Skinfaxi - 01.12.1994, Blaðsíða 30
BARNASIÐAN
Halló krakkar!
Hér eru þrautir sem þið hafið vonandi gaman af
að spreyta ykkur á að leysa. Það styttir biðina eftir
jólunum. Sumar eru svolítið snúnari en aðrar, en þá
er um að gera að gefast ekki upp. Það er nefnilega
alltaf gaman þegar maður hefur sigrast á erfiðri
þraut.
Sjálfsagt eruð þið öll farin að hlakka til jólanna.
Það þekkja allir tilfinninguna sem grípur mann þeg-
ar hátíðin gengur í garð klukkan sex á aðfangadag.
Þá nær margra daga tilhlökkun hámarki. Jólaundir-
búningurinn er að baki og allir komnir í hátíðar-
skap.
Svo dregur að áramótum, árið 1994 er kvatt og
við tekur nýtt ár með nýjum ævintýrum. Þá er gott
að líta til baka og hugsa um það helsta sem gerðist
á gamla árinu, það það sem tókst vel og hitt sem
hefði mátt fara betur. Það er góður siður að einsetja
sér að nota nýtt ár til að reyna að bæta úr því sem
miður hefur farið.
Skinfaxi óskarykkur
gleðilegra jóla
og gœfuríks, nýs árs.
HVAÐA HLUTIR EIGA SAMAN?
Hér eru 18 mismunandi hlutir. Getur þú fundið
hvaða tveir hlutir passa saman?
HVER ER ALVÖRUJÓLASVEINNINN?
Hér eru níu jólasveinar. Einn þeirra er alvörujólasveinn, en hinir eru
bara að plata. Til að auðvelda þér að finna þann rétta færðu að vita
nokkur atriði:
1. Hann er ekki með skegg.
2. Hann er ekki að renna sér á skíðum.
3. Hann er í tréskóm.
4. Hann er í röndóttum sokkum.
É
HVAÐA HNÚTAR HALDA?
Hér eru átta hnútar. Sumir rakna upp, þegar togað er í endana, en aðr-
ir halda. Getur þú fundið út hverjir „alvöruhnútarnir" eru? Ef þú ert í
vafa getur þú búið til eims hnúta og athugað hverjir halda.
30
Skinfaxi