Skinfaxi - 01.12.1993, Side 29
Körfubolti ífyrsta sinn hjá Umf. Fjölni:
Karfa á hverjum bílskúr
Ungmennafélagið Fjölnir í Grafar-
vogi vinnur nú að því að setja á stofn
körfuboltadeild. I vetur verður áhersla
einkum lögð á æfingar, en undirbún-
ingsnefndin, sem nú starfar ötullega að
stofnun deildarinnar hyggst fara rólega
í sakirnar meðan verið er að koma
skipulagi á hana og ýmislegt sem hana
varðar, svo sem húsnæðismál. Hefur
verið rætt um að stofna hana formlega
á næsta aðalfundi Fjölnis eftir áramót-
in.
„Ákvörðun um stofnun deildarinnar
var tekin á aðalfundi sl. vor,“ sagði
Egill Guðmundsson, sem sæti á í und-
irbúningsnefnd ásamt þeim Eggert
Ólafssyni og Teiti Gunnarssyni. Egill
sagði að mikill áhugi væri fyrir körfu-
bolta í Grafarvogi. Þannig hefðu 50-60
börn í Foidaskóla skrifað nöfn sín á
lista, þar sem farið var fram á að þau
fengju möguleika til að leika körfu-
bolta.
„Það hefur verið mikið um götu-
bolta hérna í hverfinu,“ sagði Egill.
„Það er nánast karfa á hverjum einasta
bílskúr, en því miður lítið af völlum.
Við ákváðum að taka eitt skref í einu
og vera ekkert að flýta okkur of mikið.
Það var því niðurstaðan að vera með
grunnskólastigið í vetur, þ.e. minni
boltann og upp í 10. bekk og láta þar
við sitja. Við erum því ekki með úr-
valsflokk, drengjaflokk né annað fyrir
ofan þennan aldur. Þessir flokkar geta
komið inn á næsta ári ef áhugi er fyrir
hendi. I hverfinu eru menn sem æfa
með öðrum félögum í meistaraflokki,
unglingaflokki o.s.frv. Þeir myndu
jafnvel vilja æfa með Fjölni, en það
hefur ekkert verið ákveðið í þeim efn-
um enn.“
Tvískiptir flokkar
„Við erum nú með 8 flokka,“ sagði
Egill enn fremur. „Sumir flokkanna
eru tvískiptir því í þeim eru svo marg-
ir. Við erum með minni bolta frá 6 ára
og upp í 1 I ára. Síðan erum við með
7., 8., 9„ og 10. flokk fyrir stráka og
Það er vel mœtt á körfuboltaœfingarnar í
Grafan’oginum. Hér er b-lið 7. flokks mœtt
til leiks.
minni bolta fyrir stelpur. Þær hafa ekki
sýnt mikinn áhuga á þátttöku í eldri
flokkunum. Við stefnum að því á
næsta ári að fá fleiri stelpur inn.“
Körfuboltadeildin er með aðstöðu til
æfinga í Hamraskóla í Grafarvogi.
Fimm þjálfarar sjá um að þjálfa flokk-
ana. Æfingar hafa gengið ágætlega og
það hefur verið vel mætt á þær.
Stundum hafa mætt allt að 35 á eina og
sömu æfinguna. Þá hefur hópnum ver-
ið skipt upp, til þess að allir gætu tekið
þátt. Nú mæta vel yfir hundrað krakkar
á æfingar hjá félaginu.
Áhugasamir þjálfarar
„Þjálfararnir eru mjög áhugasamir
og finnst gaman að fá að taka þátt í
þessari uppbyggingu,“ sagði Egill.
Við leggjum áherslu á að vinna þetta
frá grunni og vera ekki að taka þátt í
mótum fyrr en komið er skipulag á
starfið. Þó er búið að skrá okkur á
Reykjavíkurmót.“
lnnan Fjölnis eru nú starfandi
handboltadeild, fótboltadeild, tennis-
deild, ásamt frjálsíþrótta- og karate-
deild. „Áhuginn fyrir körfubolta virðist
svo sannarlega vera til staðar, og verði
deildin stofnuð, sem ég held að sé
engin spurning, þá ætlum við að vinna
þetta frá grunni og stefna að því að
vera með öfluga körfuboltadeild hjá
Fjölni,“ sagði Egill að lokum.
Oáfeng jólaglögg
Bindindisdagur fjölskyldunnar var
haldinn 26. nóvember sl. og tók Ung-
mennafélag íslands þátt í því verkefni
ásamt ýmsum aðilum. Reynt var með-
al annars að vekja athygli foreldra á
ábyrgu uppeldi og forvarnarstarfi
meðal ungs fólks.
I tilefni þess birtum við hér upp-
skrift að góðum, óáfengum drykk,
sem er tilvalinn til að bera fram með
piparkökum á aðventu og jólum. Til
eru fjölmargar uppskriftir að óáfeng-
um drykkjum. Þá eigum við völ á
margs konar hreinum ávaxta- og
mjólkurdrykkjum og svo fást líka
óáfeng vín. Það er því auðvelt að
finna eitthvað við hæfi. Jólin eru hátíð
allrar fjölskyldunnar. Við ættum því
að bjóða óáfenga drykki á jólunum.
Hér kemur svo uppskriftin:
Sólskin
2 dl sterk sólberjasaft
2 dl vatn
3 1/2 dl eplasafi
3 negulnaglar
lítið eitt af kanel
1/2 dl rúsínur
20 afhýddar möndlur
Blandið saman saft, vatni, eplasafa
og kryddinu. Hitið og látið sjóða hægt
í nokkrar mínútur. Skiptið möndlum
og rúsínum í glösin. Tilvalið að bera
fram með piparkökum.
Skinfaxi
29