Skinfaxi

Árgangur

Skinfaxi - 01.05.1995, Blaðsíða 29

Skinfaxi - 01.05.1995, Blaðsíða 29
Hestaferðir um landið eru mjög vinsœlar meðal lslendinga og útlendinga. í hestaferð Malín er 18 ára og er frá Hrafnseyri. Hún vinnur á Hraunbóli sem er bóndabær í 2 km fjarlægð frá Kirkjubæjarklaustri. A bænum eru hestaleiga og bændagisting. Hjónin á bænum heita Bjartmann Omars- son og Unnur Ragnarsdóttir. Þau eiga tvo stráka, annar heitir Guðjón og er 12 ára og hinn heitir Rögnvaldur og er 10 ára. A Hraunbóli eru 50 reiðhestar og 50 ótamin hross, en hjónin hafa ekki neinar kindur. Á Hraunból koma oft íslenskir og útlendir ferðamenn til þess að fara á hest- bak og í útreiðartúra að Systrastapa, sem er stórt bjarg vestan við Kirkjubæjarklaustur. 1 dag klukkan hálffimm kom vinafólk Bjartmanns og Unnar frá Danmörku. Þau heita Emile og Morten. Þau ætla að vera hér í fjórar vikur og ætlunin er að fara með þau í hestaferð kringum Vatnajökul, norður fyrir Hofsjökul, yfir Þjórsá og heim. Þetta á eftir að verða löng ferð. Við tókum á móti þeim með íslenskum réttum. Þau fengu hangikjöt og svo skyr og rjóma í eftirmat. Þeim fannst maturinn mjög góður. Þau spurðu hvort þau fengju ekki einhvern tíma að smakka svið. Unnur hélt það nú. Næsta dag fórum við í útreiðatúr til að venja fólk- ið við hestana. Við skiptumst á um að hringja í fólk til að biðja um leyfi til að fá að tjalda. Það þarf að fá leyfi fyrir beitarlandi fyrir hest- ana í svona ferðalögum. Síðan skoðuðum við kort, skipulögðum leiðir og athuguðum merktar slóðir. Við verðum að fara um við- urkenndar reiðgötur því það er ekki til fyr- irmyndar að skilja eftir vegsummerki eftir 30 - 40 hross. Við þurfum að taka með okkur hlý föt og regnföt ef það skyldi nú rigna því ís- lensk veðrátta er misjöfn. Einnig þarf að hafa meðferðis skeifur og jámingaáhöld, ef skeifa losnar. Við útveguðum okkur pens- illín og sáravatn hjá dýralækninum ef eitt- hvað skyldi henda hestana. Flugnanet tök- um við með ef svo óheppilega skyldi vilja til að við lentum í mýi, sem mikið getur verið af nálægt ám og vötnum. Mat handa okkur og hey fyrir hestana, talstöð ef eitt- hvað kæmi upp á, til dæmis ef einhver skyldi slasast illilega og það þyrfti að kalla á þyrlu. Síðast en ekki síst tökum við með rafmagnsgirðingu til þess að setja upp þeg- ar við emm að borða nestið okkar, einnig á næturnar, þar sem ekki eru beitarhólf til staðar. Allt gekk nú slysalaust, þar til hann Morten flaug af honum Loga. Þegar Mort- en var að fara á bak, datt hann af hinum megin. Hann meiddist ekkert við þetta og hoppaði bara aftur á bak og hló. Um kvöld- ið vomm við með svið í kvöldmatinn. Öll- um fannst það gott. Eftir kvöldmatinn vom svo ýmis lög sungin og síðan var farið að sofa. Næsta dag komurn við að vatninu sem er við Fjórðungsöldu. Þar var mikið mý. Hest- urinn sent Ragnheiður, systir Unnar, var á fældist og hún datt af baki. Hún var svo óheppin að hesturinn hljóp að vatninu og hún datt út í það. Næstu fimm dagar gengu mjög vel. Við stoppuðum á Hveravöllum og fómm þar í heita pottinn. Við gistum svo á Hveravöll- um. I Hekluhrauni varð slys. Hann Sverrir vinnumaður missteig sig svo illa að hann fótbrotnaði og í fallinu datt hann á miðl- ungs stóran stein og fékk heilahristing. Bjartmann brást skjótt við og hringdi strax og bað um aðstoð þyrlu. Hún kom eftir 10 mínútur, en Bjartmanni fannst það vera hálftími. Síðan var ákveðið að gista á Hlíðarenda þar sem kappinn Gunnar Hámundason bjó. Þar fékk Unnur að hringja í Borgarspítal- ann og fékk hún þær fréttir að Sverrir væri í aðgerð. Hún lét sjúkraliðann, sem svaraði henni, fá númerið á Sólheimum, því þar ætluðu þau að gista næstu nótt. Hún bað hann að hringja í sig þegar Sverrir væri bú- inn í aðgerðinni. Næsta dag vildi Unnur ólm fara af stað heim og vom þau komin í Sólheima klukk- an 4, því þau lögðu af stað klukkan 12 á há- degi. Það hafði ekki verið hringt í Sólheima svo Bjartmann hringdi og fékk þær fréttir að Sverrir væri á batavegi, en hann þyrfti hugsanlega að vera þrjár vikur inni á spítal- anum, því hann væri það illa slasaður. Og þegar komið var að kveðjustundinni voru þau öll saman komin, Unnur, Bjart- niann og strákamir. Þau ætluðu að fara með Morten og Emile suður til Reykjavíkur til þess að heimsækja Sverri. Hrefna Reynisdóttir, Laugarbakkaskóla. Skinfaxi 29

x

Skinfaxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Skinfaxi
https://timarit.is/publication/334

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.