Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1995, Blaðsíða 34

Skinfaxi - 01.05.1995, Blaðsíða 34
Bændaglíman mikla Allir viðstaddir stjórnannenn Glímusambandsins tóku þátt í bœndaglímunni. Frá vinstri. Jón M Ivarsson ritari, Rögnvaldur Olafsson formaður og Hjálmur Sigurðsson gjaldkeri. varð önnur. Soffía Bjömsdóttir varð þriðja og síst voru nein vettlingatök í þessum flokki, enda keppnin spennandi. Þær Rakel Theódórsdóttir frá Laugar- vatni og Inga Gerða Pétursdóttir úr Mý- vatnssveitinni tókust á um sigurinn í telpnaflokki og hafði Inga Gerða betur. Þótti frækilegt er hún lagði Rakel, sem er talsvert hávaxnari á klofbragði. Það hefur hún náttúrlega numið hjá föður sínum, Pétri Yngvasyni, sem er aðalþjálfari Þing- eyinga. Þriðja varð eina stúlkan í stráka- hópnum frá Sauðárkróki, Tinna Björk Guðmundsdóttir. Tinna er stór og sterk og þótti lakast hvað stelpumar á Sauðárkróki eru óduglegar að glíma svo hún fékk enga með sér í keppnina. I meyjaflokknum glímdu einungis sunn- lenskar valkyrjur og var keppnin afar tví- sýn. Bikarmeistarinn frá því í vetur, Mar- grét Ingjaldsdóttir sigraði nokkuð ömgg- lega, enda vel að manni og hefur æft af dugnaði í vetur. Næst kom jafnaldra henn- ar Dröfn Birgisdóttir en það má heita fast- ur liður á glímumótum að þær geri jafn- glími því svo flínk er Dröfn í vöminni að Margrét kemur henni helst aldrei í gólfið þrátt fyrir nokkum styrkleikamun. Brynja Gunnarsdóttir sígraði Magneu Svavars- dóttur af harðfylgi í úrslitaglímu um þriðja sætið en allar viðureignir vom jafnar og spennandi. I léttari kvennaflokknum sigraði Kar- ólína Olafsdóttir Katrínu Astráðsdóttur fé- laga sinn úr HSK nokkuð örugglega en fleiri vom ekki í flokknum. Karólína er án vafa fjölhæfasta og sterkasta glímukona landsins og hefur ekki tapað viðureign á árinu. Katrín er yngri og ekki jafn sterk enn sem komið er en afar glímin og kjörin efnilegust meðal yngri kynslóðarinnar á síðasta ári af stjórn Glímusambandsins. í þyngri flokknum sigraði Ingibjörg Björnsdóttir HSÞ eftir harða keppni við Jó- hönnu Jakobsdóttur Ármanni og Sjöfn Gunnarsdóttur HSK. Þar skildi á milli að Ingibjörgu tókst að útfæra hábrögðin betur, enda sterk og kappsöm og sigraði því verð- skuldað. Þau yngri fyrir norðan virðast ætla að fylgja þingeyskri glímuhefð fast fram. Synir og dætur taka við af feðrum og lofa góðu fyrir HSÞ og glímuna. 6. bekkur stúlkna. Vinkonurnar úr Grunn- skóla Skútustaðahrepps sem sigruðu þrefalt í 6. bekk. F.v. Inga Gerða Péturs- dóttir, Sigrún Jóhannsdóttir og Brynja Hjörleifsdóttir. Þegar keppni lauk var slegið á létta strengi og efnt til fjölmennrar bændaglímu meðal allra viðstaddra. Bæði keppendur og starfsmenn, karlar og konur glímu- væddust og vom tæplega 50 manns með í leiknum. Bændur voru þeir Kristján Yngvason, aldursforseti keppenda og Rögnvaldur Olafsson formaður GLI sem var næstelstur. Keppnin var til heiðurs Rögnvaldi sem hætti nú formennsku eftir 10 ára starf. Þeir kusu sér lið og svo var glímt allt hvað af tók. Var mikil stemming meðan glíman fór fram og skemmtu allir viðstaddir sér konunglega meðan glímt var til síðasta manns. Þama glímdu stelpur við stráka, karlar við drengi og stúlkur við yngissveina. Fór einkum sögum af hvað hinn ungi Þingeyingur, Sigurður Kjartans- son var viðbragðsfljótur þegar ungu stúlk- umar birtust á glímuvellinum. Héldu Sig- urði engin bönd, hann varð að fá að taka á þeim. Vakti þetta mikið glens og margar aðrar skemmtilegar viðureignir. Féllu að lokum liðsmenn allir og foringjamir báðir en eftir stóð Ingibergur Sigurðsson einn í liði Rögnvaldar. Glímdi 31 kappglímu! Þar með lauk þessari miklu glímuhelgi og varla laust við að þeir sem mest höfðu glímt væru famir að lýjast. Að öðrum ólöstuðum ætti Þorkell Snæbjömsson hik- laust að teljast glímukóngur helgarinnar. Þessi efnilegi glímumaður frá Laugarvatni glímdi hvorki meira né minna en 31 kapp- glímu um helgina. Hann keppti í grunn- skólamótinu á laugardeginum og síðan í sveitaglímunni um kvöldið. Daginn eftir var meistaramótið og að lokum bænda- glíman. Félagi hans, Daníel Pálsson stóð sig einnig bærilega. Hann glímdi 26 glímur og þar af 6 í Bændaglímunni sem er frábær árangur. 34 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.