Skinfaxi - 01.12.1993, Blaðsíða 39
á? Hver af þeim námskeiðum sem þú
hefur ekki sótt hefur þú áhuga á eða
telur þú að geti komið til móts við
óskir þínar?
Ert þú með hugmynd að einhvers
konar námskeiði sem hugsanlega fleiri
hefðu áhuga á að sækja ef boðið væri
upp á það? Hugsanlega hefur þú áhuga
á að sækja aftur námskeið sem er
hliðstætt einhverju sem þú hefur sótt
áður, þér til upprifjunar eða stað-
festingar á því að þú hafir enn ágæta
yfirsýn yfir viðfangsefnið.
Það eru rneðal annars svona
spurningar sem þátttakendur á
námskeiðum félagsmálskólans
freista að svara - að minnsta
kosti fyrir sitt félag. Samhliða
stuttum fyrirlestrum leiðbein-
enda fá þátttakendur jafnframt
úr reynslusjóði annarra ýmsar
hugmyndir urn viðfangsefni og
aðferðir við framkvæmd þeirra.
Hvað hefur mitt félag þang-
að að sækja?
Hver af námskeiðum félags-
málaskólans gætu verið liður í
þeirri viðleitni þíns félags að
gera meira fyrir félagsmenn og
að auka þeim innsýn í þá möguleika
sem starfsemin býður upp á? Megin-
tilgangur félagsmálaskólans er að
koma til móts við þarfir og óskir
einstaklinga jafnt sem félaga. Þetta er
meðal annars gert með því að reyna á
allan hátt að bjóða upp á hverskonar
námskeið sem geta beint eða óbeint
verið til framdráttar þeirn viðfangs-
efnum sem hin ýntsu félög vinna að
hverju sinni.
Hver af námskeiðum félagsmála-
skólans hafa staðið félagsmönnum í
þínu félagi til boða? Ef þér finnst lítið
framboð af námskeiðum á þínu félags-
svæði þá er víst að í þjónustumiðstöð
UMFI verða fyrir svörum starfmenn
sem geta frætt þig um ýmsa möguleika
á námskeiðum og eru boðnir og búnir
til að veita allar upplýsingar um nám-
skeiðaframboð. Einnig er það við-
fangsefni þeirra að hafa milligöngu um
að koma á hvers konar námskeiðum
auk þeirra sem félagsmálaskólinn
býður upp á og eru upp talin annars
staðar í þessu blaði.
„Yfirtil þín“
Um leið og þú eða einhver frá þínu
félagi hafa samband er unnt að byrja
að svara sértækum spurningum um
hvað félagsmálaskólinn getur gert og
hvernig hann hyggst gera það. Vænt-
anlega mun á næslu mánuðum
verða boðið upp á tiltekin
námskeið á vegum héraðssam-
banda víðsvegar um landið en
allar hugmyndir og uppástung-
ur sem berast hjálpa til við að
draga fram hverjar þarfir ein-
staklinga og félaga eru fyrir
námskeið. Þau sem vinna að
málefnum félagsmálskólans
eru tilbúin að taka við hvers
kyns ábendinum og beiðnum
og sinna þeim eftir mætti.
Félagsmálaskólinn er jú fyrst
og fremst fræðsluþjónusta við
félög og einstaklinga og sent
slíkur fæst hann við að þjóna
þér og þínu félagi! Hafðu samband og
láttu reyna á hvort hægt er að verða við
óskum þínum.
F.h. stjórnar félagsmálaskólans
Sigurður Albert Ármannsson
Bankastræti 6. Sími 18600
Landsbanka-skutlan:
Nú geta allir æft spjótkast
Nú geta allir æft spjótkast, þótt
ekkert eigi þeir spjótið, því nú er
fáanleg svokölluð Landsbanka-
skutla, sem hefur að flestu leiti
söntu eiginleika og spjót og er því
tilvalið áhald fyrir hvern þann
sem hefur áhuga á að kasta eða
mæla getu sína. Skutlan gefur
fleirum tækifæri til að spreyta sig
á spjótkasti, því hún er miklu
ódýrari heldur en venjulegt spjót.
Það er því hægt að nota hana til
æfinga til að byrja með, en kaupa
síðan spjót ef viðkomandi hyggst
leggja þessa íþróttagrein fyrir sig.
Allar frekari upplýsingar um
skutluna fást hjá íþróttafélögum
Hún er ekki jyrirferðannikil skutlan, en er þó eða útibúum Landsbankans um
gœdcl sömu eiginleikum og venjulegt spjót. land allt.
Skinfaxi
39