Skinfaxi - 01.12.1994, Síða 19
Frá stofnfundi Ungmenna- og íþróttafélags Bakkafjarðar.
Nýtt ungmennafélag á Bakkafirði:
Bætt íþróttaaðstaða
„Það hefur oft verið talað um að stofna
ungmennafélag hér, en það hefur ekkert
orðið af því fyrr en nú,“ sagði Gunnþórunn
Steinarsdóttir formaður nýstofnaðst ung-
mennafélags á Bakkafirði. Hefur það hlot-
ið nafnið Ungmenna- og íþróttafélag
Bakkafjarðar.
Að sögn Gunnþórunnar var það skóla-
stjóri grunnskólans á staðnum, Valbjörg
Jónsdóttir sem átti frumkvæðið að stofnun
félagsins. Hún fékk nokkra með sér í und-
irbúningsnefnd, þar á rneðal Gunnþórunni,
til að kanna áhuga fólks fyrir stofnun ung-
mennafélags á staðnum. Hann reyndist
vera fyrir hendi og var þá ákveðið að
ganga til verks.
„Hugmyndin hafði verið til staðar, en
það vantaði bara einhvern til að hrinda
henni í framkvæmd," sagði Gunnþórunn.
Næsta skrefið var að bera auglýsingu
um stofnfund í hús. Hann var síðan haldinn
sunnudaginn 2. október sl. A hann mætlu
- er efst á verkefnalistanum
um 40 manns og gerðust 37 stofnfélagar. I
stjóm voru kjörin: Gunnþórunn Steinars-
dóttir, formaður, Díana Ægisdóttir, Arndís
Einarsdóttir, Áki Guðmundsson og Hjálm-
fríður Björk Bragadóttir.
Fótboltavöllur og
glímukennsla
„Tilgangur þessa félags er að efla fél-
agsstarf, tómstundastarf og íþróttastarf í
þorpinu. Það hefur ekki verið nógu mikið
um slíka starfsemi. Hún hefur verið með
daufasta móti yfir vetrartímann,“ sagði
Gunnþórunn. „Meðal þess sem er á stefnu-
skránni er að koma hér upp almennilegum
fótboltavelli. Hér hefur verið töluverður
áhugi fyrir fótbolta í gegnurn tíðina en fjár-
magnið hefur vantað. Það hefur meir að
segja ekki verið gengið frá lóðinni f kring-
um grunnskólann enn sem komið er, en við
ætlum að gera okkar til að það komist í
lag.
Á næstunni ætlum við að fara af stað
með glímukennslu fyrir börnin í grunn-
skólanum. Við höfum einnig áhuga á að
koma af stað körfubolta. Þá er félagsmála-
námskeið á dagskránni, en það verður lík-
lega afstaðið þegar þetta kemst á prent,
reynist nægur áhugi fyrir hendi. Við ætlum
einnig að efna til handíðanámskeiða, en
þau eru alltaf vinsæl fyrir jólin. En við ætl-
um ekki að ráðast í alltof mikið til að byrja
með.“
Gunnþórunn sagði að talsverður íþrótta-
áhugi hefði verið á Bakkafirði í gegnum
tíðina og væri hann alltaf að aukast. Að-
staðan væri hins vegar léleg. Heilsuvakning
væri nú orðin áberandi á staðnum og hefðu
t.d. allmargir tekið sig saman um að fara út
að ganga á hverju kvöldi. Ungmenna- og í-
þróttafélagið myndi að sjálfsögðu styðja
við alla slíka starfsemi eftir föngum.
Skinfaxi
19