Skinfaxi

Volume

Skinfaxi - 01.12.1993, Page 19

Skinfaxi - 01.12.1993, Page 19
Meðan beðið er Til hvaða landa hefur jólasveinninn komið? Borgarnöfnin gefa vísbendingu um það. Halló krakkar! Þá eru jólin á næsta leiti. Það er annars alveg merkilegt hve síðustu dagarnir fyrir hátíðina eru lengi að líða. Það er eins og þeir séu óendan- legir. Erfiðust er þó biðin á aðfanga- dag, því tíminn fram til klukkan sex er afskaplega lengi að líða. En allt tekur enda og loks gengur jólahátíðin í garð með öllum þeim hátíðarbrag sem tilheyrir henni einni. Það er ýmislegt hægt að gera meðan beðið er. Það má til dæmis hjálpa mömmu og pabba við undirbúninginn. Það er líka hægt að taka til í herberg- inu sínu eða gera eitthvað annað gagn- legt. Hér á síðunni eru nokkrar skemmti- © ® © ® © © © © Aðeins tveir af hringunum eru nákvæm- Finndu réttu tölurnar og settu þær í auðu reitina þannig að útkoman passi, bæði lóðrétt oalárétt. _ _ legar þrautir, sem þið getið spreytt ykkur á til að stytta ykkur stundirnar. Þær eru svolítið ntisþungar, en það er um að gera að gefast ekki upp. Og svo skulið þið endilega skrifa blaðinu ef ykkur dettur eitthvað skemmtilegt í hug. Þið getið til dæmis auglýst eftir pennavinum, sent sögur eða ljóð, myndir sem þið hafið teikn- að, eða sagt frá jólunum. Utanáskriftin er: Skinfaxi Fellsmúla 26, 108 Reykjavík Getur þú tekið burt 5 hjörtu í rammanum þannig að það verði 4 hjórtu í hverri röð, í stað 6 áður? I hvaða hringi má skytt- an skjóta til þess að fá samanlagt heildarsumm- una 100? Takið eftir því að það má skjóta oftar en einu sinni á hverja tölu. Lausnir eru annars staðar í blaðinu. Skinfaxi 19

x

Skinfaxi

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.