Skinfaxi - 01.12.1993, Page 30
Almenningsdeild Fjölnis í Grafarvogi:
Þar rúmast allir
Það er mikið fjör í íþróttaskólanum, sem Erla Gunnarsdóttir stýrir.
í Ungmennafélaginu Fjölni í
Grafarvogi er starfrækt svo-
kölluð almenningsdeild sem
hefur vaxið mjög fiskur um
hrygg þann stutta tíma sem hún
hefur verið við lýði. Undir
handarjaðri hennar starfa af
miklum krafti íþróttaskóli fyrir
börn 3-6 ára, trimmflokkur og
hópar í kvennaleikfimi. For-
maður deildarinnar er Sigurður
Sigurðsson. Hann var beðinn
um að segja frá starfsemi
hennar.
„Almenningsdeildin var stofnuð til
að halda utan um það starf sem ekki er
hægt að flokka undir hefðbundnar
íþróttagreinar á borð við handbolta,
fótbolta, körfubolta og frjálsar íþróttir.
Einnig var gert ráð fyrir að við færum
af stað með greinar á borð við blak
sem gætu þá byrjað hjá okkur og orðið
sjálfstæðar deildir síðar meir þegar þær
hefðu öðlast meiri þrótt.
Um þessar mundir eru um 50 börn í
íþróttaskólanum. Æft er í tveim hópum
einu sinni í viku og fara æfingarnar
fram á laugardögum. Við erum með
skólann í námskeiðsformi og hvert
námskeið stendur yfir í 6 vikur í
senn.“
Ætlað að efla hreyfiþroska
„Skólanum er ætlað að efla hreyfi-
þroska barna. Við höfum verið mót-
fallin því að stofnaðir séu 8. og 9.
flokkur í boltaíþróttunum. Við teljum
óæskilegt að sérhæfingin byrji of
snemma, við eigum fremur að leggja
áherslu á hreyfiþroskann og áhuga
barna á íþróttum almennt.
Á námskeiðinu er farið með þeim í
boltaleiki, hæfnisþrautir og eltinga-
leiki, þau eru látin ganga eftir línunum
sem málaðar eru á gólfin og þar fram
eftir götunum. Við teljum að þetta sé
góður grunnur að því að þau geti
sérhæft sig síðar meir. Við teljum ekki
tímabært að þau fari í flokkaíþróttir
fyrr en þau eru orðin 7-8 ára.
Börn hreyfa sig oft og tíðum ekki
nægilega mikið, þegar þau sitja
kannski tímunum saman fyrir framan
sjónvarp og tölvuleiki. Með þessu
starfi viljum við virkja þau og vekja
áhuga þeirra á leikjum og íþróttum. I
skólann hafa nokkur börn komið fyrir
tilhlutan lækna eftir hina reglubundnu
skoðun við fjögurra ára aldur. Þeim
finnst þá hreyfiþroska viðkomandi
ábótavant. “
Trimmað af kappi
Trimmhópur Fjölnis kemur saman í
Hamraskóla þrisvar í viku. Mætingin
er svolítið mismunandi eftir dögum,
veðri og árstíðum, en þegar flest er
mæta um 40 manns.
„Upphitunaræfingar eru gerðar í
íþróttasalnum og að því búnu er farið
út og skokkað um hverfið. Búið er að
merkja þó nokkuð margar leiðir, mis-
jafnlega langar, inn á kort og síðan
hleypur hver um sig sína leið og á
þeim hraða sem hann kýs. Fólk er að
hlaupa frá 3 og upp í 12 kílómetra.
Þarna safnast saman fólk á öllum
aldri til að hreyfa sig. Þetta er góður
félagsskapur. Það er enginn kostnaður
á bak við þetta, nema hvað við höfum
látið útbúa sérstaklega merkta boli sem
fólk kaupir til að geta einkennt sig
þegar það tekur þátt í víðavangshlaupi
til dæmis.“
Kvennaleikfimin á miklum vinsæld-
um að fagna á meðal kvenna í Grafar-
vogshverfinu og eru þetta annar vetur-
inn sem hún er stunduð á markvissan
hátt. Hún fer nú fram í litlum sal í
kjallara hins nýja íþróttahúss Fjölnis.
30
Skinfaxi