Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1995, Blaðsíða 12

Skinfaxi - 01.05.1995, Blaðsíða 12
Með kríngluna, spjótið og kúluna. fyrir tveim árum, enda er ekkert langt síðan ég byrjaði að æfa af krafti. Ég hafði aldrei möguleika á því, því ég var alltaf að vinna á sumrin inni í Búrfelli, eða öllu heldur inni á afrétti. Ég gat ekki verið að fá frí í vinn- unni sínkt og heilagt til þess að fara á æf- ingar. Svo voru æfingarnar á Selfossi kl. 5 eða 6 á daginn, en ég var að vinna til 7. Það sér hver maður hvernig það kom heim og saman, svo það var ekkert hægt að kenna leti í mér um. En menn skildu ekkert í þess- um manni sem kom beint úr vinnunni á mótin, vann, og fór svo aftur. Þeim fannst að hann ætti að æfa meira.“ Svo gerðist það sem margir höfðu beðið eftir, Jón Amar fór að æfa. „Mig langaði til að sjá hvað ég gæti gert ef ég æfði vel og það virðist hafa virkað. Ég hætti ekkert núna, því ég vil sjá hvað ég næ langt. Þetta er orðið miklu meira heldur en ég bjóst við.“ Jón Amar á ekki langt að sækja íþrótta- áhugann. Móðir hans, Þuríður Jónsdóttir, var frægur íþróttagarpur innan HSK. Sama má segja um bræður hennar Guðmund, Sigurð og Kára Jónssyni. Þau systkinin sigruðu oft á landsmótum hér áður og sýndu mikið keppnisskap og dug. „Þau hafa mikinn áhuga á því sem ég er að gera og em vel með á nótunum," segir Jón Amar og þykir auðheyranlega gott að hafa fjölskylduna með í baráttunni. Hann á tvö systkin, 19 ára systur og 11 ára bróður. Systirin er á kafi í hestaíþróttum og bróðir- sér jörð og byrja að búa. „Mér datt þetta svo sem einhvern tíma í hug,“ segir Jón Amar. „En ég var víst ekki nógu staðbund- inn til að úr því gæti orðið. Það var líka alltaf mikið ferðablóð í mér. Á tímabili var ég aldrei heima hjá mér, heldur í jeppa- ferðum hingað og þangað. Ég var hálfgerð- ur jeppakarl og er enn. Ég fór mikið um hálendið, en það hefur minnkað mikið þar sem tíminn fer að miklu leyti í æfingar." Jón Arnar hefur aldrei átt eigin jeppa. En hann hefur hafíst handa við að bæta úr því. „Ég hef verið að dunda mér við að smíða einn, gamlan Willis-jeppa, árgerð 65. Nú stendur hann hálfgerður fyrir norð- an, því ég hef engin tök á að vinna neitt í honum núna.“ Hugurinn er bundinn við fleira en íþróttir og jeppasmíðar. Jón Arnar hefur einnig gaman af veiðiskap. Hann skyldi þó ekki vera einn þeirra sem kaupa sér fokdýr veiðileyfi í bestu ám landsins? „Nei, nei,“ segir hann og skellihlær að tilhugsuninni. „Mesta sportið hjá mér var að stelast í smásprænu heima, þegar ég var á spenningsaldrinum. En ég hef gaman af að stunda skotveiði og fer á rjúpu og gæs á hverju ári.“ Og nú er hann trúlofaður stúlku á Sauðárkróki, Huldu Ingibjörgu Skúladóttur. Þau eru að byggja sér sameig- inlega framtíð og möguleikamir eru ýmsir. „Ef til vill förum við til útlanda þegar Olympíuævintýrið á næsta ári er búið. Það inn „á fullu" í öllum íþróttum sem hann kemst í að stunda. Ekki nógu staðbundinn Einhvem tíma hvarflar að flestum þeim, sem fæddir eru og uppaldir í sveit, að fá Eftir liarða keppni í grindahlaupi. 12 Skinfaxi

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.