Skinfaxi - 01.12.1993, Side 16
Umf. Óöinn í Vestmannaeyjum:
Öflugt starf fyrir þau yngri
Árný Hreiðarsdóttir er þjálfari
Ungmennafélagsins Oðins í Vest-
mannaeyjum. Hún hefur af mikilli
eljusemi haldið utan um starfsemina í
mörg ár auk þess sem hún æfir og
keppir sjálf af miklum krafti í þrístökki
og langstökki.
Frjálsar íþróttir eru aðalviðfangsefni
félagsins. Meðlimir Óðins hafa líka
lagt lið ýmsum góðum málefnum í
heimabyggð sinni og má í því sam-
bandi nefna hreinsunarátak í Vest-
mannaeyjabæ auk þess sem þeir hafa
lagt gjörva hönd á plóginn við upp-
græðsluna eftir gosið fyrir 20 árum.
Þeir sem taka þátt í íþróttastarfinu
eru á aldrinum 6-15 ára að sögn
Árnýjar. Á sumrin er starfið öflugast
og fara þá æfingar fram á morgnana,
síðdegis og á kvöldin. Kveðst hún allt-
af hafa lagt áherslu á að kenna öllum
undirstöðuatriðin vel áður en lengra er
haldið. í Eyjum eru á hverju sumrin
haldin tvö mót í frjálsum íþróttum,
svokölluð vestmannamót og gámamót.
„Á því síðarnefnda gefa Gámavinir
alla verðlaunagripi og í sumar gáfu
þeir okkur alla búningana að auki. Þeir
eru stærsti styrktaraðilinn okkar. Þess
má geta til skýringar, að Gámavinir er
félagsskapur sjómanna sem selja fisk-
inn utan í gámum.
Á sumrin eru æfingar alla virka
daga nema föstudaga, þá gerum við
alltaf eitthvað sérstakt. Börnin taka þá
með sér hollt og gott nesti, - sælgæti er
bannað, og farið er í gönguferð, til
dæmis inn í Spröngu þar sem þau fá að
spranga að vild. Þeim sem ekki kunna
það er kennt það. Það er mikilvægt að
börnin læri þetta vel því það er svo
mikið gert af þessu hér í Eyjum. Við
kennum þeim líka að tína söl og þekkja
þau. Einu sinni á sumri er farið með
börnin í bátsferð í kringum eyjarnar.
Þá er fuglalífið skoðað, hellarnir og hin
fjölmörgu náttúrufyrirbæri hér. Við
tökum veiðistangirnar með og allir
renna fyrir fisk. Þetta þykir þeim rosa-
lega spennandi.“
Gist í garðinum
„Einn föstudaginn er farið í sérstaka
veiðferð út á Skans þar sem börnin
kasta fyrir fisk. Síðasta föstudag í
hverjum sumarmánuði býð ég þeim í
garðinn til mín þar sem við grillum og
höfum það huggulegt. Yngri börnin
tjalda þar og gista yfir nóttina en hinir
eldri fá að tjalda úti á „auða svæðinu“
eins og það er kallað, en það er rétt
innan seilingar, svo nálægt að ég get
fylgst vel með þeim. I fyrra var svo
mikil rigning um kvöldið að allir
neyddust til að koma inn, þá nótt var
allt troðið hjá mér. Þetta var ofsalega
skemmtilegt.“
Árný hefur ekki látið nægja að
bjóða gistingu í garðinum hjá sér, því
síðastliðna tvo vetur hefur hún boðið
bömunum heim í febrúar þegar lítið er
að gerast á íþróttasviðinu. Þá koma
allir með svefnpoka og dýnu og gista
hjá henni. Að kvöldi þessa dags sýnir
A Norðurlandameistaramóti öldunga í
Svíþjóð 1993, þar sem Arný varð þriðja í
langstökki.
Tjaldbiíðirnar í garðinum hjá Arnýju. Þar voru grillaðar pylsur og ýmislegt Jieira gert til
gamans.
16
Skinfaxi