Skinfaxi - 01.12.1994, Síða 7
miklu leyti sem mögulegt reynist. Til
dæmis hyggst formaður USAH taka að sér
starf framkvæmdastjóra mótsins og verður
það ólaunað. Að öðru leyti vísast lil viðtals
við formanninn, Valdimar Guðmannsson,
annars staðar í blaðinu.
Stefnumótun
Stefnumótunarnefnd UMFI fjallar um
framtíð og stöðu ungmennafélagshreyfing-
arinnar og hefur nefndin starfað af fullum
krafti við gagnasöfnun og hvers kyns öflun
upplýsinga og viðhorfa sem mega koma að
gagni við mótun framtíðarstefnu hreyfing-
arinnar. Er gert ráð fyrir að lokaskýrslu
verið skilað fyrir 39. sambandsþing UMFÍ
haustið 1995.
Á lýðveldishlaupið hefur áður verið
minnst, en framkvæmd þess tókst með
miklum ágætum og var mikil og góð kynn-
ing fyrir hreyfinguna.
Ákveðið hefur verið að stokka upp allt
starf Bréfaskólans. Einnig hefur verið
ákveðið að leita eftir fleiri eignaraðilunt að
honum, en þeir eru nú átta talsins.
Bindindisdagur fjölskyldunnar var 26.
nóvember 1993. Að honum stóðu Stór-
stúka íslands, ásamt fleiri samtökum, þar á
meðal Ungmennafélagi Islands. Að hálfu
UMFÍ fólst þátttakan í greinaskrifum og
áróðri á ýmsum vettvangi. Einnig var farið
í Kringluna á bindindisdaginn, þar sem
uppskriftum að óáfengum drykkjum var
dreift og rætt við fólk. Þá fóru fulltrúar
UMFÍ í viðtöl á útvarpsstöðvum.
Samskipti UMFÍ við systursamtök á
Norðurlöndunum hafa verið mikil og góð á
þessu starfsári svo sem endranær. Fulltrúar
hreyfingarinnar sóttu aðalfund NSU og
stjórnarfundi. Á haustdögum 1993 fóru
Þorsteiim Einarsson afhenti Pálma Gísla-
syni skrá yfir öll íþrótta- og ungmennafé-
lög í landinu.
Landsmótsnefnd var ein þeirra nefnda sem stöifuðu á sambandsráðsfundinum.
Ekkert áfengi í
keppnisferðum
29. sambandsráðsfundur UMFI,
haldinn í Grafarvogi 5. nóvember
1994, hvetur ungmenna- og íþrótta-
félög, þjálfara og fararstjóra, til
þess að sjá til þess að í keppnisferð-
um sé áfengi eða önnur vímuefni
ekki höfð um hönd.
stjórnarmenn og framkvæmdarstjórar
nokkurra sambandsaðila í kynnisferð til
Hollands. í júlí hafði þjóðdansa- og tónlist-
arhópur frá Berea í Kentucky, Bandaríkj-
unum, viðdvöl hér í skamman tíma. Tóku
tveir fulltrúar UMFÍ á móti hópnum og er
hugmyndin að tengjast honum síðar með
gagnkvæm skipti í huga.
Ungbændaráðstefna NSU var haldin í
maí sl. og er nánar sagt frá henni annars
Eflum íslenska
framleiðslu
29. sambandsráðsfundur UMFÍ
hvetur alla íslendinga til að halda vöku
sinni hvað varðar kaup á íslenskri
framleiðslu. Það getur skipt sköpum
fyrir þúsundir Islendinga að íslensk
vara sé keypt, fremur en innflutt.
Þá felur fundurinn stjórn UMFÍ að
halda áfram baráttu undir kjörorðinu
„Eflum íslenskt" í samvinnu við sam-
bandsaðila og aðra sem áhuga hafa.
staðar í blaðinu. Einnig er fjallað um ferð
nokkurra forystumanna í ungmennafélags-
hreyfingunni á danska landsmótið í sumar.
Þá kom hingað til lands hópur forystu-
manna frá DGI, systursamtökum UMFI, til
að kynna sér uppbyggingu íþróttamála og
ungmennafélagsstarfsemi á Islandi, ein-
stakar íþróttagreinar og hreyfinguna í
heild.
Ungntennavikan var að þessu sinni
haldin í Danmörku í byrjun ágúst og tók
fimmtán manna hópur frá Islandi þátt í
henni.
Loks má geta þess að Ungmennafélag
Islands er nú orðið fullgildur aðili að
NORDLEK, sem eru samtök þjóðdansafé-
laga á Norðurlöndum.
Formaður UMFI afhenti þeim Þóri Har-
aldssyni og Olafi Erni Haraldssyni staifs-
merki UMFI á sambandsráðsfundinum.
Skinfaxi
7