Skinfaxi - 01.05.1995, Blaðsíða 11
- segir Jón Arnar Magnússon tugþrautarkappi
„Þetta ár hefur verið mjög gott, það sem
af er. Ég hef séð stöðugar bætingar á þeim
mótum sem ég hef tekið þátt í. Ég var
ánægðastur með mótið í Austurríki, því þar
gekk mér mjög vel. Auðvitað stefni ég að
því að gera betur, - annars gæti ég bara
hætt.“
Þetta segir tugþrautarkappinn, Jón Am-
ar Magnússon, UMSS, sem hefur verið að
gera það gott á keppnisbrautunum. Hann
hefur verið mikið í sviðsljósinu vegna frá-
bærs árangurs, sem hann hefur verið að
bæta verulega að undanfömu.
Það vekur athygli, þegar rætt er við Jón
Amar, hve glaðlegur og hispurslaus hann
er. Fráleitt er, að hann miklist af þeim góða
árangri, sem hann hefur náð, og raunar er
honum ekkert sérlega gefið um að ræða
mikið um þá hlið mála. Hann vill miklu
fremur tala um jeppaferðir, veiðiskap, fjár-
húsið í Asum í Gnúpverjahreppi, sem hann
komst ekki til að moka í ár og fleira af
þeim toga. Jón Arnar er nefnilega dálítill
sveitamaður inn við beinið og hann leggur
mikið upp úr því að vera úti í náttúmnni.
Og svo er hann einfari. En við komum bet-
ur að því á eftir. Fyrst er það uppruninn.
Fæddur inn í HSK
„Ég er fæddur á Selfossi, inn í HSK.
Fljótlega fluttum við að Hamratungu í
Gnúpverjahreppi í Árnessýslu. Þetta var
nýbýli, sem foreldrar mínir byggðu. Ég
byrjaði snemma að stauta í íþróttum og var
þá auðvitað innan HSK. Ég var í öllu,
frjálsum, handbolta, fótbolta, körfu og
blaki. Svo var farið að tala um að ég yrði
betri í frjálsum heldur en einhverju öðm.
Eg fann það svo sem sjálfur og var búinn
að reyna verulega á náttúrubarnið í mér.
Eg hefði líklega ekki komist lengra í
íþróttunum ef ég hefði ekki valið á milli
greina og byrjað að æfa.“
Fyrir þremum ámm valdi Jón Amar sér
svo endanlega svið innan íþróttanna. „Ég
/ Evrópubikarkeppninni ífjölþrautum á Laugardalsvelli.
var farinn að nálgast íslandsmetið hans
Þráins og þá ákvað ég að reyna að ná því.
En svo fótbrotnaði ég og var frá um tíma.
Ég byrjaði aftur eins fljótt og ég gat og var
furðu fljótur að ná mér á strik."
Það gefur auga leið að menn þurfa að
vera jafnvígir í mörgum greinum til þess
að komast áfram í tugþraut.
„Maður gerir svo sem ekki mikið í
þrautinni ef maður getur ekki gert allt,“
segir Jón Arnar og hlær þegar hann er
spurður hvar hann standi nú best að vígi og
hvar verst. „Best em langstökkið og grind-
in, en 1500 er einna lélegast eins og stend-
ur, allavega."
Vinnan og íþróttirnar
- Einhvem tíma heyrðist sagt, að það
væri synd hvað þú værir latur að æfa eins
og þú værir mikið efni. Heyrðir þú það
aldrei?
„Jú, mikil ósköp. Ég heyrði þetta síðast
Eg er í eðli
mínu einfari
Skinfaxi
11