Skinfaxi - 01.12.1993, Blaðsíða 20
Landsmót á Laugarvatni ‘94:
Getum skapað ný
ævintýri
„Óhætt er að segja að aðstaða til
landsmótshalds á Laugarvatni sé af-
burðagóð, - ekki bara miðað við það
sem gerist í dreifbýli heldur einnig
miðað við þéttbýli,“ segir Ólafur Örn
Haraldsson framkvæmdastjóri lands-
móts ‘94, sem haldið verður á Laugar-
vatni.
Að sögn Ólafs verður íþróttavöll-
urinn endurbyggður eftir ströngustu
kröfum nánast frá grunni. Á staðnum
er tiltölulega nýtt íþróttahús, ný sund-
laug og endurbyggður malarvöllur. Þá
má nefna eldri aðstöðu sem enn er í
fullu gildi, - handboltavöll, gamla
íþróttahúsið og ýmislegt annað. Þessi
aðstaða er mjög góð auk þess sem hún
er samanþjöppuð og gerir kleift að
halda nánast öllu mótinu á sama
blettinum. Það kemur sér afar vel bæði
fyri keppendur og áhorfendur. Þarna
getur fólk gengið á milli mismunandi
greina og dagskráratriða á litlu svæði.
Um aðstöðu fyrir keppendur og
stjórnendur mótsins innan dyra móts-
dagana er það að segja að húsakostur
er mjög góður. Skólarnir bjóða upp á
svefnaðstöðu, eldunaraðstöðu, mötu-
Fulltrúar á sambandsþingi, sem haldið var
fyrir sér framkvœmdir.
neyti og matsal, vinnuherbergi og allt
sem til þarf. Þegar horft er til tjald-
svæðis fyrir keppendur og starfsmenn
er Ijóst að unnt er að hafa mjög af-
markað og skemmtilegt svæði alveg
upp að íþróttasvæðinu án þess það sé
ofan í gestum mótsins. Einnig er fyrir-
hugað að hafa fjölskyldubúðir í næsta
nágrenni. Keppendum þykir mikilvægt
að vera sem næst keppnissvæðinu.
Að sögn Ólafs er aðstaða fyrir gesti
í haust gengu um landsmótssvœðið og virtu
einnig mjög góð. Má í því sambandi
benda á tjaldstæðin sem eru á skipu-
lögðu svæði í skógarjaðrinum í útjaðri
þorpsins. Laugarvatn hefur jafnframt
upp á ýmislegt að bjóða eins og báta-
leigu, hestaleigu, gufubað og þar fram
eftir götunum, sem gestir geta notfært
sér þegar þeim býður svo við að horfa.
,,Ég hef talað við marga sem hafa
ósjálfrátt farið að rifja upp landsmótið
á Laugarvatni 1965 þegar landsmótið
næsta sumar hefur borið á góma,“
segir Ólafur. „Það kemur alltaf einhver
ljómi yfir menn sem segja manni sögur
af því þegar þeir voru að keppa, frá
skemmtilegum viðburðum sem gerðust
á mótinu, frá því þegar þeir hittu
kærusturnar sínar í fyrsta sinn á mótinu
og svo framvegis. Það er viss von
manna að þarna verði kannski hægt að
halda eitthvað svipað næsta sumar. Við
endurtökum náttúrlega aldrei neina
atburði en við getum skapað ný ævin-
týri.“
Góður völlur
A vellinum verða sex brautir á 100
metrunum, gerviefni á allri hlaupa-
brautinni, áhorfendastæði eru góð og
öll aðstaða til kast-og stökkgreina er
einnig mjög góð.
„Okkar stóra umhugsunarefni í
landsmótsnefndinni núna er þess vegna
fólgið í ýmsu því sem snýr að móts-
haldinu sjálfu, eins og skipulagi keppn-
innar, sýningargreinum og fjárhagshlið-
inni,“ segir Ólafur. „Keppnisgreinarnar
eru samkvæmt landsmótsreglugerðinni.
Segja má að landsmótsnefndin hafi lagt
á það áherslu að verjast því að vera með
verulegar breytingar hér á eins og kom
fram á nýafstöðnu ársþingi, hvort sem
mönnum líkar það betur eða verr. Ef
einhverjum greinum er bætt við vaknar
spurningin hvar við eigum að setja
mörkin, - hvers vegna ættum við til
20
Skinfaxi