Skinfaxi - 01.05.1995, Page 8
Umhverfisverkefni UMF11995
Mjög góðar undirtektir
„Umhverfið í okkar höndum“
hefur gengið vel. I vor voru haldnir
níu fræðslufundir víðsvegar um land-
ið og tókust þeir með ágætum. A
þessum fundum kom ýmislegt
áhugavert fram, m.a. að mörgu væri
ábótavant í umgengni okkar við nátt-
úru landsins. T.d. er nauðsynlegt að
huga enn betur að því hvað við ger-
um við úrgang sem til fellur og áhrif
hans á umhverfið. Einnig athuga
hvort við getum breytt neysluvenjum
okkar, sérstaklega með tilliti til þess
að draga úr úrgangsmyndun. A
fræðslufundi á Blönduósi kom Stef-
án Gíslason sveitarstjóri á Hólmavík
með ýmis góð ráð og ábendingar um
leiðir til bættrar umgengni við nátt-
úru landsins. Hann benti m.a. á
óhóflega notkun á þvottaefnum sem
geta verið skaðleg náttúrunni eftir
notkun okkar á þeim. Það er mikil-
vægt að líta á neysluvenjur okkar
með hliðsjón af áhrifum þeirra á um-
hverfi okkar að lokinni neyslu.
Tökum höndum saman
Stærsti hluti Umhverfisverkefnis
UMFI 1995 er hreinsunarátak sum-
arsins sem hófst 5. júní með glæsibrag á
Þingvöllum. Forseti íslands Vigdís Finn-
bogadóttir leiddi hreinsunina ásamt Þóri
Jónssyni formanni UMFI, Hönnu Maríu
Pétursdóttur þjóðgarðsverði á Þingvöllum
og fjölmennum hópi ungmennafélaga.
Hreinsunin á Þingvöllum gekk hratt og vel
fyrir sig. Að því loknu bauð Forseti Is-
lands, Vigdís Finnbogadóttir, hópnum í
kaffi í bústað sínum á Þingvöllum.
Nú ríður á að huga sem allra best að
hreinsunarátaki sumarsins þar sem allir
ungmennafélagar taka höndum saman og
hreinsa sem mest af ströndum, ár-og vatns-
bökkum landsins. Það er mikilvægt að fá
alla fjölskylduna til liðs við verkefnið, sér-
staklega ungu kynslóðina, arftaka landsins.
Með því að leiðbeina börnum og fá þau til
að tína rusl og drasl, jafnframt því að huga
að því hverskonar rusl þetta er, þá verður
þeim ljósara mikilvægi þess að setja ruslið,
t.d. sælgætisbréf og umbúðir af drykkja-
vörum, á rétta staði.
Fyrsti hluti hreinsunarátaksins hófst með glœsibrag á Þingvöllum. He'r er forseti Islands í hópi
vaskra hreinsunarmanna.
Gerum gagn,
njótum útiveru og
fegurðar umhverfisins
Flest ungmennafélög taka þátt í hreins-
unarátakinu og skipuleggja þau hreinsun
hvert á sínu svæði, fá leyfi landeigenda og
sjá um að farga ruslinu á viðurkenndum
móttökustöðum. Það hefur komið í ljós að
þörfin er mikil á mörgum stöðum og hefur
afraksturinn verið fjöldi af fullum stórum
ruslapokum. í Viðey voru á upphafsdegi
hreinsunarátaksins u.þ.b. 60 manns sem
hreinsuðu þar af miklu kappi og var af-
raksturinn fullir 70 stórir ruslapokar. Að
lokinni hreinsun var grillað og farið í leiki
og nutu menn útiverunnar. Svipaða sögu
er að segja frá mörgum stöðum á landinu,
t.d. frá Suðurnesjum, en þar var vikan 5. -
11. júní nýtt til hreinsunar á strandlengj-
unni. Myndarlegur hópur frá Vopnafirði
tók sig til og hreinsaði drjúgan hluta af
strandlengjunni þar í grennd. I Borgarfirði
tók fjölskylda sig saman og hreinsaði hluta
af bökkum Grímsár.
Veðurfar hefur haft áhrif á skipulag
hreinsunarinnar þar sem hreinsun hefur
verið frestað fram eftir sumri á nokkrum
stöðum á Norðurlandi og á Vestfjörðum.
Gaman hefur verið að fylgjast með áhuga
ýmissa félagasamtaka sem hafa tekið þátt í
þessu verkefni, s.s. kvenfélög, lionsklúbbar
UMHVERFIÐ
1 OKKAR HÖNDUM
8
Skinfaxi