegnir um Helga Þór kringlukastara og
Daníel Smára Guðmundsson hlaupara.
Nú eru að minnsta kosti fjórir ung-
lingar af sambandssvæðinu komnir í
unglingalandsliðið.
„Af þessu sést að efniviðurinn er
alveg niður úr,“ sagði Valdimar. „ En
það er oft, þegar fólk fer að nálgast
toppinn, að það fer héðan. Það er vel
skiljanlegt, fólk er að mennta sig og
fær ekki vinnu við sitt hæfi hér. Svo er
aðstaðan til íþróttaiðkunnar betri fyrir
sunnan, þannig að fólk sækir þangað.
Við getum ekki boðið upp á sam-
bærilega aðstöðu og þeir sern vilja ná
langt sækjast auðvitað eftir því besta
sem völ er á. Aðrir detta út of snemma.
Þess eru dæmi að fólk sé farið að sýna
verulegan árangur. Þá allt í einu hættir
það. I öðrum tilvikum eru hér góð efni,
sem æfa aldrei frjálsar, en spila golf
eða eru í fótbolta. Þessir sömu mæta á
frjálsíþróttamótin og keppa með góð-
um árangri. Ef þetta fólk myndi stunda
æfingar næði það vafalaust langt.“
Skinfaxi
13