Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1995, Blaðsíða 27

Skinfaxi - 01.05.1995, Blaðsíða 27
íþróttahreyfingin spratt að nokkru leyti upp af ungmennafélögunum, en fyrr en varði var hún orðin aðalfarvegur félags- málaáhuga og starfsemi margra ungmenna- félaga, einkum í þéttbýli. Síðan þutu upp sambærileg félög, hvert af öðru, og sinntu knattleikjum, frjáls- íþróttum, glímu, sundi, fimleikum, skíðum, skautum og mörgu fleiru. Nú í dag er starfræktur fjöldinn allur af íþrótta- og ungmennafélögum víða um landið, sem sinna fólki á öllum aldri á sviði íþrótta og félagsmála. Það er mín íslenskt einmitt Islenskar vörur eru margs konar, mat- væli, húsgögn, hreinlætisvörur, bækur og margt, margt fleira. Það er mjög mikilvægt að allir íslendingar kaupi frekar íslenskar vörur en útlendar því það skapar atvinnu og svo fólk geti lifað þarf það að hafa at- vinnu. Sonja Líndal Þórisdóttir 3 bekk, Laugarbakkaskóla. skoðun að öflugt og gott íþróttalíf í hverju bæjarfélagi haldi börnum og unglingum frá drykkju áfengis og notkun á öðrum vímu- efnum. íþróttafélögin standa fyrir heil- brigðum lifnaðarháttum og veita okkur unga fólkinu tækifæri til að styrkja okkur á allan hátt og gera okkur um leið að betri einstaklingum fyrir land okkar og þjóð. Nú er umfjöllun minni að mestu lokið. Til þess að skrifa þessa ritgerð hef ég leit- að í nokkrar heimildir sem til voru bæði á mínu heimili og í skólanum. Margir segja að ungmennafélögin séu ekki í takt við tímann en ég tel þau vera stödd í nútíman- um. Ungmenna- og íþróttafélögin eru stór þáttur í því að efla okkur unga fólkið. í mínum heimabæ er öflugt íþróttafélag sem heitir Völsungur, en það var stofnað 1927 af 15 ára gömlum piltum. Völsungur hefur staðið fyrir mjög öflugu íþrótta- og æsku- lýðsstarfi í bænum í nær 70 ár og ef þess nyti ekki við væri tilveran hér frekar tóm- leg. Freyr Ingólfsson 7. bekk Borgarhólsskóla Húsavík Þessi ágœta mynd fylgdi ritgerðinni hennar Sonju úr Laugarbakkaskóla. Guðmundur Grétar létfylgja með mynd afkeilunni sem allir œttu að verafamir að kann- ast við. TVékeilan í búðinni Ég var í Reykjavík með mömmu. Hún var að versla og þá sáum við svolítið skrýt- ið. Út um alla búð voru auglýsingar með mynd af keilu. Ég fór og spurði mömmu hvað stæði á keilunni. Hún sagði að það væri: „Eflum íslenskt." Ég spurði af hverju þetta stæði þarna. Mamma sagði að það væri til þess að fólk á íslandi hefði vinnu og við þyrftum ekki að flytja allt til lands- ins, Guðmundur Grétar Friðriksson 4. bekk, Laugarbakkaskóla Skinfaxi 27

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.