Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1995, Blaðsíða 5

Skinfaxi - 01.05.1995, Blaðsíða 5
Að vera ung- mennafélagi Ágætu lesendur. Það er tvennt sem mig langar til að játa fyrir ykkur. Ann- að er hversu stoltur ég er af því að vera ungmennafélagi. Hvort heldur sem tekið er þátt í íþróttum, leiklist, umhverf- isverkefnum eða einhverju öðru ungmennafélagsstarfi, þá finn ég ekki aðeins lífsfyllingu. Eg er líka að aga og þroska sjálfan mig og taka þátt í að skapa betra samfélag til að lifa í. Að vera ungmennafélagi er nefnilega lífsviðhorf og ég fullyrði, að þetta lífsviðhorf og það mikla starf sem ungmennafélagar inna af hendi verð- ur einstaklingnum til gleði og þroska og samfélaginu til gagns. Já, ég er stoltur af því að vera ungmennafélagi og ég vona, og ég veit, að svo er um ykkur líka. Það er svo sannar- lega ástæðatil! Svo er það hitt, sem ég er ekki stoltur af. Það er að vera bindindismaður. Það er ekki nokkur ástæða til að hreykja sér af þeirri sjálfsögðu ákvörðun að neyta ekki áfengis og Þfa lífinu lifandi með óbrengluð skilningarvit. En ég skammast mín stundum pínulítið og líður illa vegna vina minna sem sýna það dómgreindarleysi að ætla börnum sín- um að neyta ekki vímuefna, en neyta sjálfir áfengis. Stórmerkar rannsóknir félagsvísindastofnunar Háskóla Is- lands sýna, að þátttaka í íþrótta- og félagsstarfi er öflug for- vörn gegn áfengisneyslu. Þess vegna skammast ég mín meira fyrir að við, sem íþrótta- og félagshreyfing, skulum ekki taka einarðari og ákveðnari afstöðu gegn áfengisneyslu. Og ég roðna af skömm yfir að hafa setið þegjandi hjá er HSÍ og forsvarsmenn bæjarfélaga sýndu þá lítilmennsku og heimóttarskap að hafa áfengisveitingar á íþróttamóti. Hvar ætla menn að draga mörkin hér eftir. Hvenær verður opinn bar á Landsmóti? Eg skora á alla ungmennafélaga að taka einarða afstöðu gegn áfengisneyslu, mesta heilbrigðisvandamáli þjóðarinn- ar og mestu ógn við framtíð ungs fólks. Þegar við höfum gert upp hug okkar og tekið afstöðu í orði og verki, þá höf- um við áreiðanlega enn meira til að vera stolt af. íslandi allt, Matthías Lýðsson. Eftirtaldir aðilar styrkja umhverfis- verkefni UMFÍ1995 UMHVERFIÐ í OKKAR HÖNDUM Vífilfell Stuðlahálsi 1 Hitaveita Reykjavíkur Islenska Útvarpsfélagið Hrói höttur Verslunarmannafélag Reykjavíkur Kringlunni 7 Litla kaffistofan Svínahrauni Hveragerði Skinfaxi 5

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.